Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 15

Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 15
Aðdragandi og upphaf Upphafið að myndun þessa hóps var síðsumars árið 1985, þegar Oli Valur Hansson var að undir- búa fræga ferð sína og þeirra fé- laga, Ágústs Árnasonar, Böðvars Guðmundssonar og Kára Aðai- steinssonar til Alaska ( sjá Ársrit Sí, 1986) til að safna efniviði fyrir skógrækt, landgræðslu og garð- rækt á íslandi. Sigurður Blöndal, þáverandi skógræktarstjóri, hafði samband við mig í byrjun ágúst og bað mig að kalla saman hóp forsvarsmanna ýmissa stofnana og fyrirtækja sem hefðu áhuga á ferð Óla Vals og vildu styðja hana, en þyrftu sameiginlegan vettvang til að skipuleggja úr- vinnslu þess efniviðar sem safn- að yrði. Þær tilraunir yrðu óhjá- kvæmilega mun dýrari og krefð- ust miklu meiri langtímavinnu en söfnunarferðin sjálf. Áð mati Sigurðar lægi líka mikið við að skipuleggja úrvinnslu og safna bolmagni til nægilega stórfelldra tilrauna svo skorið yrði úr um hæfasta efniviðinn úr safninu til mismunandi nota. Ólfk viðhorf, hagsmunir og áherslur þessara aðila gerðu það hins vegar að verkum að heppilegt væri að fá aðila utan hópsins til að stýra fundum og samræma sjónarmið- in. Astæðuna til þess að Sigurður leitaði tii mín í þessu efni má ef til vill rekja til hálfgerðs skamma- bréfs um skógræktarstefnu á ís- landi sem ég skrifaði honum í maí 1978, en Sigurður var þá nýorðinn skógræktarstjóri. Bréfið skrifaði ég á ferð f lest, innblás- inn af hrifningu, á leið um und- urfagran, sænskan birkiskóg á leiðinni frá Stokkhólmi til Öre- bro. Þetta bréf leiddi seinna af sér hugleiðingar um fjölþætt markmið skógræktar sem ég flutti a fundum með starfsmönnum Skógræktar ríkisins og sfðar í er- ■ndi á Skógræktarþingi árið 1986. Frá bréfi þessu er sagt í greininni lóhann Pálsson skoðarberjum hlaðinn mjallarhyrni (Cornus alba, L.|. Uppskera söfnunarferðar. Vandlega merktir klónar af víði eftir rætingu. „Markmið skógræktar á íslandi" í Ársriti Skógræktarfélags íslands árið 1987. Meginboðskapurinn var sá að sjóndeildarhringur Skógræktar ríkisins væri of þröngur og hún þyrfti að sinna mun víðfeðmari markmiðum en nytjaskógrækt til viðarfram- Glaðst yfir vel heppnaðri framræktun efniviðar úr safni frá Magadan. Önnur frá vinstri er dr. Alexandra (Sasha) Berkutenko, leiðsögumaður úr ferðum til Magadan og Kamtsjatka. leiðslu. Skógræktaráhugi fslend- inga væri sprottinn af mun djúp- stæðari og fjölbreyttari þörf en landiægu og langvarandi viðar- leysi. Þar mætti nefna löngun eftir fegurð skógarins og skjóli til útivistar í þessu blásna landi okk- ar, - þrá eftir athvarfi frá hrjóstri og næðingi og vilja til að endur- heimta forna grósku landsins og græða sár þess. Þess vegna þyrfti að huga að meiri fjölbreytni í teg- undavali til skógræktar, plöntun með hliðsjón af landslagi, leggja alúð við innlendar tegundir eins og birki og víði, m.ö.o. leggja stund á skógrækt fyrir núlifandi fslendinga, en ekki eingöngu til hagsbóta fyrir viðarbændur með- al barnabarna okkar á miðri 21. öld, - svo göfugt sem það væri í sjálfu sér. f bréfinu, sem ég nýlega fékk aftur í ljósriti frá Sigurði, hét ég á hann að gangast fyrir kynbóta- átaki fyrir íslenska birkið og reyna að laða fram bestu eiginleika þess. Benti ég honum á að leita liðsinnis hjá Þorsteini Tómas- SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999 13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.