Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 58

Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 58
eða gleði yfir því, að allt heppnaðist mér. Ég hugsaði ekki um neitt nema það, að fá líkama minn til að deyja. Öll vitund mín vildi að- eins þetta eina, og ég gekk að verki með sömu reglubundinni ná- kvæmni og þegar múrari hleður vegg og leit, á mitt verk sem jafn sjálfsagðan hlut og múrarinn mundi líta á sitt. Eftir klukkustund var líkami minn dáinn allt upp að lendum — og áfram hélt ég, lið fyrir lið, með að vilja sjálfan mig dauðan. Það var fyrst, þegar ég kom að hjartanu, að ég varð dálítið hik- andi og órór. Af ótta við að missa meðvitund, einbeitti ég viljanum að því að halda þeim hluta líkamans dauðum, sem þegar var það. Síðan skipti ég um starfssvæði og byrjaði á fingrunum. Aftur varð hugsun mín skýr, og það gekk greiðlega að deyða handleggina upp að öxlum. Loks var allur líkami minn dauður, nema höfuðið og hjartað. Högg og slög míns samanherpta hjarta tóku ekki lengur undir í höfðinu á mér. Hjarta mitt sló reglulega, en veikt. Ég reyndi við brjóstið og hjartað, sem sló svo hægt. Það tókst samstundis. Ég hafði ekki framar brjóst né hjarta. Ég var aðeins andi, sál, vitund, kallið það hvað þið viljið — bundinn þokukenndum heila, sem var í stöðugri útþenslu, þrátt fyrir hauskúpuna, út fyrir takmörk hennar. Og svo var ég frjáls! í einu stökki flaug ég yfir þök fangelsisins ... upp til stjarnanna ...“ Þá kemur fangavörðurinn í eftirlitsferð og hrífur hann úr mók- inu. En honum tekst að falla í dá aftur samstundis og hann er far- inn. „Ég vaknaði. Glaðvakandi var ég, þótt ég opnaði ekki augun. Og takið vel eftir því, að ég var ekki undrandi á neinu því, sem nú fer á eftir. Allt var mér eðlilegt og alveg eins og ég bjóst við. Þetta var áreiðanlega ég sjálfur. En ég var ekki Darrell Standing... Ekki hafði ég heldur hugmynd um, að neinn Darrell Standing væri til — sem varla var við að búast, þar sem Darrell þessi Standing fæddist nokkrum öldum seinna ...“ ★ 56 Kjarnar — Nr. 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Kjarnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.