Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 41
39 Ritrýnd grein | Peer review Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 AÐFERÐ Syrgjendur eru viðkvæmur hópur sem hefur orðið fyrir áfalli og upplifað þjáningu. Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði var notaður til að svara rannsóknarspurningunni en hann verður oft fyrir valinu í rannsóknum á Norðurlöndunum þegar rannsakaðir eru viðkvæmir hópar sem hafa upplifað áföll og þjáningu, vegna siðferðislegrar áherslu í aðferðafræðinni (Dowling og Cooney, 2012) þar sem áhersla er lögð á að líta á hvern þátttakanda með virðingu, hlýju og hógværð (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Þátttakendur Við val á foreldrum var notast við sjálfboðaliðaúrtak og var auglýst eftir foreldrum í gegnum Píeta sjálfsvígsforvarnarsamtökin. Þegar hópurinn er ekki fyrir fram þekktur er gjarnan notast við slíkt úrtak. Öllum gefst kostur á þátttöku og með því fást oft einstaklingar með ólíka reynslu. Ókostur við sjálfboðaliðaúrtak getur hins vegar verið að þeir einstaklingar sem veljast séu ekki dæmigerðir fyrir þýðið þar sem þátttaka í rannsókn gegnum sjálfboðaliðaúrtak krefst frumkvæðis, áræðni og áhuga (Katrín Blöndal og Sigríður Halldórsdóttir, 2013). Skilyrði fyrir þátttöku var að vera foreldri, móðir eða faðir, sem misst hafði son eða dóttur í sjálfsvígi og var hjónum frjálst að vera saman í viðtali. Í kjölfar auglýsingar eftir þátttakendum höfðu tíu foreldrar samband, sjö mæður og þrír feður, og lýstu yfir vilja til þátttöku. Foreldrarnir voru á aldrinum 40-65 ára þegar viðtölin fóru fram. Aldursbil sona/dætra var 17-37 ár þegar þau létust og voru 3-24 ár liðin frá andláti. Sjá yfirlit yfir foreldrana í töflu 1. Eins og sjá má í töflunni var meðaltími frá andláti 4 ár fyrir utan hjá einni móður, Örnu, þar sem 24 ár voru liðin frá andláti. Ákveðið var að hafa hana með í rannsókninni en hafa þann fyrirvara á þátt- töku hennar að margt kynni að hafa breyst í kerfinu frá því hún upplifði sjálfsvíg sonar síns sem þá var 17 ára. Gagnasöfnun og gagnagreining Gagnasöfnun fór fram með samræðum milli fyrsta höfundar sem er hjúkrunarfræðingur (hér eftir rannsakandi) og foreldranna þar sem hvert foreldri var um leið meðrannsakandi. Tekin voru samtals 13 viðtöl við tíu foreldra; einstaklingsviðtöl við fjórar mæður og þrjú viðtöl þar sem foreldrar voru saman í viðtalinu. Tvö viðtöl voru tekin við sex foreldra en eitt viðtal við ein hjón. Viðtölin voru tekin á rúmlega eins árs tímabili og fóru þau fram á heimilum foreldranna að þeirra ósk. Viðtalsáætlun, byggð á rannsóknarspurningunni og undirspurningum, var höfð til hliðsjónar en viðtölin voru í samræðustíl. Viðtölin voru rituð orðrétt og þess gætt að þau væru ekki persónugreinanleg með því að breyta öllum nöfnum og gæta þess að tilgreina ekki staðsetningar eða önnur kennileiti. Við vinnslu rannsóknarinnar var farið í gegnum 12 meginþrep Vancouver-skólans þar sem megináherslan var á þemagreiningu ásamt sundurgreiningu og