Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 42

Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 42
garða vegna litaspils blaða og þekjandi eiginleika. Bæta mætti henni t.d. inn í þekjuplantanir með loðvíði og myrtuvíði. Sitkavíðir: ÞRASI - er góður f tilraunareitun- um sunnan heiða (Reykir, Sel- partur, Haukadalur, Hvanneyri og Prestsbakki). í öðrum tilrauna- reitum er sama kvæmi í góðum þrifum, en Þrasi stendursig betur þvf fjær sjó sem dregur. Eitthvert skjól er nauðsynlegt til að byrja með á erfiðum stöðum. Náð var í Þrasa við ósa Alaganik á Cor- dovasvæðinu í Suður-Alaska, ca. 60°30’N. Lýsing: Grannvaxinn, þéttgrein- óttur, hraustlegur, fíngerður, karl- kynsblómstrandi runni (um 2,7 m hár á Reykjum og 2 m í Haukadal '95). Efri helmingur vetrarsprota er hærður og börkur dökkrauð- brúnn. Brum eru dökkrauð. Sumarsprotar Ijúka vexti í annarri viku september. Blöð eru frekar smá og fyrir utan dæmigerðan silkigljáa á neðra borði, eru þau einnig gljáandi á efra borði. Framleiðsla á Þrasa gengur vel og kelur hann lítið eða ekkert. ÆSA - er góð í tilraunareitunum sunnan heiða (Reykir, Selpartur, Haukadalur, Hvanneyri, Prests- bakki). í öðrum tilraunareitum er sama kvæmi í góðum þrifum, en Æsa stendur sig betur því fjær sem dregur sjó. Eitthvert skjól er nauðsynlegt til að byrja með á erfiðum stöðum. Náð var í Æsu á sléttum Mc- Kinley á Cordovasvæðinu í Suð- ur-Alaska, ca. 60°30’N. Lýsing: Grannvaxinn, þéttgrein- óttur, hraustlegur, fíngerðurog kvenkynsblómstrandi runni (um 3,2 m hár á Reykjum og í Hauka- dal '95). Efri helmingur vetrar- sprota er hærður og börkur græn- brúnn. Brum eru rauðleit. Sumar- sprotar ljúka vexti um miðjan september. Blöð eru óvenjubreið miðað við lengd. Framleiðsla á Æsu gengur vel og kelur hana ekkert. Sprotar vaxa um 60-100 cm á ári. ÞRUMA - er góð í tilraunareitun- um sunnan heiða (Reykir, Sel- partur, Hvanneyri, Prestsbakki). í öðrum tilraunareitum er sama kvæmi í góðum þrifum, en Þruma stendur sig betur þvf fjær sjó sem dregur. Náð var í Þrumu í Borrow Pit við jökulfljótið Copper í Suð- ur-Alaska, ca. 60°30’N. Lýsing: Grannvaxinn, stór, þétt- greinóttur, mjög hraustlegur, fín- S. sitchensis. Sitkavíðir. gerður og kvenkynsblómstrandi runni (um 3,5 m hár á Reykjum og 4 m hár á Prestsbakka). Þruma er áberandi langstærst og kröft- ugust af sitkavíðiklónunum. Efri 2/3 hluti vetrarsprota er hærður og börkur brúnrauður. Brum eru dálítið rauðleit. Sumarsprotar ljúka vexti um miðjan.september. Blöð eru frekar smá, gráleit og með glampandi neðra borði. Framleiðsla á Þrumu gengur vel og kelur hana ekkert. Sprotar vaxa um 60-100 cm á ári. Loðvíðir: HNÁTA - er góð í tilraunareitun- um sunnan heiða (Reykir, Sel- partur, Haukadalur, Hvanneyri). í öðrum tilraunareitum er sama kvæmi í góðum þrifum, og stend- ur sig betur þvf fjær sjó sem dregur. Eitthvert skjól er nauð- synlegt til að byrja með á erfið- um stöðum. Náð var í Hnátu við vatnið Harlequin í Yakutat í Suð- ur-Alaska, ca. 59°30’N. Lýsing: Grannvaxinn, fíngerður og kvenkynsblómstrandi runni (um 2,4 m hár á Reykjum og í Haukadal '95). Vetrarsprotar eru ljósgráhærðir og börkur rauð- brúnn. Sumarsprotar Ijúka vexti um miðjan september. Blöð eru þunnhærð og frekar smá. Framleiðsla á Hnátu gengur vel og kelur hana lítið eða ekkert. UGGI - er góður í tilraunareitun- um sunnan heiða (Reykir, Sel- partur, Haukadalur). í öðrum til- raunareitum er sama kvæmi í góðum þrifum. Uggi er valinn í Selpartsreitnum, sem ereinn af umhleypingasömustu og erfið- ustu tilraunareitunum, en hann stendur sig ennþá betur er fjær dregur sjó. Eitthvert skjól er nauðsynlegt til að byrja með á erfiðum stöðum. Náð var í Ugga 40 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.