Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 10

Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 10
issinnuðum náttúruverndar- mönnum". í þessu samhengi má finna innfluttri tegund það til for- áttu ef hún reynist duglegri og á- sæknari landgræðslutegund en þær innlendu. Þá fer að styttast í að hún verði fórnarlamb teg- undaofsókna; uppnefnd „grænn minkur" (IngólfurÁ. Jóhannesson 1993), og leidd á höggstokkinn, eins og gerst hefur í Skaftafelli (sjá Brynjólfur Jónsson 1992; Guðrún Jónsdóttir 1992). Hvernig á að standa að vali á innfluttri tegund til land- græðslu? Þegar leitað er fanga erlendis að plöntutegund til landgræðslu, eru ýmsir kostir fyrir hendi, sem þó útiloka ekki hver annan. Þeir eru: 1. Að skilja hlutverk tegundar í vistkerfi heimaslóðanna. Að vissu marki má draga ályktanir um eðliskosti og notagildi inn- fluttrartegundar í íslenskri land- græðslu með því, í fyrsta lagi, að þekkja loftslagsskilyrði á upp- runastað (hvort þau samsvari skilyrðum á uppgræðslusvæðum hérlendis), og í öðru lagi, að skilja það hlutverk sem hún gegnir í vistkerfi heimaslóðanna. Ef tegundin gegnir hlutverki frumherja, og er nægjusöm á raka- og næringarskilyrði jarð- vegs (klæðir t.d. land í kjölfar hopandi jökla eða skriðufalla), má ætla að hér sé komin verð- mæt tegund til notkunar í ís- lenskri landgræðslu. 2. Að afla reynslu frá öðrum löndum. Skyggnast má inn í þá reynslu sem fengist hefur af teg- undavali til uppgræðslu í öðrum löndum. Víða á norðlægum slóð- um er unnið að uppgræðslu á námasvæðum, þar sem aðstæð- um svipar að nokkru til þeirra sem er að finna á örfoka landi á íslandi. Sjaldnast er þó auðvelt að nota reynsluna frá erlendum námasvæðum við tegundaval fyrir íslenskar aðstæður, bæði vegna ólíks loftslags, og vegna þess að á námasvæðum er helsta hindrun í vegi skjóts árangurs af uppgræðslu af öðrum toga, þ.e. þungmálmamengun jarðvegs. Sums staðar á Englandi er t.d. að finna koparnámur frá tímum Rómverja, sem enn eru að mestu gróðurvana vegna koparmengun- ar (Savill and Evans 1986, bls. 141). 3. Að afla innlendrar reynslu. Áður en ráðist er í notkun teg- undar til landgræðslu verður að reyna á þolrif hennar á heima- velli; með útiprófunum við sömu aðstæður og ætlunin er að bjóða henni upp á í framtíðinni. Helst þyrftu útiprófanir að fara fram við sem breytilegust veðurfarsskil- yrði, en þau eru afar breytileg hérlendis. Oft getur munað miklu í hitafari, lengd vaxtartíma, vind- skilyrðum og úrkomu innan og milli héraða. Notkun trjáa eða runna í land- græðslu skilar bestum árangri, þegar vel hefur verið vandað til vals á tegund, erfðahópi (kvæmi) innan tegundar, eða einstaklingi innan kvæmis fyrir hvern vaxtar- stað. Þetta val fer fram með því að finna (með prófunum) teg- undina eða hópinn innan teg- undarinnar sem best er aðlagað- ur aðstæðum á hverjum vaxtar- stað. Oft má greina skýran mun í aðlögun að staðbundnum að- stæðum eftir því, til hvaða staðar fræ er sótt. Er þetta fyrirbæri vel- þekkt hjá innlendum (svo sem hjá birkinu) jafnt sem innfluttum trjátegundum. Mjög er þó breyti- legt eftir tegundum, hversu auð- velt reynist að finna hentug kvæmi til landgræðslu. Oftast er ekki hægt að skera úr um gagn- semi tegundar án undangeng- inna útiprófana með fjölbreyti- legu safni margra einstaklinga af ólíkum uppruna. Á þetta oftast við um tré og runna. Þess eru þó dæmi, að tegund hafi unnið sér sess í landgræðslu, án þess að þurft hafi að kosta neinu til und- angenginna prófana. Má hér nefna sem dæmi að nánast öll sú lúpína, sem hér er að finna í ræktun, á rætur sínar að rekja til einnar rótarhnyðju og nokkurra fræja, sem Hákon Bjarnason, fyrrum skógræktarstjóri, safnaði á einum stað í Alaska haustið 1945 (Hákon Bjarnason 1945). Útiprófanir geta verið með ýmsu sniði; allt frá því að vera til- tölulega einfaldar athuganir, yfir í það að vera vel skipulagðar, umfangsmiklar samanburðartil- raunir. í einföldum athugunum er einungis spurt, hvort tiltekin tegund eða einstaklingur hennar lifi og þrffist á tilteknum vaxtar- stað. Slíkar tilraunir eru ódýrar í framkvæmd og geta gefið á- kveðnar vísbendingar, sem gagn- ast við skipulag frekari tilrauna, þó að örðugt geti reynst að yfir- færa reynsluna af þeim yfir á stærri landssvæði. Hér má nefna sem dæmi, að góð reynsla af þrifum runnategundar f garðrækt getur nýst sem vísbending um þol hennar á tilteknu veðurfars- svæði, áður en hafist er handa við prófun hennar í landgræðslu á sama svæði. Skipulagðar próf- anir á fjölbreytilegu safni erfða- hópa (klóna eða kvæma) einnar eða fleiri tegundar við fjölbreyti- leg skilyrði eru mun dýrari kost- ur. Þó að slíkar tilraunir séu dýr- ari í framkvæmd, geta þær gefið áreiðanlegri svör um, hvað reyn- ist best og við hvaða skilyrði. Nokkrar innfluttar tegundir sem vænlegar eru til land- græðslu Auk þeirra tegunda sem þegar hafa sannað gildi sitt í land- græðslu (t.d. melgresi, lúpfna, birki, loðvíðir, rússalerki), má benda á nokkrar tegundir sem eru líklegar til að geta lagt sitt af SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.