Bændablaðið - 05.10.2023, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
LÍF&STARF
Á FAGLEGUM NÓTUM
Traustar hagtölur eru grundvöllur
upplýstrar umræðu
Markaður fyrir mjólkurafurðir
hér á landi hefur vaxið umtalsvert
síðastliðinn einn og hálfa áratug.
Árið 2008
nam heildarsalan
112,3 milljónum
lítra á fitugrunni
o g 11 7 , 1
milljón lítra á
próteingrunni.
Fimmtán árum
síðar hafði sala á
fitugrunni aukist um 31%, eða í 147,2
milljónir lítra. Sala á próteingrunni
hefur hins vegar vaxið minna og
nam 128 milljónum lítra árið 2022.
Skýringuna á þessu misræmi og því
að nú hallar á próteinsöluna má að
verulegum hluta rekja til aukins
innflutnings á ostum á grundvelli
umsamdra tollfrjálsra kvóta í
viðskiptasamningum við ESB og
fleiri lönd.
Fjölbreytt flóra
innfluttra vara
Undanfarin ár hefur bæði magn
og fjölbreytni í innfluttum
mjólkurvörum og vörum sem
innihalda hráefni úr mjólk aukist
eins og glöggt má sjá í hillum
verslana. Annars vegar er um að
ræða hefðbundnar mjólkurvörur
eins og jógúrt og osta sem falla
undir kafla fjögur í tollskrá líkt og
aðrar mjólkurvörur. Hins vegar eru
svo ýmsar samsettar vörur sem eru
að uppistöðu úr mjólk en öðrum
efnisþáttum, svo sem bragðefnum
viðbættum sykri eða sætuefnum
og fleiru, hefur verið bætt í. Slíkar
vörur flokkast í aðra tollflokka sem
margir eru á lágum tollum og oft
án tolla, einkum á grundvelli sér
stakra viðskipta samninga. Í smá
sölu verslunum ber m.a. allnokkuð
á mjólkur drykkjum sem flokkast í
einhverja af þeim 13* „skiptiliðum“
í undirlið 2202.99 í íslensku
tollskránni, yfir drykki sem eru að
uppistöðu úr mjólk. Þessar vörur
eru án tolla frá löndum innan EES
svæðisins og Sviss auk fjölmargra
annarra landa sem gerðir hafa verið
tvíhliða viðskiptasamningar við, þar
með talið Bretland og Kína.
Innfluttar drykkjarvörur
Verslunarskýrslur sem teknar
eru saman á grundvelli inn og
útflutningsskýrslna eru mikilvægar
hagtölur fyrir alla þá sem vilja
t.d. greina þróun markaða fyrir
mismunandi vörur.
Samkvæmt þeim hefur
innflutningur á fyrrnefndum
drykkjarvörum numið á milli 400
og 500 tonnum á ári sl. fjögur
ár. Fyrstu 7 mánuði þessa árs var
innflutningurinn kominn í 259 tonn.
Erfitt er samt að henda reiður
á hvort þessu beri saman við
útflutningstölur helstu viðskiptalanda
þar sem tollflokkun er ekki algerlega
samræmd og alls ekki á skiptiliði
(átta stafa tollskrárnúmer). Það vekur
engu að síður athygli að heildar
innflutningur á drykkjarvörum
(hér teljast einnig með sem dæmi
gosdrykkir og jurtadrykkir) í
undirlið 2202.99 frá ESB til Íslands
nam um 2.700 tonnum árin 2021
og 2022.
Útflutningur frá ESB til Íslands
nam hins vegar tæpum 6.000
tonnum árið 2021 og 5.073 tonnum
árið 2022 samkvæmt skýrslum
EUROSTAT.
Áhersla á mikilvægi hagskýrslna
Tollskýrslur eru ekki aðeins
grundvöllur þess hvort og hvaða
tolla beri að greiða af innflutningi,
ýmis önnur gjöld eru lögð á við
innflutning eins og úrvinnslugjald
og virðisaukaskattur. Þá eru
fyrrnefnd not við hagskýrslugerð
einnig mikilvæg. Því skiptir miklu
að tollskýrslur séu réttar. Af hálfu
ESB og einstakra aðildarríkja þess
er lögð rík áhersla á þetta. Þannig
gera reglugerðir ESB ráð fyrir því
að inn og útflytjendur hafi skyldum
að gegna í því sambandi, þ.m.t. að
tollskýrslur séu rétt útfylltar. Ef
brotið er gegn þessu leiðir það til
þess að inn og útflytjendur þurfi
að sæta því að missa rafrænan
aðgang að gagnagrunnum ESB.
Ef málið varðar innflutnings og
útflutningsleyfi fyrir tollkvóta er
unnt að útiloka inn og útflytjanda
frá því að flytja út úr ESB eða dreifa
á markaði ESB öllum vörum sem
falla undir viðkomandi innflutnings
eða útflutningskvóta. Óhætt er að
fullyrða að inn og útflytjandi, sem
þarf að leggja fram tollskýrslur á
pappírsformi, eða aðili sem er
útilokaður frá þátttöku í tollkvótum,
starfar ekki lengi eftir að slíkum
viðurlögum hefur verið beitt.
Í febrúar 2021 skipaði fjármála
ráðherra starf shóp til að greina
misræmi milli magns í útflutnings
tölum úr viðskiptagagnagrunni ESB
og innflutningstölum Hagstofu
Íslands í sömu tollflokkum, sbr. kafla
4.2.1 í skýrslu Ríkisendurskoðunar
frá febrúar 2022 um tollframkvæmd
vegna landbúnaðarafurða.
