Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 51

Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 51
Funi er valinn úr hópi fræ- plantna, sem allar eru mjög harð- gerðar. Það þurfti að athuga rót- unarhæfileikann og hversu vel plönturnar vaxa síðan upp í pott- um, til að finna framleiðslu- vænsta klóninn. Funi skar sig úr smám saman með betri rótun og meiri vexti. Bersarunni getur orðið allt að 3 metra hár í heimkynnum sínum, inni í skuggsælum skógum, en á bersvæði er hann helmingi lægri og þéttvaxnari. Funi vex hratt upp, kelur að jafnaði ekkert eða mjög lítið. Blöð eru gagnstæð og handstrengjótt með þrjá grunna flipa eða sepa. Haustlitir eru oft mjög skærir f gulu og rauðu. Vorlitur blaðanna er einnig áberandi í bronslitum tón eða jafnvel rauðum, en verða síðan olífugræn til græn. Blóm eru Ijósbleik til hvít í litl- um sveipum. Funi byrjar snemma að blómstra og blómstrar ríku- lega. Blómgunartfmi er í júní og fram í júlf. Mikið af berjum þroskast á Funa, og eru þau glansandi skærrauð, en súr. Þau eru því sem næst óæt, nema þau séu sultuð rétt áður en þau ná fullum þroska. Funi hentar í runnaþyrpingar, raðir og jafnvel stakstæður, einnig í lítið grasgefin sumarbú- staðalönd. Hann er skuggþolinn, en mesta og sterkasta liti fær hann á sólríkum stað. Skrautrunnar sem verða kynntir árið 1999 og seinna Von er á a.m.k. þremur skraut- runnum í viðbót á næstu árum, en það eru tegundirnar: Shepherdia canadensis - Kálfaber. Lágvaxinn, breiður, harðgerður runni með gráum blöðum. Satix fuscescens - íslenskt nafn vantar. Flatvaxinn og dvergvaxinn víðir með smáum blöðum. Salix ovalifolia - íslenskt nafn vant- ar. Flatvaxinn víðir með áberandi fallegum gljáandi blöðum. Umfjöllun um þá verður birt um leið og þeir eru tilbúnir til sleppingar til framleiðenda. Um annað sem er á Reykjum Það er ef til vill að bera í bakka- fullan lækinn að fjalla dálítið um annað úr Alaskasafninu 1985 eftir þessa langloku um víði og skraut- runna. Ég vil þó upplýsa það helsta um afdrif aspa, barrtrjáa og elris sem eru einnig á Reykj- um, en úrval hefur ekki verið framkvæmt f þeim af ýmsum ástæðum. Aspir Um 700 klónar af öspum voru gróðursettir á Réykjum sumarið 1987. Þar bera alaskaaspir, Populus trichocarpa af, á meðan balsam- aspir, Populus balsamifera, sem eru flestar ættaðar úr miklu stöðugra og kaldara vetrarloftslagi en er hér, spjara sig verr og sumar drápust reyndar strax, ef þeim hafði ekki verið forðað burt vest- ur á Læk, þar sem nokkrar náðu sér á strik með árunum. Allar aspir frá Yukon eru ómögulegará Reykjum, einnig þær frá nyrstu og vestustu héruð- um Alaska. En um leið og komið er til Kenaiskaga og Cordova- svæðisins kveður við annan tón. Af því sem eftir stendur á Reykj- um og nær einhverri reisn, ef svo má að orði komast, eru alaska- aspakvæmi frá eftirtöldum söfn- unarstöðum: Summitlækur 11, við Lawingbæ á Kenaiskaga. Granitelækur, ca. 220 m y.s. á Kenaiskaga. Bonanzalækur á Kenaiskaga. Fallslækur við veginn upp á Solarfjall á Kenaiskaga. Ninilchik, rétt við sjóinn, Kenai- skaga. Snughöfn, 300 m y.s. á Kenai- skaga. Tustumenavatn á vesturhluta Kenaiskaga. Við jökulsporð Sheridan, 60 m y.s. austan við Cordova. Við veginn upp að Sheridanjökli, austan við Cordova. Mc Kinley-sléttur austan við Cordova. Borrow Pit við jökulána Copper, austan við Cordova. Ofangreindar niðurstöður eru dregnar saman eftir fyrstu 8 mæl- ingaárin. Bera verður þessar niðurstöður saman við reynsluna í öðrum landshlutum, og er það verk starfsliðs Mógilsár. Níu kvæmi af nöturösp, Populus tremuloides, voru einnig gróðursett á Reykjum árið 1987. Þær fóru strax illa, enda vanari stöðugum vetrarkulda en um- hleypingum. Þeim norðlægustu og vestlægustu og þeim kvæm- um úr innlandi Suður-Alaska var forðað fljótlega vestur að Læk. Af þeim er eitt kvæmi álitlegast, tek- ið við ána Eagle, 350 m y.s. aust- an við Anchorage, en önnur hjara eða smávaxa. Á Reykjum voru nöturaspa- kvæmi frá Kenaiskaga endur- gróðursett á skjólgóðan stað, eftir hjúkrun inni f gróðurhúsi í eitt ár. Þar hafa þær tæplega gert mikið af sér nema halda hæð eða stækka hægt og rólega. Nötur- öspin getur eins og íslenska blæöspin verið mjög lengi að koma sér fyrir og hefja kröftugan vöxt. Því er ekki öll von úti og best að sýna henni meiri þolinmæði. Barrtré Á Reykjum eru eingöngu sýnis- horn af flestum barrtrjákvæmun- um úr söfnunarferðinni. Starfs- fólk Mógilsár sér um prófanir barrtrjákvæmana vítt og breitt um landið. En mér finnst rétt að láta fylgja með þær upplýsingar sem hægt er að draga af ein- hverju viti úr þrifum plantnanna á Reykjum. SKÓGRÆKTARRITiÐ 1999 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.