Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 37

Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 37
Loðvíðir 'Uggi' - Salix lanata ssp. richardsonii 'Uggi' Markavíðir 'Mugga' - Salix barclayi ‘Mugga’ Markavíðir 'Mökkur' - Salix bardayi 'Mökkur' Takið eftir skriftarmátanum, en hann verða allir garðyrkjumenn að tileinka sér um leið og sér- merktir klónar eru teknir f fram- leiðslu. Klónsheiti skal alltaf koma á eftir aðalnafni tegundar- innar á fslensku, t.d. alaskavíðir eða á eftir latnesku heiti t.d. Salix alaxensis, og skal ávallt skrifa með stórum upphafsstaf (er sérheiti klónsins) og innan einfaldra gæsalappa, aldrei venjulegra gæsalappa. Við fylgjum alþjóð- legum nafnareglum íþessu tilliti eins og svo mörgu öðru. Einnig skal á það bent, að klónsheitið eitt og sér dugir í mannlegum samskiptum. Þar fyrir utan eru klónsheitin ýmist karlkyns eða kvenkyns eftir því hvort víði- klónninn blómstrar karlkyns eða kvenkyns blómum. Þess hefur verið gætt að hvert klónsheiti sé alls ekki notað á einhverja aðra trjá- eða runna- tegund. Þannig að t.d. ‘Dimma' verður alltaf alaskavíðir, og aldrei sett líka á t.d. einhvern asparklóninn. Er það von mín að það takist að halda þessu kerfi, og um nóg af sérstökum íslensk- um nöfnum að velja. Langur listi af nöfnum sem hæfa trjáplönt- um varð til við val á nöfnum á ofangreinda klóna. Mega menn snúa sér til mfn, ef þá vantar hugmyndir að nafni, eða vilja at- huga hvort eitthvert nafn sé í notkun. Af ýmsum ástæðum hefur Gróð- urbótafélagið tekið þá ákvörðun, eftir að hafa valið sérstakt klóns- heiti á hvern ofangreindra klóna, að gefa ekki upp tilraunanúmer klónanna næstu árin. Aðalástæð- an er að sjálfsögðu, að örfáir ein- staklingar hafa þegar hafið fram- leiðslu og sölu á sumum víði- klónanna, án þess að kafa nokkurn tímann fengið leyfi til þess. Þeir víði- klónar sem umræddir einstak- lingar framleiða eru ekki endi- lega af sömu klónum og hafa verið valdir, en sumir þó. Reynt hefur verið með ýmsra hjálp að stöðva uppátæki viðkomandi, en gengur erfiðlega, þar eð græðgin ræður ferðinni hjá þeim. Eykur þetta mjög hættuna á ruglingi í þessum viðamikla efniviði, en það var og er einmitt þess vegna, sem allir voru beðnir að sýna þolinmæði fyrstu 10-20 árin á meðan verið er að finna út hvað af plöntunum henti mjög vel við íslenskar aðstæður. Auðvitað er fullt af plöntum í efniviðnum, sem þrífast þokkalega hér á landi, en það er ekki nóg að vita bara það! Auk ofangreindra eru fáeinir einstaklingar sem hafa gerst fingralangir í krafti gamallar hjá- trúar, sem segir eitthvað á þá leið, „að ekkert þrífist hjá við- komandi nema hann taki það ófrjálsri hendi". Er þetta ákaf- lega hvimleið árátta, og í raun mjög barnaleg, að ekki sé meira sagt. Þrátt fyrir ofangreint, er ég mjög ánægður með alla þá virð- ingu sem langflestir hafa sýnt efniviðnum og vinnunni sem honum fylgir. Hvar henta víðiklónarnir í ræktun? Eftirfarandi upplýsingar um þrif klónanna koma úr hinum ýmsu tilraunareitum. Ef nákvæmlega sama klónsnúmer var ekki til í sumum tilraunareitanna, var kvæmið sem heild skoðað, þar eð oftast reyndist þá einhver önnur planta af sama kvæmi vera til staðar í reitnum. Þetta var gert ef fleiri klónsnúmer voru til af sömu tegund innan kvæmisins. Út frá þessu er spáð í hentug ræktunarsvæði, en mörgum spurningum er enn ósvarað. Margt spilar þar inn í, og reynsla næstu ára á örugglega eftir að leiða margt f ljós. Ákveðnar tilhneigingar sjást mjög greinilega í þrifum klón- anna og verður þeirra getið hér um leið og hverjum klóni er lýst. Engar myndir verða þó birtar af klónunum, fyrr en framleiðendur eru tilbúnir með nóg af plöntum til sölu. f eftirfarandi lýsingum eru nær allar hæðar- og stærðarmælingar frá þvf 1995. Margar plantnanna hafa stækkað mikið sfðan. Lit ár- sprota (vetrarsprota) er lýst eins og hann er að haustlagi, skömmu eftir lauffall. Tímasetning vaxtar- stöðvunar hjá ársprotum (sumar- sprotum) var skráð á Reykjum. Taka þarf tillit til þess að tíma- setningu vaxtarstöðvunar tókst aðeins að komast yfir að skrá eitt árið. Hún er því byggð á mjög veikum grunni. Upplýsingar um söfnunarstað og breiddargráður er fengnar úr dagbók Óla Vals Hanssonar. Lengdarvöxt ársprota mældi Pétur N. Ólason í Gróðrar- stöðinni Mörksumarið 1997, seinna vaxtarár plantnanna í beðræktun. Vaxtarstöðvun seinkar hjá öll- um víðiklónunum, því norðar á landinu, sem þeir eru ræktaðir. Kemur þetta til af því að lang- flestir víðiklónarnir eru sóttir til staða í Alaska, sem eru 4-6 breiddargráðum sunnar en fs- land. Þeir fá því ekki rétta dag- lengd til að stöðva vöxt sinn eft- ir, fyrr en 2-3 vikum seinna á ís- landi en f heimkynnum sínum. Þetta virðist ekki há plöntunum mjög, þar eð loftslagið hjá okkur er það hafrænt og mild haust því tíð. Lýsingarnar hér að neðan markast mjög af því, að plönt- urnar fengu áburð fyrsta og ann- að sumarið, en síðan ekki sög- una meir. Ætla má að plönturnar sýni þá hvernig þær líta út við lágmarksumhirðu eins og gerist SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999 35
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.