afbyggingu (e. deconstruction) og síðan samþættingu og uppbyggingu (e. reconstruction). Sjá töflu 2 yfir 12 meginþrep Vancouver-skólans og hvernig þeim var fylgt í rannsókninni. Sjö vitrænir meginþættir eru endurteknir í öllum þrepunum (mynd 1). Tafla 1. Yfirlit yfir þáttakendur Rannsóknarnafn Sonur/dóttir Aldur við andlát Árafjöldi frá andláti Arna Sonur 17 ára 24 ár Brynja Sonur 18 ára 5 ár Sunna Sonur 23 ára 4 ár Valdís Sonur 28 ára 5 ár Hrafn Sonur 28 ára 5 ár Katrín Sonur 19 ára 3 ár Iðunn Dóttir 26 ára 5 ár Jón Dóttir 26 ára 5 ár Helena Sonur 37 ára 3 ár Þór Sonur 37 ára 3 ár Tafla 2. 12 meginþrep Vancouver-skólans í fyrirbæra- fræði og hvernig þeim var fylgt í þessari rannsókn Þrep í rannsóknarferlinu Hvernig þeim var fylgt í þessari rannsókn Þrep 1. Val á samræðufélögum (úrtak). Tíu foreldrar voru valdir með sjálf- boðaliðaúrtaki, 3 feður og 7 mæður (þar af þrenn hjón/pör). Allir þátt- takendur fengu dulnefni. Þrep 2. Undirbúningur hugans (áður en samræður hefjast). Hugmyndir og tilgátur rannsakanda lagðar til hliðar. Þrep 3. Þátttaka í samræðum (gagnasöfnun). Staðfesting 1 Tekin voru tvö viðtöl við 6 foreldra, eitt viðtal við hjón, samtals 13 viðtöl. Túlkanir rannsakanda voru staðfestar í viðtalinu sjálfu. Þrep 4. Skerpt vitund varðandi hug- myndir og hugtök. Samræður voru hljóðritaðar og unnið var úr þeim samhliða gagnasöfnun. Þrep 5. Þemagreining (kóðun). Finna lykilhugtök og lykilsetningar og finna merkingu þeirra. Frásagnir voru greindar í meginþemu og undirþemu. Þrep 6. Að smíða greiningarlíkan fyrir hvern þátttakanda. Frásögnum foreldra raðað upp í grein- ingarlíkan fyrir hvern og einn. Þrep 7. Staðfesting á hverju greiningarlíkani með viðkomandi þátttakanda. Staðfesting 2 Hver þátttakandi staðfesti sitt greiningarlíkan með athugasemdum sem rannsakandi lagfærði í kjölfarið. Þrep 8. Heildargreiningarlíkan er smíðað úr öllum einstaklings- greiningarlíkönunum. Þróað var heildargreiningarlíkan úr öllum greiningarlíkönum þátttakenda til að fá heildstæða yfirlitsmynd (heildargreiningarlíkan). Þrep 9. Heildargreiningarlíkanið borið saman við rannsóknargögnin (rituðu viðtölin). Staðfesting 3 Samræmi tryggt með yfirlestri á viðtölum og endurtekinn samanburður gerður á ný. Þrep 10. Kjarni fyrirbærisins settur fram sem lýsir fyrirbærinu (niðurstöðum í hnotskurn). Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar. Þrep 11. Staðfesting á heildargreining- arlíkani og meginþema með einhver- jum þátttakendum. Staðfesting 4 Þrír foreldrar staðfestu heildargrein- ingarlíkanið með athugasemdum sem rannsakandi lagfærði í kjölfarið. Þrep 12. Niðurstöður rannsóknarinnar skrifaðar þannig að raddir allra heyrist. Trúverðugleiki rannsóknar aukinn með því að vitna beint í alla þátttakendur að einhverjum hluta í rannsókninni. Mynd 1. Vitrænn vinnuferill Vancouver-skólans í fyrirbærafræði 1. Að vera kyrr 2. Að ígrunda 3. Að koma auga á 4. Að velja 5. Að túlka 6. Að raða saman 7. Að sannreyna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.