Bændablaðið - 05.10.2023, Side 62

Bændablaðið - 05.10.2023, Side 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 Þrýstisett fyrir neysluvatn. Til á lager-230 V, 12 V, 24 V. Einnig dælur með 3 fasa. Mjög öflug sjálfsogandi dæla. Dæluhjól og öxull úr ryðfríu stáli. 24 L eða 60 L tankur úr ryðfríu stáli. Stillanlegur þrýstingur. Hentar vel fyrir sumarhús, ferðaþjónustu og báta. Hákonarson ehf. S. 892-4163, netfang- hak@hak.is Klósettdælur fyrir kjallara. Inntak fyrir vask, sturtu og þvottavél. Mótor staðsettur fyrir utan votrými. Margar stærðir sem henta fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Mjög öflugur og vandaður búnaður. Frárennsli, 32 mm. Hákonarson ehf. S. 892-4163, hak@ hak.is, www.hak.is Háþrýstidælur fyrir verktaka og bændur. Rafdrifnar, traktorsdrifnar, glussadrifnar, bensín eða dísel. Margar stærðir, allt að 700 bar. Einnig öflugir vatnshitarar fyrir háþrýstidælur. Vandaður búnaður frá Comet - www. comet-spa.com Hákonarson ehf. hak@hak.is www.hak.is s. 892-4163. Glussaknúnar vatnsdælur fyrir tankbíla og vinnuvélar. Sjálfsogandi dælur í mörgum stærðum sem dæla allt að 120 tonnum á klst. Einnig dælur með miklum þrýstingi, allt að 10 bar. Hákonarson ehf. S. 892-4163, hak@ hak.is, www.hak.is Gámarampar á lager heitgalfaniserað stál. Burðargeta- 8.000 kg. Stærð- 130 cm x 210 cm x 16 cm. Lykkjur í dekki fyrir lyftaragaffla. Hákonarson ehf. hak@hak.is S. 892-4163. Glussadrifnir jarðvegsborar. Á traktora og allt að 60 tonna gröfur. Margar stærðir og gerðir af borum. Margar festingar í boði. https://www. diggaeurope.com/ Hákonarson ehf. www.hak.is S. 892-4163. Netfang- hak@hak.is. Rampar fyrir frysti/kæligáma á lager. Burðargeta 10 tonn. Dekkplata 10 mm, L- 170 cm x B- 200 cm x hæð- 21 cm. Heitgalvaniserað stál. Lyftaratækur á þrjá vegu. Eigum einnig rampa fyrir hefðbundna sjógáma. Hákonarson ehf. S. 892- 4163 www.hak.is hak@hak.is Stór og öflug háþrýstidæla fyrir verktaka til sölu. Dælan er ný og ónotuð, FDX Xtreme XL, www. comet-spa.com. Dælan er 16 L / min og max þrýstingur er 520 bar. Vél - 26 hestöfl, Kohler, dísel, KDW 1003. Vélin er vatnskæld og með rafstarti. Hákonarson ehf. S. 892-4163 - e-mail - hak@hak.is. Brettagafflar fyrir ámoksturstæki. Ásoðnar festingar- Euro. Euro + 3 tengi. Sérpöntun á öllum festingum. Burðargeta 2.500 kg. Lengd á göfflum, 120 cm. Pólsk framleiðsla. Til á lager. Hákonarson ehf. S. 892-4163, hak@hak.is. Atvinna Maður lifandi óskast í vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða allt sem tengist múrverki, hægt að komast í læri. Upplýsingar í s. 898-1999 Högni Guðmundsson múrarameistari. Gefins Gefins skógur. Óska eftir 40 ha fyrir blandaðan asparskóg. Þið eigið skóginn. Auk 15% kolefniseininga. Sendið land við árbakka, án sauðfjár. S. 849-0636. Óska eftir Kaupi vínylplötur og CD. Staðgreiði stór plötusöfn. Plötumarkaður Óla, Ísbúðin Háaleitisbraut 58. S. 784- 2410, olisigur@gmail.com Leita að gömlum reiðtygjum í endurvinnsluverkefni. Taumlásar, hringir, mél, taumar, allt getur nýst. Frekari upplýsingar - Sigríður s. 660-7667. Óska eftir gangfærum Isuzu Crew Cab 2004-2006. Body má vera klesst eða illa farið. s. 861-9609. Vantar þig stóra frystikistu undir veiðina eða annað? Áttu litla frystikistu sem þú gætir hugsað þér að láta í skiptum fyrir stóra? Ég á gamla týpíska, rúmlega 400 l frystikistu (körfulaus) sem gengur eins og klukka. 