Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 109
MINNING
Haraldur Jónsson
Með Haraldi (ónssyni er horfinn
einn ötulasti félagi úr röðum aust-
ur-húnvetnskra skógræktarmanna.
Hann var fulltrúi þeirrar kynslóðar,
er óx úr grasi á tímum bjartsýni og
framfara, þeirra er helguðu sig
félagshyggju og hugsjónum sam-
vinnumanna.
Haraldur var fæddur á Húsavík
25. apríl 1916. Foreldrar hans voru
lón Sigurgeirsson verkamaður og
Katrín Þórarinsdóttir. Hann ólst
upp á Húsavfk hjá fósturforeldrum
sínum til 16 ára aldurs en þá
hleypti hann heimdraganum og fór
til Hvammstanga, þar sem hann
dvaldist næstu árin hjá systur sinni
Hólmfrfði lónsdóttur og mági,
Hannesi lónssyni kaupfélagsstjóra,
frá Þórormstungu íVatnsdal.
Nokkru síðar fór hann í Reykja-
skóla í Hrútafirði og var þar við
nám í tvö ár. Síðan innritaðist
hann í Samvinnuskólann og iauk
þaðan prófi vorið 1940.
Þann 18. ágúst 1949 gekk hann
að eiga Ingibjörgu Ebbu [ósafats-
dóttur frá Efra-Vatnshorni ÍV,-
Húnavatnssýslu. Var heimili þeirra
sfðari árin að Brekkubyggð 16 á
25. apríl 1916- 16. maí 1992
Blönduósi. Voru þau hjón mjög
samhent í störfum sínum. Gestrisni
var þeim í blóð borin. Haraldur var
starfsmaður kaupfélagsins á Borð-
eyri og síðar á Hvammstanga um
skeið. Sfðar réðst hann til Lands-
símans og vann við skrifstofustörf
á Borðeyri frá árinu 1944 og síðar
er starfsemin fiuttist að Brú í
Hrútafirði árið 1951 starfaði hann
þar til ársins 1957. Sama ár fluttu
þau hjón til Blönduóss en hann
tók við starfi stöðvarstjóra Pósts
og sfma þar á staðnum, er hann
gegndi til ársins 1986. Haraldurvar
mikill félagshyggjumaður. Auk
áðurnefndra trúnaðarstarfa sat
hann m.a. í stjórn Kaupfélags Hún-
vetninga um allnokkurt skeið.
Hann var einn af stofnendum
Lionsklúbbs Blönduóss 1959.
En það sem halda mun nöfnum
þeirra hjóna lengst á lofti var eld-
legur áhugi þeirra á skógrækt og
vexti og viðgangi skógræktar að
Gunnfríðarstöðum. Hann var kjör-
inn formaður Skógræktarfélags
A.-Húnvetninga árið 1976, sem
hann gegndi til dauðadags.
Skógræktin að Gunnfríðarstöð-
um mun um ókomin ár bera vott
um óeigingjarnt starf þeirra hjóna,
en öllum frístundum sínum vörðu
þau til að hlynna að skógargróðri
þar og með óþrjótandi elju sinni
vildu þau sýna og sanna að mögu-
legt væri að koma upp skógi á
Gunnfríðarstöðum með góðum
árangri.
Fyrir störf sín að skógræktarmál-
um var hann ásamt konu sinni
sæmdur gullmerki Skógræktarfé-
lags íslands á aðalfundi félagsins á
Blönduósi árið 1985.
Haraldur var hógvær maður og
lítillátur. Skyldurækinn svo af bar
og trúr í öllu er hann tók sér fyrir
hendur. Hann lést á Héraðssjúkra-
húsinu á Blönduósi þann 16. maí
1992 76 ára að aldri, eftir stutta
sjúkralegu.
Skógræktarmenn þakka honum
störfin og munu um ókomna fram-
tíð minnast hans.
Árni Sigurðsson
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
107