Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 96

Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 96
unni: Til hvers að leggja í kostnað við skjólbeltarækt? Markmið skjólbeltaræktar Skjól eykur uppskeru alls jarðar- gróða, veitir skjól mönnum og skepnum og dregur úr kyndingar- kostnaði íbúðarhúsa. Skjólbelti breyta snjóalögum. Með réttri staðsetningu má draga mjög úr snjóþyngslum á vegum og annars staðar, þar sem þau valda kostnaði eða óþægind- um. Skjólbelti hafa þvf mikla efna- hagslega þýðingu, en hafa auk þess gildi, sem erfitt er að meta til fjár: Flestu fólki líður betur í skjóli en á berangri. Uppbygging skjólbeita Skjólbelti eiga að liggja sem mest þvert á verstu vindáttina. Skjólþelti þarf að vera hæfilega þétt alveg niður undir jörð, svo að það þjóni hlutverki sínu sem best. Danir telja belti hæfilega þétt, þegar greina má hreyfingu handan við það, án þess að sjá- ist, hvað þar er á ferð. Þetta má líka orða þannig, að holuhlutfall- ið eigi að vera 45-50%.' Skjólbelti af þessari gerð eiga að draga úr vindhraða um helming í fjarlægð, sem nemur tífaldri hæð beltisins. Þar sem tilgangur skjólbeltis- ins er fyrst og fremst að draga úr snjóalögum á vegum og ekki er aðstaða til að hafa beltið eins langt frá vegi og æskilegt væri, er rétt að hafa það þéttara. Því þétt- ara sem beltið er, þeim mun fremur hleðst snjórinn upp strax að baki þess og skaflinn verður hár og krappur. Kemur því sterk- lega til álita að notast við sí- grænar tegundir við þessar aðstæður, t.d. sitkagreni. Tegundaval Á Suðurlandi höfum við nær ein- göngu mælt með notkun tveggja trjátegunda,- alaskaaspar (Populus trichocarpa) og alaskavíðis (Salix alaxensis). Þetta takmarkaða teg- undaval hefur helgast af sparn- aðarástæðum og því, að þetta eru hvorttveggja tegundir, sem bændur geta auðveldlega fjölgað sjálfir. Veigamesta ástæðan fyrir þessu tegundavali er samt sú staðreynd, að þessar tegundir vaxa hraðar í æsku en aðrar teg- undir, sem reynsla er fengin af hér á landi, og þola vindálag mjög vel, einkum víðirinn. Auk þess að skýla öspinni í æsku á víðirinn að tryggja, að skjólbeltið verði þétt alveg niður að jörð, en slfkt er mjög mikil- vægt, ef beltið á að veita fullt skjól. Öspinni er hins vegar ætl- að að tryggja að beltið nái sem mestri hæð. f margraða belti mætti hugsa sér að hafa aðrar tegundir en hér hafa verið nefndar í einni röð- inni, þ.e. í þeirri röð, sem veit best við sól og augum fólks. Væri þetta fyrst og fremst gert af fag- urfræðilegum ástæðum. Tegund- ir, sem koma til greina í þessu sambandi, gætu verið t.d.: álmur, hlynur, heggur, yllir, gullregn, birki, selja og reyniviður. Sumar þessara tegunda er aðeins hægt að nota í hinum mildari lands- hlutum. Yllirinn og reyniviðurinn gefa af sér ber, sem eru úrvals fuglafóður. Millibil: 2-3 m millibil milli asp- arplantna er hæfilegt, en I m milli plantna af brúnum alaska- vfði. 3 m gæti verið hæfilegt bil milli raða af ösp. Aðeins er gert ráð fyrir einni röð af víði í hverju belti. Brúnn alaskavíðir hefur alls staðar á landinu reynst með allra harð- gerustu klónum. Hann er hins vegar mjög plássfrekur og varla ráðlegt að setja hann nær aspar- röð en í 2-3 m fjarlægð. Sé not- aður víðiklónn, sem fengið hefur heitið „Hríma," eða annar, sem enn hefur aðeins hlotið nafnið „S-IA" má hafa minna bil eða 1-2 m milli víði- og asparraðar. Það hefur reynst erfitt að sann- færa alla um réttmæti þess að gróðursetja jafn-gisið og hér er mælt með. Þetta er samt byggt á fenginni reynslu. T.d. var nokkuð um það á 7. áratugnum, að gróð- ursettar væru tvær viðjuraðir með 3 m millibili. Síðan var gróðursett'sitkagreni milli viðju- raðanna nokkrum árum sfðar. Sitkagrenið hefur víða átt erfitt uppdráttar í þessum beltum, þar sem viðjan þrengir um of að því. Samt er viðjan mun fyrirferðar- minni en brúnn alaskavfðir. Þar sem skjólbelti stendur meðfram girðingu og búast má við stórgripum handan girðingar- innar, er ekki ráðlegt að gróður- setja trjáplöntur nær girðingunni en í 2-3 m fjarlægð. Á skurð- bakka, þar sem einhver hætta getur verið á að skurðurinn graf- ist út, skal skjólbeltaröð vera í a.m.k. 1,5 m fjarlægð frá skurð- bakka. Raðafjöldi: Fjöldi asparraða get- ur verið frá einni og upp í fjórar, Sú stefna var tekin, þegar skjól- beltaræktin var færð undir jarð- ræktarlögin, að hámarksfjöldi raða f skjólbelti skyldi vera 5 raðir. Bændum hlýtur, að öðru jöfnu, að vera kappsmál að geta haft sem lengst á milli skjólbeltanna, svo að stórar sléttur slitni sem minnst í sundur. Því fleiri sem raðirnar eru, þeim mun meiri hæð nær beltið að öðru jöfnu. Það getur því borgað sig fyrir bændur að hafa fremur belti með einni víðiröð og 4 asparröðum og langt á milli belta en að hafa belti með t.d. einni vfðiröð og einni asparröð og mun skemmra á milli belta. Vissulega geta aðrir þættir breytt útkomunni úr þessu dæmi. Það á til dæmis við, ef skurðir hluta túnin niður f tiltölulega 94 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.