95 cm breið, 65 cm djúp, 88 cm há. Dálítið skálduð að utan og ekki falleg en í fullkomnu lagi. Fullkomin bílskúrsfrystikista sem býr í leiðinni til gott vinnuborð. Langar að skipta á henni og lítilli frystikistu sem má líka vera gömul en þarf að vera í góðu lagi. Í Rvk. Uppl. tölvupóstf- s.asmundsdottir@ gmail.com Óska eftir litlum kuðungum og skeljum af öllum gerðum. Vil aðeins smáa kuðunga og skeljar, ekki of stórar. Hafið samband í gegnum tölvupóst á holar18.450@gmail.com Til sölu Plast í fjárhúsgólf og stíur. Bása- og drenmottur, útileiktæki, gúmmíhellur og gervigras. Heildarlausnir á leiksvæðum. jh@johannhelgi.is s. 820-8096. Til sölu glerofn IR 6090. Litir, litakurl, mót og fíber fylgja með, kr. 350.000. Upplýsingar í s. 899-2443 eða sibba68@gmail.com Mercedes Benz Actros 1844. 2004. Ekinn aðeins 357.000 km. Vagn Minerva Industrie 2004. Létt tæki. Vigtar saman 14,5 tonn, heildarþyngd 40 tonn. Burður 25,5T ca 17 rúmmetrar. Bíll á fjöðrum að framan og loftfjöðrun að aftan. Glussafjöðrun á vagni, stabíll og stendur eins og klettur. Gífurlega lipurt tæki í góðu standi. Selst bara saman bíll og vagn. Nýsmurður, nýskoðaður og nýir rafgeymar. S. 864-3560. Patrol 01/2006, næsta skoðun 2024, 7 manna, ekinn 312.000 km. Einn eigandi, vel um genginn, heilsársdekk, aukalega dekkjagangur, slitinn á felgum, box á afturhurð, verð kr. 1.500.000. S. 893-6989. Stofusamstæða með ljósum, 3 stk. Borðstofuborð og 6 stólar. Ársgamall ísskápur, h- 115cm b- 50cm. Lítil 2ja hellu eldavél með ofni. Vandað skrifborð, hækkanlegt. Keramic helluborð með 4 hellum. Snjóblásari úr Bauhaus. Gömul stór bandsög. 3 innskotsborð. Sturtuklefi 90 x 90. Sængur, koddar, rúmföt og fl. úr ferðaþjónustu. Upplýsingar aðeins gefnar í s. 893-3475. Dacia Duster, árgerð 2016, dísel. Ekinn 120.000 km. Ný tímareim, nýleg hráolíusía. Gras- svartur að lit. Nýjar þrýstislöngur. Verð kr. 2.100.000. Upplýsingar í s. 661-5150. Þjónusta Tek að mér viðgerðir á flestum tegundum sjálfskiptinga. Hafið samband í s. 663-9589 til að fá uppl. og tilboð. HP transmission, Akureyri. Netfang- einar.g9@gmail. com - Einar G. Byggingarstjóri. Tek að mér að vera byggingarstjóri á mannvirkjum á öllum byggingarstigum. Vera tengiliður við byggingarfulltrúa fyrir ykkur. Hafið samband í s. 852-3222 eða asgeirvil@gmail.com Dýrahald Vegna flutninga og óvissu um næsta húsnæði þyrftum við á gæslu að halda fyrir kettina okkar - rétt rúmlega tveggja ára systkini sem eru ljúf og góð. Áætlaður tími 3-6 mánuðir, jafnvel skemur. Áhugasamir sendið póst á netfangið joklarosin@gmail.com með helstu upplýsingum um búsetu, fjölskyldu og ef önnur dýr eru á heimilinu. Bestu þakkir fyrir áhugann. Stálgrindarhús klædd með yleiningum ! Til sölu stálgrindarhús 104,2 m2 og 57,4 m2 að utanmáli, klætt með 50mm yleiningum í veggjum og 100mm í þaki. Stærra húsið er með tveimur innkeyrsluhurðum og það minna með einni hurð, rafdrifnar og með fjarstýringu. Verð 104,2 m2 hús 6.000.000 + Vsk Verð 57,4 m2 hús 4.180.000 + Vsk Byggingarnefndarteikningar fylgja. Uppl. Altækni s/f Sími 8227518 / 8669911 www.heitirpottar.com altaekni@gmail.com Húsin eru staðsett á Akureyri Litur að utan RAL7016 Litur inni RAL9010 Bændablaðið www.bbl.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.