Torfhildur - 01.04.2007, Page 22
Sölvi Úlfsson
vann með. Saussure sagði að orð væru táknmyndir með tilfallandi
tengingu við eitthvert táknmið. Saman mynda þau tákn og mörg
slík tengd tákn eru táknkerfi, til dæmis tungumál. Mýtan er ekki
hluti af táknkerfinu sem hún nærist á. Hún er annars stigs kerfi
sem leggst ofan á það. Þannig verða táknin í tungumálinu að tákn-
myndum í mýtutáknkerfinu. Mýtur fjalla því ekki beint um
fýrirbrigði í efnisheiminum eins og rnjólk. Fyrst þarf annað táknkerfi
að beisla fýrirbrigðið, nefna það. Þannig geta mýtur aðeins unnið
með mjólk eftir að hún hefur fengið sinn stað í tungumálinu. Þetta
| leyfir mýtunni að fjalla um fyrirbrigðið án þess að þurfa að taka
nokkurt tillit til þess sjálfs en gerir henni að sama skapi ómögulegt
I að nálgast sjálfan veruleikann milliliðalaust.
Vísindaleg aðferð, aftur á móti, reynir að höndla viðföng sín
beint. Hún reynir að veiða þau í net táknkerfis og því minni sem
möskvar þess eru því betra. Þetta er ólíkt mýtunni, sem hleður bara
utan á. Mýtan virðist nálgast fyrirbærið en vinnur í raun bara á sviði
táknkerfisins. Þó eru þær að útskýra eitthvað og veita okkur ein-
hverskonar skilning. Það er þess vert að velta því fýrir okkur hvort
vísindaleg aðferð nálgist fýrirbærið raunverulega eða hvort hún
virðist bara gera það - eins og mýtan. En það er reyndar ýmislegt
sem mælir gegn þeirri kenningu. Tökum dæmi. Ég helli mjólk í tvö
ólík glös og fæ mér sopa úr hvoru þeirra. Þá kemur í ljós að við það
að drekka úr öðru þeirra myndast minna söturhljóð en úr hinu.
Sannar það þá ekki að það sé til heimur handan hugmyndafræði, að
eitthvað sé ekta (í öllu fálli glös). Og það alveg burtséð frá því hvort
það sé ekki hugmyndafræði fólgin í því að vilja drekka mjólk laus við
f söturhljóð.
Svona geta einfaldar tilraunir með hversdagslegar matvörur
svarað erfiðum heimspekilegum spurningum. Reynum aðra.
Finndu mjólkurfernu og haltu á henni. Þanneð heldur þú
á mjólkinni, eða hvað?5 Þú finnur áferð fernunnar, gefur hún
eitthvað um mjólkina til kynna? Þú lest utan á fernuna og skoðar
myndirnar, er þar nokkuð sem gefur þér færi á að kynnast mjólk-
j inni betur? Samband fernunnar og vökvans í henni samsvarar
nokkurnveginn sambandi táknsins úr fýrsta stigs táknkerfinu,
5 Revndar gerurn við ekki svo skýran greinarmun á feraunni og innihaldi hennar í
daglegu tali. Við segjum bara að við tökurn upp mjóikina en eigum barði femuna og
vökvann.