Úrval - 01.11.1962, Blaðsíða 45
5000 ára gönml Mnversk lcekningaraðferð hefur verið tekin
til gaumgcefilegrar athugunar í Evrápu.
Ad laekna med
nálastungum
Eftir Joyce Emerson.
EIR sem eru fylgj-
andi „acupuncture“,
þ. e. nálarstungum
á vissum stöðum
líkamans í lækninga-
skyni, trúa því, að í mannlegum
líkama séu tólf baugar, sem séu
nokkurs konar orkubrautir og
flytji orku til og frá hinum
helztu líffærum: maganum, hjart-
anu, lungunum og svo framveg-
is. Of mikið eða lítið orku-
streymi eftir slíkri orkubraut
getur að þeirra áliti haft þau
áhrif, að viðkomandi líffæri
komist úr lagi og framkalli þann-
ig veikindi og sjúkdóma. En
hægt er að koma aftur á eðlilegu
orkustreymi með því að örva
orkubrautirnar á vissum stöðum
með því að stinga í húðina með
nálum. (Stuðningsmenn þessarar
kenningar segja, að um sé að
ræða í kringum 800 slíka staði).
Sjúkdóminn er hægt að greina
með því að þreifa fyrir sér á
slagæðunum í úlnliðunum og
gera greinarmun á hinum tólf
mismunandi æðaslögum, en hver
tegund á við sína orkubraut.
Vanur nálarstungumaður ætti að
geta greint hin tólf mismunandi
æðaslög að og jafnvel gert grein-
armun á 27 mismunandi tegund-
um æðaslaga, sem geta gefið til
kynna hina mismunandi sjúk-
dóma og veiklun líffæranna.
Tortryggnir læknar á Vestur-
löndum halda því fram, að ekk-
ert hafi fundizt, sem gefi til
kynna, að þessar ýmsu orku-
brautir eða tegundir æðaslaga
séu raunverulega til. En hið
furðulega er, að nú hefur tekizt
að rekja leið orkubrautanna með
hjálp tækis, sem sýnir, að svæðin,
— Úr Sunday Times, stytt —
61