Úrval - 01.06.1964, Qupperneq 62
52
URVAL
í land aftur. Það er ótrúlegt
hvað sá bátur hefur bjargaS
mörgum.
4. Gera sér grein fyrir orsök-
um. Ekkert kemur oss jafn fljótt
úr jafnvægi eins og hvöss gagn-
rýni eða móðganir. Nýlega
spurSi ég geðsjúkdómalækni,
hvernig hann færi að því að
halda geðró sem gagnvart slíkri
ósvifni, sem menn í hans stöðu
yrðu svo oft fyrir af sjúkling-
um sínum.
„Flestum þeim móðgunum,
sem við verðum fyrir, er i raun-
inni ekki beint til okkar,“ sagði
hann. „Venjulega er sjúklingur-
inn raunverulega reiður við ein-
hvern annan — einhvern vanda-
mann, vin eða vinnuveitanda.
Hann lætur það aðeins bitna á
okkur.“ Þetta er atriði, sem vér
öll ættum að hafa meira i huga.
„Svo er annað atriði, sem vert
er að muna, að það þarf tvo til
að rífast. Kona, sem kom í skrif-
stofuna tii mín fyrir nokkrum
vikum, var beinlínis að leita að
einhverjum. „Allir geðlæknar eru
geggjaðir,“ sagði hún.
„Það var gaman að heyra,“
sagði ég. „Þegar ég var á leið-
inni i vinnuna í morgun, var ég
einmitt að hugsa um það sama.“
5. Aö vera hreinskilinn. „Ef
ég er í einhverri taugaspennu í
blaðaviðtali,“ sagði blaðamaður
í Los Angeles við mig, „þá segi
ég eins og er. Þá líður mér strax
betur, og hinum léttir Oft líka.
Einu sinni, er ég átti viðtal við
stjórnarerindreka, steinþagði ég
vist í heila mínútu og var að
reyna að finna eitthvað, sem
gæti brotið isinn. Að lokum sagði
ég: „Ég vildi að ég gæti fundið
ísbrjót." Þetta dugði.“
6. Að vera viðbúinn. Aldrei
hefur það komið í ljós á jafn
örlagaríkan hátt eins og í geim-
flugi geimfarans Gordons Coop-
ers á síðastliðnu ári. Þegar hin
sjálfvirku tæki, sem áttu að
stjórna lendingu geimfarsins,
brugðust, tók Cooper rólega við
stjórninni sjálfur, og náði ná-
kvæmari lendingu en tekizt hafði
áður. „Ég var ekkert sérlega á-
hyggjufullur, sagði hann. Og á-
stæðan var sú, að hann hafði
þaulæft hvert einasta handtak,
sem til þurfti að grípa, ef i
nauðir ræki. „Við höfðum þaul-
kannað allt og þaulæft,“ sagði
Cooper. „Ég var rétt eins og
heima hjá mér i geimfarinu."
7. Að horfa fram. Walther N.
Thayer, forstjóri New York
Herald Tribune, kemur aldrei
til ráðstefnu án þess að hafa
reynt að gera sér sem ljósasta
grein fyrir öllu, sem fyrir kunni
að koma. Ef vitað er, að fram
muni koma andstæð sjónarmið
þá ihugar hann hvaða rök muni
verða framfærð og endurskoðar