Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 46

Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 46
grænum olífum. Grænar ost- stengurnar hafði hún bakað sjálf, og þar sem hún vissi að Róbert var ekki mjög gefinn fyrir osta, hafði hún borið fram banana, sem dýft var í romm með kransi af sykruðum fjólum og mímósum í kring. Mennirn- ir tveir borðuðu eins og þeir hefðu ekki séð mat í marga daga, og Kitty sat sigurviss, köld og fögur við vsizluborð sitt og var hin fullkcmna húsmóðir. En heiftin skein af Jonnu. Hún vissi vel, að Róbert hafði verið mjög góður vinur Kittyar áður fyrr, og vissi líka, hve lítið hann skeytti þá um mat. Hún hafði ekki tekið eftir breytingunni og ekki hlustað á sultar-jarm hans í Ameríku, þar sem hún hafði einbeitt sér að því að ná tang- arhaldi á honum — og nú sat hann hér og át eins og grís — eins og öll hans veröld væri mat- ur — og svo þessi stórvaxna Kitty í allt of flegnum kjólum! Hún andvarpaði með velþóknun og leit á gimsteinum sett arm- bandsúr sitt: „Það hefur verið alveg indælt að njóta mat- reiðslulistar yðar — og mér þyk- ir það leitt, en nú verðum við að fara!“ „Hvað?“ hrópaði Róbert, sem var að drekka kaffið og borða litlar, mjúkar, rjómalagðar brauðflísar með. „Núna strax!“ hrópaði Kitty. „Og ég hafði geymt svolítinn sérstakan ábæti handa Róbert — úr bezta romminu mínu.“ „Ég get vel bætt á mig einum bita enn,“ svaraði Róbert í skyndi. Jonna hló við óþýðlega og strauk óstyrkum fingrum eftir kjólnum sínum, sem var ljós- rauður og virtist mjög einfald- ur í samanburði við kjól Kitt- yar. „Þú ættir ekki að borða meira af öllu þessu feitmeti, góði minn,“ sagði hún aðvar- andi við Róbert. „Vitleysa — það er í fyrsta sinn að ég fæ almennilegan mat frá því ég fór til Ameríku,“ sagði Róbert. Kristján horfði stórhneyksl- aður á hann. „Almennilegan mat? Geturðu komizt svona að orði um allar þessar kræsingar? Almennilegur matur — guð komi til!“ „Við megum til að fara,“ sagði Jonna óþolinmóð. „Róbert þarf að tala við pabba í kvöld.“ „Þarf ég?“ spurði Róbert hissa. , Jonnu lá við að stappa í gólf- ið. „Já, þú manst vel, að ...“ „Ég hefði vel lyst á meiru af þessum ábæti, ef þú átt meira af honum,“ sagði Róbert við Kitty. Þegar Kitty kom aftur úr eld- Kjarnar — Nr. 35 44
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Kjarnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.