Torfhildur - 01.04.2007, Side 160
Áuðu r H aUdórsdótti r
gervi er ekki til staðar á undan sjálfsverunni. Til að staðfesta sjálft
sig verður kyngei-við að endurtaka sig aftur og aftur, en þar kemur
óstöðugleikinn í ljós. Ef að þörf er á stöðugri staðfestingu, hversu
eðlileg eru þá kyngervin?18
Butler bendir á að ekki sé til neitt sem heitið getur „eðlilegt“ án
þess að andstæða þess, hið „óeðlilega“ sé einnig til staðar. Hugmyndir
sínar byggir hún á kenningum Michel Foucault um að gagnkynhneigð
sé háð því að til sé skýrt skilgreind samkynhneigð, sem gagnkyn-
hneigðin getur aðskilið sig frá og bent á sem andstæðu sína. En málið
er ekki svo einfalt, því um leið og andstæðan hefur verið sköpuð
verður til óþægilegt misvægi; ef ekki er til skýrt afmörkuð samkyn-
hneigð er gagnkynhneigðin í hættu. Á þennan hátt treystir gagnkyn-
hneigðin á samkynhneigðina til að sýna fram á „eðlileika“ sinn. Butler
segir að gagnkynhneigð forræðis-hyggja þurh á að halda og viðhaldi
kyngervi sem tvenndarlcerfi þar sem hið karllega er andstætt hinu
kvenlega og þetta andstæðupar verði til í gagnkynhneigðri (kynferðis-
legri) þrá.19 Þannig falla kynferðissambönd fólks af sama kyni út
fyrir ramma kynjatvenndarhyggju. Þrátt íyrir að gengið sé út frá
því að lcyngervin séu tilbúningur er ekki hægt að velja sér kyngervi
eftir hentugleika í hvert skipti, eða eins og Dagný Kristjánsdóttir
segir í grein sinni „Hvað er á bak við dyrnar þröngu? Um skáldsögur
Kristínar Ómarsdóttur“ 20:
„[...] kyngervin verða til í gjörningi sem er hluti af hinni
viðteknu kvnjatvíhyggju, við veljum ekki þessi gervi
eða hlutverk og þaðan af síður leikritið en við getum
með harðfylgni tekið okkur ný hlutverk eða leikið þau
sem við erum í á missannfærandi hátt. Við getum
ýkt þau og skopstælt eins og drag-drottningar og
drag-kóngar gera, skopstælingin er byltingarkennd,
uppreisn og mótleikur en einfalt er það aldrei.“
18 „There is no gender identity behind the expressions oí' gender; the ídentítv is
performatively constituted by ttíe very „expressions" that are said to be its resauhs."
Butler, Judittí, 1990: 25.
19 Butler, Judith, 1990: 22-23.
20 Dagný Kristjánsdóttir; „Hvað er á bakvið dyrnar þröngu? Um skáldsögur Kristínar
Ómarsdóttur", Kynjafræði — Kartlagningar, Ra nnsóknastofa í kven na- og kynjafræðum,
Reykjavík, 2004. Bls. 51-61. (56)