Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 88

Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 88
skógarfura við jökullæk, sem plantað var 1953, Lifa þar a.m.k. nokkrirtugireinstaklinga. Eru þarna mörg verulega falleg tré. Könglar virtust almennt stórir og vel þroskaðir, og var þeim safn- að. Hæsta tréð sem mælt var f ferðinni var við Jökuilæk, og var það 8,25 m að hæð. Ein sjálfsáin skógarfura fannst, en hún var lús- ug. Sumar skógarfururnar virtust hér nýlega lausar við lús. Á Eiðum lifa nokkur hundruð skógarfurur í Hústjarnarás. Flest trjánna eru í góðum vexti og lausar við óþrif, þrátt fyrir kröpp kjör og skjólleysi. Trén eru flest lágvaxnari og krónumeiri en tré á sambærilegum aldri við jökullæk á Hallormsstað. Aðeins eitt þeirra trjáa sem skoðuð voru reyndist lúsugt. Á Reynivöllum í Suðursveit fundust nokkrar skógarfurur hjarandi, engin falleg, en ein sæmileg. Ein þessara var nokkuð lúsug. í Gjögrum í Mýrdal tóra nokkrir tugir skógarfura, með mestu harmkvælum, af um 600 plöntum sem fóru niður á árunum 1952- 1953 (skv. skrá Skógræktarfélags íslands). Engin þeirra er falleg, nokkrar eru grálúsugar og margar dauðar eða í dauðateygjunum. Á Laugarvatni lifirtöluverður fjöldi af skógarfurum, sennilega nokkur hundruð, af 24.400 sem þarvarplantaðá árunum 1950- 1958 (Baldur Þorsteinsson 1980). Stærstu trén eru ríflega tvær mannhæðir. Þar er að finna fal- leg, krónumikil furutré, en flest eru trén fremur vesaldarleg. Hvað snertir hreysti og vaxtar- hraða stenst ekkert trjánna sam- jöfnuð við þær skógarfurur sem gaf að líta í Ásbyrgi, að Eiðum eða á Hallormsstað. Lús virðist nýlega farin af flestum trjám og nú er ekki nema örlítill lúsavottur eftir á stöku tré. í Haukadal voru settar niður 36.000 plöntur á árunum 1943- 1955 (Baldur Þorsteinsson 1980a). Af þeim er talið að um 1.000 séu enn á lífi (Baldur Þor- steínsson 1980b). Lús er horfin úr skógarfurutrjám í Haukadal, en mörg þeirra bera þess merki að vera nýsloppin undan lús eða eiga í erfiðleikum með að jafna sig eftir fyrri árásir. Hvað snertir samanburð viðÁsbyrgi, Hall- ormsstað eða Eiða gildir sama og um Laugarvatn. Ofan til í Mið- hlfð eru um þrjú hundruð tré og er hið hæsta þeirra 6,80 metrar að hæð. Þarna eru nokkrirtugir fallegra trjáa, en krónumikil (Sig- valdi Ásgeirsson, munnleg heim- ild). í þessum trjám var töluvert af könglum. í stuttu máli má segja að helst megi finna skógarfuru sem hrist hefur af sér lúsina og dafnar vel inn til lands á norðan- og aust- anverðu landinu. Ekki virðist hafa drepist meira af skógarfuru f innsveitum sunnan- og vestan- lands en norðanlands og austan. Á Suður- og Vesturlandi er vöxtur og þrif trjánna þó sýnu lakari, auk þess sem trén eru oft með breiðari krónu og sverari hliðar- greinum. Enn virðist lús vera til staðar f miklum mæli á skóg- arfuru á hafrænni veðurfarssvæð- unum sunnanlands, t.d. í Gjögr- um í Mýrdal. Þótt grannt væri leitað að furulús á stafafuru á nokkrum stöðum þar sem hún var þekkt fyrir fáum árum, bar sú leit engan árangur. Engu lfkara er, en að stafafura sé nú búin að hrista lúsina af sér að fullu. Athyglisvert er, að hvergi á landinu sáust merki um frost- skemmdir á skógarfuru. Á ein- staka stað (einkum í Botnsvatns- reit við Húsavík) sáust þó merki um snjóbrots- og skaraskemmd- ir. Hjá mörgum eldri skógarfur- um virðist fræfall vera orðinn ár- viss viðburður, og er sums staðar að finna dæmi um sjálfsánar plöntur. Á öllum viðkomustöðum var safnað könglum af skógarfuru- trjám. í könglunum var að finna einstöku þroskað fræ. Er ætlun okkar sú, að þetta fræ verði not- að sem samanburðarefniviður við frekari rannsóknir á samspili furulúsar og skógarfuru. Skógarfuran: afturbati eða gálgafrestur? Þeirri spurningu er enn ósvarað hvers vegna skógarfuru hnignaði svo skjótt hérlendis fyrir tilverkn- að lúsarinnar. Hér mætti velta vöngum, og gætu komið til eftir- farandi skýringar: 1. Að skógarfuran hafi hérlend- is átt undir högg að sækja af öðr- um orsökum, og furulúsin hafi aðeins greitt tegundinni náðar- höggið. Með öðrum orðum mætti ætla að hér hafi verið til staðar fjöldi streituvaida (t.d. stuttur og svalur vaxtartími; óhentugur jarðvegur; skortur á sambýlisörverum) sem tegundin (a.m.k. þau kvæmi hennar sem hér voru í ræktun) var illa aðlög- uð, og gert hafi skógarfurutrén næmari fyrir áreitni furulúsar. Þessa tilgátu má styðja með því að benda á eiginleika sem tegundin á sammerkt; kvæmi hennar þola í flestum tilvikum illa flutning milli staða án þess að af hljótist veðurfarsskemmdir, sjúkdómar og mikil afföll. Þannig vegnar kvæmum skógarfuru illa f Noregi og Svíþjóð sem flutt eru frá upprunastað milli breiddar- gráða (Bergan 1988; Eiche 1966) eða milli strand- og meginlands- loftslags innan Noregs (Bergan 1989). í kvæmatilraunum í Skotlandi hefur flestum erlend- um kvæmum tegundarinnar farn- ast illa, í samanburði við þau innlendu (Lines 1987). í saman- burði við t.d. rauðgreni virðist skógarfuran eiga örðugt með þola aðstæður sem ólíkar eru 86 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.