Skógræktarritið - 15.05.1999, Side 30
um að ræða mikla upphitun af
sól síðla vetrar, samtfmis miklum
næturfrostum. Slitskemmdir af
völdum skafrennings voru ekki
áberandi þetta vor. Meira að
segja alaskavíðir 'Gústa' í skjól-
beltum var meira og minna
skemmd niður að snjólaginu. En
að öðru leyti einkennist reiturinn
af því að snjólagið í honum
þykknar með hverju árinu eftir því
sem plönturnar hækka. Má því
ætla, að með tímanum komi í
ljós þær plöntur, sem skemmast
sfður við slfk skilyrði.
Haukadalur og Selpartur. í víði-
reitnum á Reykjum voru gróður-
settar í upphafi 4 plöntur af
hverjum klón, en þess má geta,
að tilraunareiturinn var gersam-
lega skjóllaus til að byrja með,
ólíkt reitnum í Hallormsstaða-
skógi. Þrátt fyrir skjólleysið var
góður vöxtur í plöntunum fyrstu
þrjú sumrin, og þurfti að grisja
árið 1990. Var önnur hver planta
tekin upp með hnaus. Fengust þá
að jafnaði tvær aukaplöntur af
hverju klónsnúmeri víðis. Tæp-
lega helmingur plantnanna var
gróðursettur í fimm raðir á kirkju-
túninu í Haukadal, en hinn helm-
ingurinn var gróðursettur f reit f
landi Selparts við Þjórsárósa.
Víðiklónarnir eru á báðum stöð-
um eingöngu frá Alaska. í þess-
um tveim reitum hefur fengist
mjög áhrifamikill samanburður á
vexti víðiklónanna við sem ólík-
ust skilyrði á Suðurlandi.
Haukadalur fékk 578 víðiklóna.
Starfsmenn Skógræktar ríkisins
unnu reitinn upp úr suðurjaðri
túnsins fyrir neðan kirkjuna. Fimm
galvaskir sveinar í sumarvinnu á
Garðyrkjuskólanum mættu síðan
ásamt mér og plöntunum í lok
júní 1990 og gróðursettu plönt-
urnar í einum fleng. Langflestar
víðiplönturnar komu fljótt vel til,
og hafa sloppið við flest alvarleg
áföll af völdum veðurs á athugun-
artímabilinu 1991-1995, að und-
anteknum sumarfrostunum 1993,
en þá kól flestöll sitkavíðikvæmi í
reitnum mjög illa, en annað
sviðnaði mismikið.
Selpartur fékk 666 víðiklóna.
(Hjátrúin segir að 666 sé tala
djöfulsins, en ég vona að það sé
nú ekki þess vegna sem plönturn-
ar eru svona illa farnar í reitnum).
Er mætt var á staðinn með all-
ar plönturnar og 5 galvaska
vinnumenn frá Garðyrkjuskólan-
um, var þar fyrir fríður flokkur af
trjáunnendum á öllum aldri úr
sveitinni. Gekk öll gróðursetning
hratt og vel fyrir sig. Plönturnar
þrifust vel frá byrjun, en fljótlega
fór að bera á miklum skemmdum
af ýmsum orsökum.
Selpartsreiturinn er f mikilli
sérstöðu vegna legu sinnar á
flötu landi fyrir opnu hafi (aðeins
7 km frá sjó). Það er algjörlega
skjóllaust f reitnum og er enn
árið 1998, þannig aðvíðirinn er
reyndur við ein erfiðustu skilyrði
sunnanlands fyrir trjárækt. Til út-
skýringar á því sem víðirinn hefur
mátt ganga í gegnum í reitnum
umfram það sem plöntur í öðrum
reitum hafa mátt þola læt ég eft-
irfarandi upplýsingar fylgja:
1. Þeir runnar, sem stóðu upp úr í
reitnum sumarið 1992, misstu
allir hæð niður í ca. einn metra
vegna vetrarskemmda eftir vetur-
inn 1992-1993.
2. Við kalmælingar seint í ágúst
voru skemmdir af völdum nætur-
frosta skráðar sérstaklega.
3. Það sem sýndist ónýtt til rækt-
unar á bersvæði við þessar að-
stæður var einnig merkt sérstak-
lega.
4. Allt frá fyrsta vetri plantnanna í
Selparti, 1990-1991 og fram til
1993 myndast slæm sár á þeirri
hlið barkarins sem snýr á móti
suðaustri. Er það líklega merki
eftir suðaustan vindstrengi með
eða án sandfoks.
5. Mikið er af lirfum sem éta blöð
aláskavíðis, sitkavíðis, jörfavíðis
og markavíðis í reitnum.
6. Sumarfrostin 1993 skemmdu
ekki eða aðeins fáar plöntur af
jörfavíði, markavíði, loðvíði og
bitvíði.
7. Sumarfrostin 1993 skemmdu
mest sitkavfði og næstmest
alaskavfði, lensuvíði, og sviðju-
víði.
8. Sviðjuvíðir er að deyja út í
reitnum.
9. Greinilega lifna margar plantn-
anna um hávetur, þar eð hlýindi
ná að verða meiri svona nálægt
sjó og sunnarlega á landinu.
Lifnun í janúar, febrúar og mars
með meðfylgjandi norðanáttum
og frosti veldur síauknu kali niður
eftir sprotunum.
10. Norðlægustu númerin deyja
út í Selparti (t.d. A-001-A-069 og
fleiri).
11. Númer ættuð úr innanlands-
loftslagi (meira og minna stöðugt
meginlandsloftslag) deyja út í
reitnum.
12. Háar plöntur af Salix alaxensis
ssp. longistylis, sem spjöruðu sig
best framan af og trónuðu yfir
öllum öðrum plöntum í reitnum,
lækkuðu áberandi mikið eftir
vetrarveðrið 1992-1993 og hafa
ekki komist upp aftur síðan.
13. Maðkaplága fer vaxandi í
reitnum, svo að ekkert er stund-
um eftir af laufi trjánna fyrri part
sumars. Við lauslega athugun í
mars 1998 virðast aðeins hin
ýmsu kvæmi af jörfavíði hafa
sloppið og eitt eða tvö kvæmi af
bitvíði. Annað er svo uppétið ár-
lega að það verður héðan af að
úða með eitri gegn skordýrum, til
að fyrirbyggja slíkar skemmdir.
Allir aðrir reitir virðast hafa
sloppið við þvílíkar maðkaplágur
fram að þessu.
Um víðinn á Reykjum, sem er frá
Yukon. Sama ár (1990) og grisjað
var í víðinum frá Alaska og skipt á
Selpart og Haukadal, var víði-
klónunum frá Yukon, sem hefur
nær eingöngu meginlandslofts-
lag, farið að hraka áberandi mikið
28
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999