Kjarnar - 01.05.1954, Blaðsíða 64

Kjarnar - 01.05.1954, Blaðsíða 64
þess varð að stökkva með mikilli aðgæzlu og hafa nánar gætur á veltingi skipsskrokksins og rambi siglunnar. Matsveinninn stökk fyrst. Honum skrikaði fótur á siglutoppnum og stakkst á endum í fallinu. Brotsjór molaði hann upp við bjargið. Káetuþjónninn, skeggjaður maður, rúmlega tvítugur, rann til og varð milli siglunnar og bjargsnasarinnar. Marðist hann? Lífið marð- ist úr honum á svipstundu. Tveir fóru sömu leið og matsveinninn. Jóhannes Marteins skipstjóri var sá seinasti okkar fjórtán, sem komst inn í hellinn. Einni stundu síðar rann Sparwehr niður af rif- inu og sökk í djúpið. Tvo sólarhringa börðumst við gegn dauðanum þarna í bjarginu og komumst hvorki upp né niður. Þriðja morguninn fann fiskibátur okkur. Mennirnir voru allir klæddir hvítum, óhreinum búningum, með sítt hárið vafið upp í skrítinn hnút ofan á höfðinu — merki þess að þeir voru kvæntir, heyrði ég seinna, og ég komst líka að því, að mjög þægilegt var að grípa í þennan hnút með annarri hendi, meðan maður með hinni jafnaði einhver deilumál, sem ekki var hægt að útkljá með orðum. Báturinn fór til þorpsins eftir hjálp, og flestir þorpsbúar komu með öll sín áhöld og mestur hluti dagsins fór í það að koma okkur niður. Þetta var bláfátækt volæðisfólk; jafnvel sjómannsmagi átti fullt í fangi með að melta fæðuna, sem það nærðist á. Hrísgrjónin þeirra voru brún eins og súkkulaði. Auk þess var í þeim börkur og spýtnabrak og allskonar dularfullur óþverri, svo að maður varð oft að hætta að tyggja til þess að stinga þumal- og vísifingri upp í sig og moka út óþverranum. Þeir borðuðu líka eins konar jurtafæðu og óteljandi heita rétti, óguðlega kryddaða. Kofarnir þeirra voru úr leir með stráþökum. Undir gólfin voru leiddar pípur frá reykháfnum í eldhúsinu, til þess að hita upp í stofunni. Þar lágum við á daginn og hvíldum okkur, meðan við reyktum tóbak þeirra, sem var létt og væmið, úr .litlum skálum gegnum álnarlangar pípur. Þeir höfðu líka heitan og súran, mjólk- urhvítan drykk, sem þurfti að þamba í stórum stíl til þess að finna á sér. Þegar ég var búinn að drekka marga potta af þessum drykk, var ég orðinn svo fullur, að ég fór að syngja og hafa hávaða, svo sem siður er háseta í öllum heimsins álfum. Hinir hresstust við þetta og fylgdu fordæmi mínu, og svo öskruðum við allir saman, gleymdum hríðinni, sem ólmaðist úti fyrir og stóð á sama þótt hafið 62 Kjamar — Nr. 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Kjarnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.