Í skriflegu svari fjármálaráðherra
frá 16. desember 2022 við
fyrirspurn um málið frá Högna
Elfari Gylfasyni, varaþm., kom fram
að áætluð starfslok hópsins yrðu í
lok janúar 2023. Skýrslan er enn
ekki komin fram en vonandi mun
hún varpa ljósi á þessar spurningar
þegar upp verður staðið.
Erna Bjarnadóttir,
verkefnastjóri hjá MS
Heillaðist af íslenska hestinum
og flutti til Íslands
Á bænum Mið-Grund undir
Eyjaföllunum býr kona að
nafni Martina Holmgren ásamt
fjölskyldu sinni. Martina er
ættuð frá Svíþjóð og starfaði sem
fjármálaráðgjafi í Stokkhólmi
þegar hún ákvað að elta drauminn
og flytja til Íslands til þess að starfa
með íslenska hestinum.
Martina ólst upp í Svíþjóð og
komst þar í kynni við íslenska hestinn
sem ung stelpa. Hún heillaðist af
hestinum og ákvað að hún yrði að
heimsækja Ísland. Hún kom hingað til
lands fyrst árið 2009 og varð ástfangin
af landi og þjóð. Ekki leið á löngu þar
til hún var farin að eyða öllum sínum
frítíma hérlendis og dreymdi um að
einn daginn myndi hún eignast hér
hesthús fullt af íslenskum gæðingum.
Í tíma sínum hérlendis starfaði hún
við þjálfun hesta og hreifst af því
hvernig hestar eru haldnir og hvað
þeir búa við mikið frjálsræði, í stórum
hjörðum á víðfemnu landsvæði og
hlaupa frjálsir í hestaferðum.
Lifir drauminn
Hún átti sér draum um að setja upp
starfsemi hérlendis í kringum íslenska
hestinn, að bjóða upp á reiðskóla fyrir
börn, hestaleigu og hestaferðir fyrir
bæði Íslendinga og ferðamenn.
„Það kom að því að ég fékk leið
á því að vinna á skrifstofu, horfa á
tölvuskjáinn og fletta pappírum.
Draumurinn var að vinna með
íslenska hestinum og einn daginn lét
ég verða af því og flutti til Íslands.
Síðan eru liðin 10 ár. Ég kynntist
svo manninum mínum fljótlega eftir
komuna hingað til lands og í stuttu
máli sagt þá stofnuðum við fjölskyldu
og eigum í dag þrjú börn saman.“
Þau ákváðu að taka við búi
foreldra mannsins hennar og í dag
eru þau búsett á MiðGrund, en þar
var áður rekið kúabú. „Við höfum
breytt hluta af fjósinu í hesthús og
komið okkur upp ágætri aðstöðu. Við
ætlum að reka hér hestaleigu allan
ársins hring, þar sem fólk getur bókað
bæði styttri og lengri dagsferðir með
leiðsögumanni. Við erum staðsett á
milli fjalls og fjöru og hér í kring
eru skemmtilegar reiðleiðir s.s. að
Reynisfjöru og Írafossi.“
Í sumar var einnig boðið upp á
reiðskóla fyrir börn og unglinga. „Það
var hluti af draumnum að bjóða upp
á reiðskóla. Ég sótti reiðskóla sjálf
sem barn og unglingur og það gaf mér
mikið, mig langaði því að endurgjalda
gjöfina og bjóða upp á reiðskóla og
starfsemi fyrir börn og unglinga.
Það er svo gaman að upplifa gleði
barnanna í samvistum þeirra með
hestinum, að fylgjast með þeim læra
að umgangast hestinn, að ná tökum á
stjórnun hans og ásetu sinni. Hvernig
þau eflast og styrkjast. Í sumar komu
hingað 150 börn í reiðskólann og allt
gekk ótrúlega vel,“ segir Martina.
Martina er stórhuga og lætur
hlutina gerast. Nýjasta hugmynd
hennar er sú að bjóða Íslendingum
upp á skipulagðar hestaferðir.
„Hugmyndin kviknaði þegar ég var
sjálf að reyna að leita að hestaferðum
og fann lítið af ferðum sem buðu upp
á þann möguleika að koma með sína
eigin hesta.
Yfirleitt eru þetta vinahópar
sem taka sig saman og skipuleggja
hestaferðir. Mig langar til að bjóða
upp á slíka þjónustu og næsta sumar
býð ég upp á skipulagðar hestaferðir
þar sem fólk mætir með sína eigin
hesta og við sjáum um rest. Við höfum
aðstöðuna hér, skipuleggjum ferðina,
bókum skálana, erum með trússbíl,
maðurinn minn er kokkur og getur
séð um matinn. Hér er því allt til alls.
Næsta sumar munum við bjóða
upp á ferðir um Landmannalaugar,
Þórsmörk og svo er í boði ferð sem
við köllum Tindfjallahringur.“
Elskar vinnuna
og íslenska hestinn
Martina er ánægð með að hafa
hoppað út í djúpu laugina og elt
drauminn sinn. „Ég elska vinnuna
mína í dag, íslenska hestinn og allt
það sem honum tengist, allt þetta
bras og umstang og enginn dagur
er eins.
Það er ómetanlegt að vinna með
börnum, vera með dýrunum og vera
úti í náttúrunni.
Ég þarf stundum að klípa mig
og átta mig á því að ég er að lifa
drauminn minn,“ segir Martina að
lokum. Fyrir áhugasama má finna
meiri upplýsingar á heimasíðu
hennar hestarogfjoll.is /ÞAG
Næsta sumar verður boðið upp á skipulagðar hestaferðir þar sem fólk mætir með sína eigin hesta og þau hjónin
sjá um rest. Myndir / Martina Holmgren
Martina Holmgren.
Erna Bjarnadóttir.