Úrval - 01.04.1964, Blaðsíða 97
EIGINKONA ANGUILIKS
87
undir hreindýra í einu. En við
fáum ennþá 30 punda urriSa
og allt að 20 punda bleikju.
Stöku sinnum fáum við sérstakt
ljúfmeti, svo sem bita af ís-
bjarnarkjöti, eða freðfisk til að
japla á.
Á okkar heimili er hvalkjöt
hundamatur, en maklak, skinnið
af hvíta belugahvalnum, þykir
okkur afar gott. Soðið er það
fremur óhrjálegt, en hrátt er það
mjög ljúffengt. Næst maktak, er
hreindýrasteik uppáhaldsréttur
Batista. Mér þykir bezt salat,
og það var eitt af því, sem ég
varð að læra að vera án, þar
til nágranni minn, Jean Will-
iamson og ég lögðum áætlun um
að fá nýtt grænmeti flugleiðis
frá Churchill í Manitoba, hve-
nær sem færi gafst.
Þessi Barren Lands eru hörku-
legt land. Einu trén, sem við sjá-
um hér, eru tvær tylftir af jóla-
trjám, sem stjórnardeildin fyrir
málefni Norðursins sendir flug-
leiðis fyrir jólin. Á vetrum sést
sólin í fimm klukkustundir á
dag. Og þá er alltaf frost. Til
þess að gera sér rétta hugmynd
um veðurlagið leggja þeir hér
saman hitastigið og vindhrað-
ann —■ 50 stiga frost og 70 milna
vindhraði á klst. jafngildir þann-
ig 120 stiga frosti (á Fahrenheit
eða 85° Celsius). Yegna skaf-
rennings verðum við alltaf
nokkrum sinnum á ári innifennt,
og verðum að bíða þess, að ein-
hver grafi okkur út. Það þykir
öllum hlutaðeigandi hin bezta
skemmtun.
Úlfarnir eru önnur saga. Þeir
hafa stundum verið drepnir
skammt utan við bæinn.
Klæðnaður okkar er allur mið-
aður við hina endalausu baráttu
við náttúruna. Fyrsta og síðasta
krafan er, að fötin séu hentug,
og þó geta þau stundum verið
furðulega fögur. Ég á ferna kam-
iks (skinnstígvél), allt frá hné-
háum, hvítum sauðskinnssokkum
upp í selskinnstígvél með blóma
mynstri. Þegar hlánar, tek ég
fram gúmstígvélin eða mjaðmar-
háa skinnsokka. Mest allt ár-
ið geng ég í ullarnærfötum, þar
á meðal hina tvo skammvinnu
sumarmánuði, þegar flugurnar
fara á kreik með miðnætursól-
inni. Þá er um það tvennt að
velja, að sálast næstum úr hita
eða vera étinn lifandi.
Eskimóar eru mikið fyrir að
nota hljómfögur og litrík nöfn.
Tveir nágrannar okkar eru Kab-
luituk (augnabrúnalaus) og
Tautungi (léttsjáandi). Námu-
verkstjórinn var oftast nefndur
Issamatatuk (tekur miklar á-
kvarðanir). Hundar Batistes
heita Sigar (af því að skottið
líkist vindli), Nakti (flækist í
aktygjunum), Kayungiq (vill