Torfhildur - 01.04.2007, Side 113
Bakstur - smásaga
mig.“ Hann otaði bókinni að mér. Ég tók við henni og fletti upp að
hjónabandssælu. „Sykur, hveiti, haframjöl, smjör, matarsódi, egg og
rabarbarasulta,“ las ég skýrt og greinilega.
„Pabba þótti hjónabandssæla afskaplega góð.“ sagði Vladimir.
„Hann sagði að honum hlýnaði alltaf um hjartaræturnar þegar hann
kom heim til mömmu og fann lyktina af nýbakaðri kökunni mæta sér
úti á ganginum. „Er sæla?“ spurði hann alltaf og breitt bros lék um
varir hans.“ Vladimir opnaði ísskápinn, greip egg og setti á borðið
hjá hveitinu og sykrinum.
Það var svolítið ruslaralegt í eldhúsinu. Vanalega var allt í röð
og reglu, en Vladimir hafði greinilega ruglað þeirri reglu þegar hann
byrjaði að baka kökuna. í leit að matarsóda og haframjöli ruslaði
Vladimir til í skáp sem héklc íyrir ofan eldavélina og í atganginum
duttu nokkrir kryddstaukar niður á gólfið, en Vladimir tók varla
eftir þeim. „Nei, sjáðu, bér er estragon!“ kallaði hann til mín í miðri
leitinni. „Heldurðu að það séu einhver not fyrir það?“ Lolcs fann
hann dollu af matarsóda og Solgiyn haframjölspakka. Hann staflaði
þessu öllu á eldhúsborðið þannig að varla var nokkurt pláss eftir til
að vinna á.
„Hvers vegna ertu eiginlega að baka köku, ég hélt að Gudda sæi
alfarið um þá deild?“ spurði ég.
Vladimir bjó til pláss á borðinu með því að ýta vörunum til hliðar,
þá tók hann skálina og setti á mitt borðið. „Gudda er hjá lækninum
og mig langar til að hafa kökuna tilbúna þegar hún kemur aftur.“
Hann blandaði saman þurrefnunum, hrærði þau saman með stórri
trésleif. „Hvað á ég að gera næst?“ spurði hann.
„Þá er það smjörið og eggið.“
Þegar smjörið fór út í skálina breyttist blandan til muna, varð
gulleitari og fór að hanga saman. Líklega hefði allt deigið breyst
í heilstæða kúlu ef eggið hefði einnig ratað í skálina, en þegar
Vladimir bugðist slá egginu við brúnina til að opna það notaðist hann
við of mikinn kraft. Eggið brotnaði í höndunum á honum og rauðan
og hvítan láku niður eftir skálinni utanverðri og dreifðust um borðið
og út á gólf.
„Þetta var eina eggið sem við áttum,“ sagði hann vonsvikinn um
leið og hann þurrkaði hendurnar með viskastykki.
i
j