Skógræktarritið - 15.12.1993, Side 21
framboði yrði plantan með lítil
laufblöð, jafnvel gæti átt sér stað
einhver greinadauði.
Væri tréð fulllaufgað og fyrr-
nefndar rætur höggnar væri meiri
hætta á verulegum skemmdum.
Tréð væri búið að þroska lauf-
blöð með tilliti til framboðs
vatns. Um leið og megin-vatns-
öflunarleiðin væri skert væri
hætta á að ekki bærist nægjan-
legt vatn til blaðanna og meiri
eða minni visnun ætti sér stað.
Ástand trésins fer því eftir hversu
mikils vatns rótarhár á rótar-
greinum ofar í jarðveginum geta
aflað. Það tæki tréð væntanlega
eitt ár eða fleiri að þroska nægi-
legan fjölda nýrra rótargreina og
rótarhára svo eðlilegur vöxtur
gæti átt sér stað, hafi það ekki
orðið fyrir varanlegum skemmd-
um.
Rótarskurður
Rótarskurður er gerður til að
auðvelda flutning stærri plantna.
Skerðingin stuðlar að þéttara
rótarkerfi, vatnsupptaka verður
virkari nær stofni og rótarhnaus
gliðnar sfður sundur f flutning-
um.
Rótarskurður er oftast fram-
kvæmdur á vorin meðan plantan
er í dvala eða áður en brum
springa út.
Einnig má skerða rætur að
hausti að loknu lauffalli en það
er ekki talinn kostur umfram vor-
skurð, nema ef vera skyldi hag-
ræðing tímans vegna. Grenitré
eru rótskorin á vorin á sama hátt
°g lauftré en jafnframt þola þau
vel rótarskurð eftir miðjan ágúst
þar sem vitað er að rótarvöxtur á
sér stað eftir þann tfma og allt
fram í september.
En hversu stór þarf rótar-
hnausinn að vera svo flutningur
megi takast? Það er breytilegt og
fer nokkuð eftir stærð trésins en
eitt er vfst, hnausinn má aldrei
verða stærri en svo að flytja megi
tréð hvort sem er með höndum
eða vélum.
Hugsum okkur að flytja eigi um
4 m hátt stakstætt birkitré með
umfangsmikla krónu. Þar sem
takmarka þarf rótarklumpinn
vegna þyngsla eru allar líkur á að
virkasti hluti rótarinnar til vatns-
upptöku verði numinn burt. Best
er ef undirbúningur gæti hafist
a.m.k. 1-2 árum áður en færsla á
sér stað. Ef hafinn væri undir-
búningur 2 árum fyrir flutning er
byrjað á því að grafa rás hringinn
í kringum tréð að hálfu í um
40-50 cm fjarlægð frá stofni, og
dýptin yrði allt að 50-60 cm eftir
rótarkerfi. Rásinni skal halla und-
ir tréð. Hnaus af þessari stærð
ætti að vera meðfærilegur, en þó
tæplega einum manni.
Allar rætur er fyrir verða skulu
sneiddar með bitgóðum verkfær-
um. Síðan er rásin fyllt með
góðri gróðurmold, myndast þá
nýjar rætur frá skertu rótunum og
verða þær sérstaklega virkar til
upptöku vatns og næringar og
þétt rótarkerfi heldur hnausnum
betur saman við flutninginn. Við-
brigðin verða minni þegar á nýja
staðinn er komið.
Hætta er á að plantan geti fok-
ið um koll í miklum stormi þar
sem hún hefur misst hluta af
festu sinni í jarðveginum, því er
mikilvægt að veita henni stuðn-
ing
Ári seinna er sfðan lokið við að
rótskera þann hluta er ósneiddur
var og þá farið að öllu sem fyrr.
Þriðja árið eiga sfðan flutning-
arnir sér stað, en ef aðstæður
leyfa ekki færslu þá heldur síðar,
jafnvel svo munar nokkrum
árum, er rótarskurðurinn ekki
unninn fyrir gýg. En þá er áríð-
andi að viðhalda skerðingunni og
nægir þá oft að stinga beittri
stunguskóflu niður með gamla
sárinu og halda þannig rótarvexti
út frá plöntunni í skefjum. Talið
er að óhætt sé að viðhalda skurði
á ffnrótum nokkrum sinnum yfir
sumartfmann þar sem rótarvöxt-
ur á sér stað af og til allt sumarið.
Ef rótarskurður er gerður ári
áður en færsla á sér stað má
mæla með að grafin sé rás hring-
inn í kringum tréð, höggvið á
rætur en þó skilinn eftir um
fjórðungur rótanna dreift hring-
inn um tréð, sem sjá plöntunni
fyrir lágmarks vatnsöflun, meðan
nýjar rætur eru að myndast.
Ekki er hægt að mæla með að
tré séu flutt án þess að rótar-
skerðing hafi átt sér stað. Þó
verður ekki fram hjá því litið að
slíkir flutningar eru stundum
framkvæmdir sem neyðarúrræði
og það á hærri trjám, með góð-
um árangri.
Ef ekki verður hjá því komist
að að flytja tré sem ekki er rót-
skorið er full ástæða að leita að-
stoðar hjá fagmönnum.
Það er engin gulltrygging að
flutningur takist þótt vel hafi ver-
ið staðið að verki. Flutningi á tré
fylgir alltaf sú áhætta að plantan
veslist upp og deyi. Líkurnar á að
það gerist eru ætíð meiri hjá
stórum plöntum en litlum.
Upptaka
Undir öllum eðlilegum kringum-
stæðum ætti birkið sem rótskor-
ið var fyrst tveimur árum fyrir
flutning að hafa myndað og
þroskað nýjar rætur er auðvelda
plöntunni að dafna á nýjum stað.
Flytja skal tréð áður en það full-
laufgast á vorin, eða eftir lauffall
á haustin. Algengt er að greniteg-
undir séu fluttar til síðsumars og
fram á haust sem og á vori.
Óæskilegt er að framkvæma upp-
töku og flutning í sólskini og
þurrki, því rótarhárin eru við-
kvæm og nái sól að skína á þau
er hætta á að þau skemmist.
Grafið er upp úr rásinni sem
gerð var við rótarskurð og hún
vfkkuð út og dýpkuð lítillega svo
öll vinna verði aðgengilegri. Þeg-
ar búið er að hreinsa vel frá rót-
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
19