Kjarnar - 01.05.1954, Síða 47

Kjarnar - 01.05.1954, Síða 47
húsinu með banana í skál, voru öll þrjú staðin upp, og það voru eldrauði'r dílar í kinnum Jonnu. „Róbert,“ sagði hún, „þú veizt vel, að þið pabbi þurftuð að ræða verzlunarmál í kvöld; nú verðum við að fara. Ég fer að minnsta kosti nú. Á ég að fara alein, eða þóknast þér að koma líka?“ Þetta var ekki rétt aðferð við Róbert, sem hataði alla þvingun meir en nokkuð annað, í hvaða formi sem var. Hann starði bara á Jonnu — og hún starði á móti með kreppta hnefa. „Ég held ég verði kyrr og ljúki borðhaldinu,“ sagði hann rólega eftir nokkra þögn. Kristján var góður félagi, svo að þegar Kitty deplaði til hans augunum, þá sagði hann blátt áfram: „Má ég ekki aka yður heim, ungfrú Thorsen?11 ★ Nú var komin sú stund hefnd- arinnar, sem Kitty hafði undir- búið. Nú gat hún sagt það við hann, sem hún hafði æft í hug- anum allan daginn. Henni fannst hún næstum vera ölvuð. Það var ekki oft, að kona gat komið fram svo skjótri hefnd, hugsaði hún sigri hrósandi. Þeg- ar hann nú bæði hana fyrirgefn- ingar, þá ætlaði hún bara að segja hlæjandi: „Nei, góði Ró- bert, vertu ekki svona hlægi- legur. Hamingjan sanna, við höfum aldrei verið annað en góðir vinir — ég hef að minnsta kosti aldrei litið öðrum augum á kunningsskap okkar.“ „Kitty,“ sagði Róbert og horfði á hana, „Kytty!“ Jæja, svo að nú var hún aftur „Kitty“. En nú var það of seint. Hann skyldi komast að raun um það! „Ég hef verið meiri grasasn- inn,“ hélt Róbert áfram í angur- værum róm. Hann tók hönd hennar og brosti á þann hátt, sem hún mundi svo vel — sínu gamla, góða brosi. „Það er ekki vegna þessa indæla miðdegis- verðar þíns, Kitty, en ég meina það sannarlega, að þú — að þú ert ....“ Hann yppti öxlum í vandræðum og gat sýnilega ekki komið orðum að því, sem hann ætlaði að segja. „Ég hlýt að hafa verið orðinn brjálaður af sulti, annars get ég ekki skilið, hvernig ég gat hagað mér svona asnalega.“ Hann vafði hana örmum, og nú vissi Kitty, að stundin var komin. — „Kitty — elsku Kitty, skammaðu mig nú duglega og fyrirgefðu mér svo. Viltu það ekki?“ „Jú, elsku Róbert,“ sagði hún fagnandi. Hún var aftur Kitty, Kitty hans. Katrín var horfin, ásamt leifunum af stolti sínu, og sást ekki síðan. Kjarnar — Nr. 35 45

x

Kjarnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.