Kjarnar - 01.05.1954, Page 23

Kjarnar - 01.05.1954, Page 23
Andar háíjallanna Smásaga frá Tíbet. í dögun fór aftur að hvessa. Kaldur sem andvari frá eilífð- inni átti vindurinn upptök sín einhvers staðar bak við háslétt- una, sem girt var fjöllum í fjarska, er stóðu eins og svart, steingert brim út við sjóndeild- arhring. Sólin varpaði fölum bjarma, sem minnti á rökkur, gegnum slæðu þá af sandi og snjó, sem stormurinn bar með sér. Sandurinn krafsaði eins og rándýrsklær í tjald úr yakuxa- skinni, sem reist var inni á miðj- um öræfunum, þar sem stór- hríðin geisaði. Inni í tjaldinu, í svartamyrkri, lá maður og kona og hlustuðu á hamfarir storms- ins. Hvað var langt síðan þau höfðu reist tjaldið hér, að fram komin af þreytu? hugsaði John Finlay. Hann hélt í hönd Ericu í myrkrinu, húð hennar var þur eins og eyðimerkursandur og öll sprungin og skrámuð. Hún skalf af kulda. — Heldurðu að við deyjum nú? spurði hún lágt. Kjarnar — Nr. 35 21

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.