Kjarnar - 01.05.1954, Side 35
móti því víti, sem Martin lifði
í — það veit ég nú.“
Iiún horfði spyrjandi á hann.
„Tveimur árum eftir að ég var
byrjaður að fljúga reynsluflug
fyrir Born, fóru mínar eigin
taugar að bila. Ég fann upp af-
sakanir til þess að fresta flugi.
Þyrfti ég að fljúga reynsluflug,
varð ég að ganga fram af sjáif-
um mér til þess að geta það, og
nú get ég ekki á heilum mér tek-
ið í hvert sinn sem ég þarf að
fljúga.“
„Hvers vegna í ósköpunum
hefurðu ekki sagt upp? Það er
ekkert stríð lengur. Þú getur
sjálfsagt fengið annað starf.“
„Þú skilur það kannske ekki.“
Þjáningardrættirnir urðu dýpri
á andliti hans. „Það var mín sök,
að Martin og fjórir félagar hans
fórust. Ég vissi reyndar hvað
hræðsla var, en ég vissi ekki að
hægt væri að verða svo hrædd-
ur, að hver taug og vöðvi lamað-
ist. Það veit ég nú. En úr því að
ég neyddi Martin til þess að
halda áfram, þá get ég ekki gef-
izt upp sjálfur.“
Þetta óþolandi stórlæti, hugs-
aði hún. „Hve lengi hefur þér
liðið svona?“
„Tvö ár.“
Tvö ár! Ekki var að furða, þótt
hjónóaband þeirra hefði fengið
að kenna á því!
„Hafir þú brotið af þér, þá hef-
MAURICE CHEVALIER
er fæddur í París 12. september. 1889.
Byrjaði sem revyuleikari og meðdans-
ari hinnar heimsfræg Mistinguet, varð
smám saman frægasti leikari Parísar
og heimsfrægur af söng sínum á hljóm-
plötur. Hefur leikið í fjölda kvik-
mynda, m. a.. „Monsieur Baby“, „Mað-
ur dagsins", „Káta ekkjan" o. m. fl.
ur þú fyrir löngu bætt fyrir það
með öllu því, sem þú hefur orð-
ið að þola. Slepptu nú bannsettu
stórlætinu — líka mín vegna!“
Hann greip um höfuð hennar
báðum höndum. „Ég hef verið
svo niðursokkinn í eigin áhyggj-
ur. Ég skil fyrst nú, að ég hef
líka eyðilagt tilveruna fyrir þér,
sem ég ann heitast af öllu. Ég
fórnaði þér til þess að geta hald-
ið áfram að fljúga. Ég vissi, að
því hamingjusamari sem ég
væri í faðmi þínum, því hrædd-
Kjarnar — Nr. 35
33