Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 64
62 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Gæði kennslu um kynheilbrigði: Fræðsluþarfir
Mat þátttakenda á því hversu vel kennslan um kynheilbrigði mætti
fræðsluþörfum þeirra var skoðað með fjórum spurningum (tafla 4).
Kí-kvaðrat próf sýndi fram á marktækan mun á milli þeirra sem
töldu kennslu vera góða og þeirra sem töldu hana síðri á öllum
spurningunum. Þeir sem höfðu fengið góða kennslu voru líklegri
til að vera sammála þeim. Fram kom að 79,3% þeirra sem töldu
sig hafa fengið góða kennslu um kynheilbrigði voru sammála því
að hún hefði komið til móts við fræðsluþarfir þeirra, samanborið
við 6,5% þeirra sem fengu ekki góða kennslu (p<0,001). Eins töldu
89,3% þeirra sem höfðu fengið góða kennslu að þeir hefðu fengið
góðar upplýsingar um getnaðarvarnir á móti 40,7% þeirra sem
töldu sig hafa fengið síðri kennslu (p<0,001). Þá voru 77,3% þeirra
sem töldu kennslu vera góða sammála því að hafa fengið góðar
upplýsingar um kynsjúkdóma á móti 26,1% þeirra sem töldu hana
síður góða (p<0,001). Að lokum sögðust 84% þeirra sem töldu
kennslu vera góða sammála því að hafa fengið góð svör við sínum
spurningum (p<0,001) samanborið við 16,7% sem sögðu hana
síður góða.
Gæði kennslu um kynheilbrigði: Kynferðisleg
sjálfsvirðing
Skoðað var hvernig þátttakendur svöruðu spurningum um
kynferðislega sjálfsvirðingu út frá því hvort þeir töldu kennsluna
hafa verið góða eða ekki. Kí-kvaðrat próf sýndi að tvær spurningar
af fimm voru marktækar en ein til viðbótar var nálægt því að
vera marktæk. Marktæku spurningarnar voru: „Ég á auðvelt með
að standa með sjálfri/u/um mér þegar setja þarf mörk í kynlífi“
(p<0,05) og „Ég er óhrædd/tt/ur að standa á mínu ef kynlífsfélagi
þrýstir á mig“ (p<0,05). Meirihluti, eða 92,4%, þeirra þátttakenda
sem taldi kennslu hafa verið góða var sammála (frekar/mjög) því
að eiga auðvelt með að standa með sér þegar setja þarf mörk í
kynlífi á móti 83,5% þeirra sem töldu hana hafa verið síðri. Af þeim
sem töldu kennslu hafa verið góða voru 80,4% þeirra sammála því
að vera óhrædd/tt/ur að standa á sínu ef kynlífsfélagi þrýstir á á
móti 62,3% af þeim sem töldu hana síðri.
Gæði kennslu um kynheilbrigði að mati framhaldsskólanema
Tafla 4. Gæði kynfræðslunnar eftir fræðsluþörfum
Ekki góð
kynfræðsla
Góð kyn-
fræðsla
Kí-
kvaðratᵃ df p-
gildi
N n % n %
Komið til móts
við kennslu-
þarfir
366
Ósammála 124 107 69,9 17 8,0 203,475 2 0,000*
Hvorki né 63 36 23,5 27 12,7
Sammála 179 10 6,5 169 79,3
Góðar upp-
lýsingar um
getnaðar-
varnir
387
Ósammála 71 63 38,9 8 3,6 109,406 2 0,000*
Hvorki né 49 33 20,4 16 7,1
Sammála 267 66 40,7 201 89,3
Góðar upp-
lýsingar um
kynsjúkdóma
386
Ósammála 112 89 55,3 23 10,2 112,099 2 0,000*
Hvorki né 58 30 18,6 28 12,4
Sammála 216 42 26,1 174 77,3
Góð svör við
spurningum 369
Ósammála 64 59 39,3 5 2,3 173,177 2 0,000*
Hvorki né 96 66 44,0 30 13,7
Sammála 209 25 16,7 184 84,0
p<0,001*
Ósammála= Frekar og mjög ósammála, Sammála= Frekar og mjög sammála
Tafla 5. Gæði kynfræðslunnar eftir mati á kynferðislegri
sjálfsvirðingu
Ekki góð
kynfræðsla
Góð kyn-
fræðsla
Kí-
kvaðratᵃ df p-
gildi
N n % n %
Ef einstakling
líður illa í
miðjum
ástarleik má
hætta við
224
Mjög
ósammála 7 4 3,8 3 2,5 9,221 4 0,056*
Frekar
ósammála 13 9 8,7 4 3,3
Hvorki né 21 14 13,5 7 5,8
Frekar
sammála 61 22 21,2 39 32,5
Mjög sammála 122 55 52,9 67 55,8
Finnst hafa
stjórn á hvort
eigi að hafa
kynmök
221
Mjög
ósammála 2 1 1,0 1 0,9 5,476 4 0,242
Frekar
ósammála 5 4 3,8 1 0,9
Hvorki né 24 15 14,4 9 7,7
Frekar
sammála 61 25 24,0 36 30,8
Mjög sammála 129 59 56,7 70 59,8
Finnst hafa
stjórn á hvers
konar kynlífi
einstakl. taki
þátt í
220
Mjög
ósammála 1 1 1 0 0 5,578 4 0,233
Frekar
ósammála 2 1 1 1 0,9
Hvorki né 11 8 7,7 3 2,6
Frekar
sammála 61 24 23,1 37 31,9
Mjög sammála 145 70 67,3 75 64,7
Finnst auðvelt
að standa
með sér/setja
mörk í kynlífi
221
Mjög
ósammála 2 2 1,9 0 0,0 10,628 4 0,031*
Frekar
ósammála 6 6 5,8 0 0,0
Hvorki né 18 9 8,7 9 7,6
Frekar
sammála 66 26 25,2 40 33,9
Mjög sammála 129 60 58,3 69 58,5