Kjarnar - 01.05.1954, Síða 34
JOSETTE DAY
er fædd í Paris 31. júlí 1914, ógift. Kom
fyrst fram 9 ára að aldri á ballett við
óperuna í París, gerðist síðan leik-
kona og varð að lokum fræg kvik-
myndastjarna. Hefur meðal annars
leikið í þessum myndum: „Kvenna-
klúbburinn", Herra Brotomneau", „Or-
lof í Sviss“ o. fl.
að hann í öll þessi ár? „Ef ein-
hvern er að ásaka, þá er það
stríðið," sagði hún í sefandi
róm.
Hann fór að ganga um gólf
eins og alltaf, þegar hann var í
mikilli geðshræringu. Og svo
fór hann að segja frá.
Martin var fimm árum yngri
en Michael, og heitasta ósk hans
var upfyllt, þegar hann komst í
flugdeild Michaels. Hann lifði
aðeins fyrir flugið. En dag nokk-
urn kom hann að máli við Mic-
hael og tjáði honum að taugar
sínar væru að bila, hann þyrði
ekki að halda áfram. „Ég sagði
honum, að þetta þekktum við
allir, en héldum áfram samt, og
hann myndi iðrast þess alla ævi,
ef hann gæfist upp nú. En innst
inni fann ég vel, að ég talaði
þannig um fyrir honum aðeins
vegna þess, að ég myndi skamm-
ast mín fyrir að eiga bróður,
sem væri álitinn bleyða. Hann
gerði eins og ég vildi, en bað
um að fá einmennings orustu-
vél til þess að þurfa ekki að bera
ábyrgð á öðrum en sjálfum sér.
Ég neitaði honum um það.“
Michael horfði inn í eldinn og
þagnaði um stund. Svo hélt hann
áfram: „Næsta skipti sem hann
fór upp, var vélin skotin niður.
Einn af áhöfninni slapp lifandi.
Seinna sagði hann svo frá, að
Martin hefði setið eins og lam-
aður væri, þegar þýzka vélin
kom í ljós. Hann hefði ekki gert
minnstu tilraun til varnar.“
„Þú hefur kannske breytt
ranglega, Michael, en þú gerðir
það eitt, sem þér fannst vera
rétt.“ Hún strauk hár hans
mjúklega.
Hann hristi hönd hennar af
sér. „Við getum allir orðið fyr-
ir því, að taugarnar bili. Það eru
til mörg stig af hræðslu. Það
sem ég fann til þá, var ekkert á
32
Kjamar — Nr. 35