Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 82

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 82
80 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 að bera ábyrgð á eigin heilsu. Undirþemað „reynsla sem dregur úr öryggistilfinningu“ og flokkarnir: a) óöryggistilfinning; b) þekkingarleysi á sykursýki tegund 2 og afleiðingum hennar; c) vantrú á eigin getu. Sjá mynd 1. Öryggistilfinning og vellíðan Öllum þátttakendunum fannst mikilvægt að koma í reglulegt sykursýkiseftirlit hjá fagaðila. Það kom fram í viðtölum við þátttakendur að þau voru sátt við að heilsugæslan sæi um sykursýkiseftirlitið. Nefndu þátttakendur mikilvægi utanumhalds og að fagaðili væri að fylgjast með þeim. Það að fagaðili sæi um að boða þau reglulega í tíma í sykursýkiseftirlit skipti þau miklu máli við að fylgjast með þróun sykursýkinnar. Utanumhaldið og eftirlitið veitti þeim öryggi og vellíðan. Lóa sagði: „... mér finnst svo mikill munur að það sé hringt svona í mig og mér gefinn tími … mér finnst ég þá skipta máli“ og „... mér finnst bara mjög gott að vera í þessu utanumhaldi ... þessi öryggistilfinning“ (Fríða). Hluti af reglubundnu sykursýkiseftirliti er að fylgjast með lífsmörkum, hæð, þyngd og blóðprufum þar sem mældur er langtímablóðsykur og fastandi blóðsykur. Þátttakendurnir voru sammála um að utanumhaldið og eftirlitið hjálpaði þeim við að fylgjast með þróun sjúkdómsins hjá sér, eins og Raggi sagði: „... maður fær alltaf þessar mælingar í þessum tímum þá fær maður alltaf einhverja viðvörun ... vekur mann svoldið upp ...“. Það að hitta fagaðila reglulega og fara yfir niðurstöður blóðprufa og annarra mælinga sem og bara að ræða málin, jafnvel bara um daginn og veginn, var hluti af því að veita þeim aukna öryggistilfinningu. Þá fannst þeim mikilvægt að læknirinn þekkti þau og þeirra sjúkdómssögu. Eins og Svenni talaði um: „Ég held það að það sé mjög mikilvægt líka að læknirinn manns þekki mann ...“. Að vera upplýstur og meðvitaður um sjúkdóminn Fræðsla og leiðbeiningar eru mikilvægur þáttur í sykursýkis- móttökunni. Þátttakendurnir höfðu fengið fræðslu um mataræði og hreyfingu og fannst þeim öllum hún gagnleg og nauðsynleg eins og Svenni sagði: „Maður finnur það bara að hún (fræðslan) skiptir bara miklu máli ...“. Þátttakendurnir voru sammála um að fræðslan og leiðbeiningarnar sem þau hefðu fengið hefði nýst þeim vel við að takast á við sykursýkina. Raggi (82 ára): „Og það eru þessar leiðbeiningar sem náttúrulega hafa orðið til þess að ég er enn þá að vinna ...“. Hjá einum þátttakenda hafði maki hans tekið þátt í eftirlitinu og fræðslunni og fannst honum það mjög mikilvægt og hjálplegt. Það að einhver annar í fjölskyldunni hefði fengið fræðslu um sykursýki tegund 2 jók öryggistilfinninguna: „Já það eru mjög góðar leiðbeiningar sem við fáum þarna og konan mín er tekin með, svona til þess að hún viti hvað, svo hún geti passað mig ...“ (Raggi). Hluti af því að vera upplýstur og meðvitaður um sjúkdóminn var það að ná sér sjálfur í fræðslu og vita hvar á að leita að henni, eins og Dísa sagði: „Svo getur maður bara sjálfur lesið á netinu ...“. Bera ábyrgð á eigin heilsu Þátttakendurnir gerðu sér grein fyrir ábyrgð sinni á eigin heilsu. Að fylgja fyrirmælum var hluti af því þó að þeir segðu að þeim takist misvel að fylgja fyrirmælum. Mataræði og hreyfing voru þættir sem þátttakendur drógu fram sem þætti sem þeir gátu haft áhrif á meðal annars vegna þeirra fræðslu sem þeir höfðu fengið. Hrafn sagði: „... ég er mjög meðvitaður um hvað ég má borða og er búinn að vera það svolítið lengi“. Fram kom í viðtölum þeirra að aldur og reynsla af því að hugsa um og lifa með sjúkdóminn í mörg ár hefur kennt þeim hvað þeir sem einstaklingar þoldu. Dregið var fram að það að þekkja eigin líkama og hvað hann þolir skipti máli eða eins og Freyja nefndi: SS2 er alvarlegur sjúkdómur Mynd 1. Sýnir niðurstöður rannsóknarinnar settar upp í hugtakakort. vera meðvitaður um lífsstílstunda líkamsrækt bera ábyrgð á eigin heilsu aukin meðvitund um að sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega þekkja líkama sinn vera meðvitaður um mataræði fara eir leiðbeiningum afla sér sjálfur upplýsinga fylgjast sjálfur með nýjustu upplýsingum fræðsla og leiðbeiningar fræðsla um mataræði fræðsla um hreyfingu fræðsla um lyf (virkni þeirra og aukaverkanir) fræðsla um andleg og líkamleg einkenni SS2 að vera upplýstur og meðvitaður um alvarleika sjúkdómsins þekkingarleysi á SS2 og afleiðing hennar skert minni brenglað tímaskyn fylgja ekki fyrirmælum langt á milli eirlitstíma mikil starsmannavelta samskipta örðugleikar milli heilbrigðisstofnana ófullnægjandi fræðsla um sykurfall ónóg fræðsla um þróun sykursýki 2 ófullnægjandi fræðsla um aukaverkanir lyfja vantrú á eigin getu óöryggistilfinning eirlit eirlit með lyfjum blóðprufur líkamsskoðun öryggistilfinning og vellíðan vera kallaður inn í blóðprufu og eirlit hitta fagaðila og fara yfir málin utanumhald að einhver sé að fylgjst með reynsla sem dregur úr öryggistilfinningu reynsla sem eykur öryggistilfinningu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.