Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 45
IÓN GEIR PÉTURSSON
Jólatré og
jólagreinar
Inngangur
Jólatrjáræktun á íslandi á sér um
40 ára sögu. Hafa verið ræktuð
tré vfða um land og þau síðan
höggvin fyrir jólin og seld sem
jólatré í stofur landsmanna. Að
undanförnu hefur þó sala á ís-
lenskum jólatrjám dregist sam-
an.6 u Hefur innflutningur á trjám
frá Danmörku aukist að sama
skapi.l9Ástæður þess eru sjálf-
sagt margar og ekki hægt að
benda á neina einhlíta skýringu.
Eru margar aðrar þjóðir í sömu
sporum og við varðandi innflutn-
ing jólatrjáa og meira að segja
stór skógarþjóð eins og Norð-
nienn flytur inn allt að helming
sinna jólatrjáa frá Danmörku.
Einnig flytja Þjóðverjar, Svíar,
Englendingar og fleiri þjóðir inn
jólatré í stórum stfl frá Dönum.17
I þessari grein ætla ég að gera
grein fyrir sögu jólatrjáa, hvernig
jólatrjáræktunarmálum er háttað
hér á landi, fjalla lítillega um
arðsemi ræktunarinnar og fram-
tíðarmöguleika. Að síðustu fjalla
eg Iftillega um ræktun jólagreina.
Er það tilgangur greinarinnar
að benda á þá möguleika sem
felast í jólatrjáræktun hérá landi.
Eins og staðan er f dag eru flutt
inn fyrir tugi milljóna tré og
greinar sem við ættum hæglega
að geta ræktað hér.
Uppruni og saga jólatrjáa
Kaflinn um uppruna og sögu
jólatrjánna er að mestu fenginn
úrágætri bókÁrna Björnssonar
þjóðháttafræðings, Iól á íslandi
(1963).
Eitt helsta tákn jólahalds um
allan hinn kristna heim og vfðar
er jólatréð. Siðurinn að setja upp
jólatré er tiltölulega nýkominn til
sögunnar og eru ekki nema um
hundrað ár síðan það varð al-
gengt í Evrópu.
Um uppruna jólatrjáa er ekki
vitað með neinni vissu, en elstu
rætur þess má efalaust rekja til
einhverskonar trjádýrkunar. Hið
sfgræna tré hefur löngum vakið
furðu og aðdáun manna og þótt
búa yfir leyndardómum, svo sem
Askur Yggdrasils f norrænni
goðafræði. í Róm var siður í
fornöld að skreyta hús með
grænum greinum um nýárið, eða
gefa það hver öðrum og þótti
það gæfumerki. Hið sama má
segja um mistilteininn á jólunum
í Englandi.
Kristnar hugmyndir um skiln-
ingstré góðs og ills kunna síðan
að hafa blandast eldri kenning-
Skreytt blágrenijólatré. Það er barr-
heldið og ilmar vel.
Mynd: S.BI. 24.12.86.
um. Frá því um 1100 var tekið að
leika helgileiki bæði innan kirkju
og utan, m.a. um sköpun manns-
ins. Stóð þá skilningstréð oftast
á miðju sviðinu og var það sí-
grænt tré og á það hengd epli og
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
43