Úrval - 01.11.1962, Blaðsíða 120
136
UR VAL
það heldur ekki. Þau börn eru í
alvarlegri hættu.
Þetta er svo merkiiegt atriði í
skólalífinu og í einkaiífi barnanna,
að það er full þörf, að kennaíinn
reyni að gera sér grein fyrir þessu
fyrirbrigði. Gengi barnsins í skól-
anum stendur í nánu sambandi við
þetta félagaval eða félagaleysi,
bæði við nám og hagsæid alla. Ef
kennari sér, að eitthvert barn í
bekknum á sér engan félaga og er
einmana, væri mikið góðverk, og
jafnvel rík nauðsyn, að hann
reyndi með lagi að skerast þar í
ieik, þótt það sé raunar mikill
vandi, því að þörnin vilja sjálf
velja sér félaga og kæra sig ekki
um afskipti annarra af því. Það
getur því brugðið til beggja vona,
að kennaranum takist hér nokkru
um að þoka.
Barn, sem á engan félaga í bekkn
um, eða skólanum,- er óhamingju-
samt, og það hefur áhrif á námið,
það barn kann aldrei við sig í skól-
anum, og getur seinna orðið að
vandræðabarni, bæði þar og annars
staðar. Hér er því mikið í húfi. Ef
þetta barn lifir svo einnig félaga-
og vinalaust heima hjá sér, er
hættan enn meiri.
Það er nokkur hætta á slíku með
einbirni, en þau búa venjulega við
svo mikið meðlæti heima, að það
bætir upp vinaleysið að nokkru.
Annars á einbirnið við ýmsa örðug-
leika að stríða, sem stafa að mestu
af því, að það á ekki félaga, og
lifir of miklu einlífi. Það er því
ekki æskilegt fjölskyldufyrirbrigði
að eiga aðeins eitt barn.
— En þó að hér sé vikið að
börnum í okó’a, nær þessi félaga-
þörr langt út fyrir skólaaldurinn á
báða bóga. fessi rika þörf hefst
löngu fyrir skólaaldur, en er þá
ekki eins einstaklingsbundin, verð-
ur kannski aídrei eins brennandi
og á barnaskólaárunum, og fyrstu
unglingsárin, eða þangað til ungl-
ingarnir fara verulega að leita fé-
laga af hinu kyninu. Þessi félaga-
þrá endist raunar alla ævi, ef hún
er ekki leyst af hólmi með hjóna-
bandi og fjölskyldu, sem fullnæg-
ir venjulega þessari þrá að lang-
mestu leyti. Maðurinn er svo ó-
svikin félagsvera, að það stappar
nærri ógæfu að eiga ekki félaga
eða vin. Þetta er þó mjög misjafnt.
Sumir menn eru svo barmafullir
af ýmsum áhugamálum, að þeir
geta lifað fyrir þau og finna því
ekki til einverunnar. En þeir eru
færri.
Börnin eru ekki gömul, þegar
þau fara að hænast hvort að öðru.
Fyrst nægir hópurinn, en það líður
ekki á löngu, þar til krafan um að-
eins einn kernur til. Þegar sá þriðji
kemur i hópinn, fer allt út um þúf-
ur. Einkum ber á þessu hjá telpum.
Drengir eru frjálslyndari og geta
frekar leikið sér fleiri saman.