Torfhildur - 01.04.2007, Page 52
Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir
( sjálfemyndir eða uppstillingar þar sem hún er fyrirsæta sjálfe
síns og gerir sig þannig að listaverki til að flýja sjálfið? Myndir
Cahun sem titlaðar eru sjálfsmyndir eru vissulega myndir
af listakonunni sjálfri en sýna flestar annað en persónu
| hennar.
Lucy Schwob (1894-1954) fæddist í Nantes í Frakklandi en lifði
og starfaði mestan hluta lífs síns með ástkonu sinni í París, þar sem
hún nam við Sorbonne-háskóla, og á eyjunni Jersey við strendur
Normandi. Hún var fyrst og fremst rithöfundur en hefur í seinni tíð
orðið frægari sem ljósmyndari. Hún var virkur þátttakandi í and-
spyrnuhreyfingum í París, skrifaði greinar og myndskreytti bækur
og rit áður en það varð að aðalsmerki súrrealistanna. Lengi vel
vann hún í anda súrrealistahreyfingarinnar sem á upphaf að rekja
til Parísar í upphafi þriðja áratugarins. Stefnan gekk út á að eyða
mörkum draums og veruleika, mörkum innri og ytri heims og að
brjóta niður skilin milli kynjanna. Þannig fór að hún tók sér nafnið
Claude Cahun, nafn sem gengur jafnt fyrir bæði kyn. Cahun tók
virkan þátt í avant-garde leikhúsinu í París á þriðja og fjórða ára-
tugnum, jafnt í hlutverkum karla og kvenna. Árið 1932 gekk hún
formlega til liðs við hópinn, ein fárra kvenna, og varð þá náin vinur
og samstarfefélagi upphafemanns hreyfingarinnar, André Breton.
Allt sitt líf þjáðist Cahun af lystarstoli og þunglyndi og henni
leið illa í eigin líkama og vann markvist að því að vera önnur en
hún sjálf. Nafnbreytingin og hvernig hún skapaði sér ímynd með
útklæðnaði var hennar leið frá eigin sjálfi.
Myndin Sjálfsmynd (í Barbe Bleu búningi) er lítil, svarthvít ljós-
mynd, ekki nema 11 sentímetrar á hæð og 9 sentímetrar á breidd.
Myndin lítur út fyrir að vera tekin á stofu en margt bendir til þess
að hún sé tekin á leiksviði. Myndbyggingin er einföld; fyrirsæta er
miðlæg við dökkan bakgrunn. Bakgrunnurinn rammar á sterkan
hátt inn myndefnið og dregur fram ljósari liti í klæðnaði fyrirsæt-
unnar. Lýsing á myndefnið verður einnig til þess að kalla fram
mikla skerpu og skil milli litatóna. Vegna þess hve einföld mynd-
byggingin er skiptir hvert smáatriði miklu máli. Fellingar tjaldsins
á bak við fyrirsætuna mynda lóðréttar línur andstætt náttúrulegum