Úrval - 01.11.1962, Blaðsíða 161
„TAUGAMIÐSTÖГ HVÍTA HÚSSINS
hefði þegar beðið Eisenhower að
fresta heimsókn sinni til Japan
vegna óeirða róttækra vinstri-
sinna, en Boring skýrði Rowley
jafnóðum frá orðum ráðherrans
með hjálp túlksins. Orðréttur
texti ræðu Kishi var fyrir hendi,
áður en Eisenhower hafði lokið
ræðu sinni.
Slík skilyrðislaus hæfni fjar-
skiptasambandsins krefst flók-
innar skipulagningar af þeirri
sérstöku undirdeild fjarskipta-
deildar hersins, sem aðsetur hef-
ur í Hvíta húsinu. í þeirri undir-
deild eru 12 liðsforingjar og
meira en 200 óbreyttir liðsmenn.
Foringi þeirra er George J. Me-
Nally ofursti. McNally lætur
nokkurs konar njósnaflokk rann-
saka allar aðstæður og koma
upp hvers kyns fjarskiptitækjum
á hverjum stað, áður en forset-
inn leggur af stað í ferðalag.
Símasamband verður að vera
fyrir hendi, þótt forsetinn stanzi
jafnvel aðeins í hálftíma á ein-
hverjum stað á ferðalagi sínu.
Þegar forsetinn fer í helgarferð-
ir, er fjarskiptanetið miklu
flóknara. Starfsmenn McNally
taka þá í sínar hendur hluta af
skiptiborði gistihússins eða her-
stöðvarinnar, sem um er að ræða,
koma á beinu sambandi þaðan
við herbergi forsetans og starfs-
liðs hans, sem með honum er,
177
og síðan er komið á beinu sam-
bandi við Washington. Komið
hefur verið fyrir fullkomnum
skiptiborðum fjarskiptadeildar-
innar á þeim stöðum, sem
Kennedy heimsækir helzt sér til
hvíldar og hressingar, en það
er Hyannis Port í Massachusetts-
fylki og Palm Beach í Florida-
fylki.
Ætíð er sett upp útvarpssendi-
stöð til þess að koma á sambandi
milli bifreiða leyniþjónustunnar.
Einnig er hægt að nota það sam-
band til þess að flytja orðsend-
ingar forsetans, ef það ólíklega
skyldi ske, að símasambandið
rofni. Komið er fyrir tveim fjar-
ritakerfum, öðru til móttöku og
hinu til sendingar. Vélarnar eru
með dulmálsútbúnaði, svo að
hægt er að breyta orðsendingun-
um vélrænt úr venjulegu máli í
dulmál og úr dulmáli í venju-
legt mál.
Starfsmenn McNally hafa oft
orðið að byggja upp fjarskipta-
kerfi alveg frá grunni. Viku áður
en Eisenhower átti að heimsækja
Brasilíu, eða í febrúarmánuði ár-
ið 1960, fékk McNally orðsend-
ingu þess efnis, að forsetinn
myndi dvelja næturlangt í hinní
nýju höfuðborg, sem heitir
Brasilía. Þetta var mikið vanda-
mál. f hinni hálfbyggðu borg
voru aðeins til örfáir símar í