Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 42

Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 42
hana í anddyri matstofunnar, hugsaði hún.) „Ég þarf að skreppa upp og tala við þig!“ Hana langaði mest til að skella heyrnartólinu á, en stillti sig. Hún ætlaði ekki að fara að leika forsmáða og vonsvikna konu — það væri allt of vesældarlegt. „Nei, góðan dag,“ hrópaði hún mjög undrandi. „Þetta þykja mér fréttir! Ertu bara kominn heim, Róbert — já, blessaður líttu inn!“ ■Skömmu seinna sat hann í dagstofu hennar. Hún hafði snarazt í bezta kjólinn sinn; hún leit vel út, og það hressti hana mjög, að hún vissi það! Róbert leit ekki eins vel út — hið gamla öryggi hans var horf- ið, hann virtist taugaóstyrkur og fór allur hjá sér. „Ég hélt annars,“ tautaði hann, „að þú hefðir séð mig — í matstofunni. Eh — þú lítur prýðilega út, og það er indælt að sjá þig aftur!“ bætti hann við með svolitlu af gömlu aðdáuninni í röddinni. Þú lítur ekki beint prýðilega út sjálfur, hugsaði Kitty, orðinn þunnur í roðinu og mjór eins og krítarstrik — og það fer þér nú ekki vel. „Þökk, sömuleiðis, Ró- bert,“ svaraði hún blátt áfram. „Það lítur náttúrlega hálf- kjánalega út,“ tautaði hann og var eins og á nálum í hæginda- stólnum, „og ég hef líka hringt 40 til þín — margsinnis! Sjáðu, ég ætlaði — eh — nefnilega að segja þér, að ...“ „Blessaður vertu,“ sagði hún fjörlega, „ég veit það nú þegar!“ „Ég tel þig þann bezta vin, sem nokkur maður getur átt ...“ „Já, eins og mamma manns — eða kannske hundurinn manns? Ég veit ekki hvað mönnum finnst,“ sagði hún sakleysislega. „Þú ert þá reið samt,“ sagði hann mæðulega. „Reið? Góði, bezti, hvers vegna í ósköpunum skyldi ég vera það?“ Hún sperrti upp augun. „Ég á við, af því ég hringdi ekki strax — eða kom?“ „Mikil ósköp — þú hefur sjálf- sagt verið önnum kafinn .Satt að segja var ég ekkert að hugsa um það. Og ég vona að þið verð- ið hamingjusöm. Hún er anzi lagleg.“ „Hver?“ spurði hann utan- gátta. „Jonna Thorson, auðvitað,“ sagði hún blíðlega. „Nú,“ hann ræskti sig óstyrk- ur. „Þú hefur þá getið þér þess til. Hvernig þá?“ „Drottinn minn dýri, við er- um í smábæ og ekki í New York.“ Katrín hafði mjög hljóm- fagran hlátur og kunni að beita honum. „Nú, já, auðvitað,“ tautaði Kjarnar — Nr. 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Kjarnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.