Kjarnar - 01.05.1954, Side 53

Kjarnar - 01.05.1954, Side 53
að þeim. Aðgæta samankreistan munninn og hið ófagra, þreytu- lega og „spennta" andlit. Feg- urðarmeðöl geta ekki stökkt ó- vinum fegurðarinnar á flótta. Gaumgæfileg sjálfsrannsókn, getur, ef til vijl, bundið enda á tilhneigingu okkar til þess að koma með afsakanir viðvíkj- andi eirðarleysi okkar og vinnu- hraða. Afsakanrnar eru oftast á þessa leið: „Skyldan býður að ég ljúki þessu á tilsettum tíma. Ég get ekki þolað að þetta dragist. Menn verða þó að hugsa um framtíðina.“ Æfið yður í því, að láta ekki ringulreið þá, sem umhverfis yður er ríkjandi, hafa áhrif á yður. Þótt þér séuð önnum kaf- in, megið þér ekki láta hjá líða, að hugsa um eitthvað skemmti- legt og'þægilegt, annað slagið. Skáldið Edwin Markham seg- ir á einum stað: „Hinir ofsaleg- ustu hvrifilbyljir hafa ætíð ró- legt svæði í miðjunni.11 Við höfum öll þvílíkt svæði, eða blett í hugarfylgsnum okk- ar, þrátt fyrir alla storma, er umhverfis okkur geisa. Jóh. Scheving þýddi. Fokvondur maður: — Er það satt að blaðið hafi kallað mig stórsvindlara? Ritstjórinn: — Ómögulegt! Við flytj- um ekki annað en nýjustu fréttir. Fritz Ruzicka: Húsrannsókn Öll blöðin birtu stórfréttina um stuld leyniskjalalnna með risavöxnum fyrirsöögnum. — Þetta var ráðgáta, lögreglan stóð ráðþrota, menn óttuðust stjórn- málaflækjur. Lögreglan vann af ofurkappi, hvert minnsta atvik var nákvæmlega rannsakað, verðlaunum var heitið fyrir mik- ilsverðar upplýsingar, og á nokkrum dögum höfðu verð- launin hækkað svo gífurlega, að alíir Parísarbúar léku leynilög- reglumenn og tóku þátt í rann- sóknunum. Alfred Puvier gekk óþolin- móður um gólf í vinnustofu sinni. Hann greip um ennið, braut heilann ákaft, stundi við. Svo hringdi síminn. „Já, Alfred hér! Nei, hafðu svolitla þolinmæði. Hraðlestin fer nú ekki fyrr en eftir tvær klukkustundidr. Hvað? Já, ég skal hringja til þín seinna ...“ Puvier lagði heymartólið á — og í sama bili var barið að dyrum. Hann lauk upp. Úti fyr- ir stóðu fimm einkennisklædd- ir lögregluþjónar og nokkrir menn í venjulegum fötum. Kjarnar — Nr. 35 51

x

Kjarnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.