Helgarpósturinn - 24.06.1987, Page 6
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á
STAÐNUM.
BÍLPLAST
Vbgnhölða 19, *M 698233.
PóstMndum.
Ódýrir Murtubotnar.
Tökum að okkur trefjaplastvinnu.
Valjið Manakt.
^^^^argir eru þeirrar skoðun-
ar, að íslenskir auglýsingamenn
standist fyllilega samanburð við er-
lenda starfsbræður sína. HP hefur
•fregnað að Ólafur Stephensen,
sem sagður er í einkaerindum í New
York, hafi í raun farið til að sitja í
sérstakri dómnefnd á vegum CEBA
(Creative Excellence in Black Ad-
vertising) til að velja bestu auglýs-
ingu framleidda af þeldökkum
mönnum. Ólafur varð fyrstur Norð-
urlandabúa meðlimur í Auglýsinga-
klúbbi New York-borgar og bætir nú
enn skrautfjöður í hatt sinn. . .
Þ
að er margt kostulegt sem
sett er inn í kjarasamninga í því
skyni að hækka laun, án þess endi-
lega að hækka sjálft grunnkaupið.
Skondnasta tilvikið á markaðnum
er sjálfsagt að finna í auglýstum
kauptaxta Málarafélags Reykja-
víkur, sem gildir frá apríl 1987. Þar
koma auðvitað fram laun fyrir dag-
vinnu, eftirvinnu og mánaðarlaun,
auk sérstakra greiðslna fyrir álags-
vinnu. Þegar menn skoða hins veg-
ar skýringar á samsetningu laun-
anna verða margir hissa. Þar er til-
tekið ferða- og fæðisgjald, verkfæra-
og fatagjald, helgidagaálag og að
lokum mætingarskyldugjald.
Heimildir HP í röðum eldri málara
segja, að unga kynslóðin hafi komið
„mætingarskyldugjaldinu" inn í
samninga í óþökk þeirra sem eldri
eru. Spyrja má hvort von sé á sér-
stöku hvíldargjaldi inn í samninga
málara í næstu samningum. . .
Fjölbreytt dagskrá
fyrir börn og fullorðna
Dansleikir á föstudags- og laugardagskvöld.
Stórhljómsveitin Popprós (Bendix) skemmtir.
Mótið sett kl. 22.00 þann 26. júní.
Styrktarfélag
Staðarfells
6 metra útigrill. - Mætum öll með tjaldið og góða skapið.
Sætaferðir frá Rauða-
húsinu kl. 18.00 á fóstu
dag og kl. 10.00 á
laugardag.
Ferðir frá:
Ólafsfirði,
Dalvík og
Akureyri á föstudag.
■ regnast hefur að starfsmenn
skattstofa landsins séu órólegir
vegna óvissu um framkvæmd nýja
staðgreiðslukerfisins og skatt-
lausa ársins. Meðal ákvæða um
skattleysið er að það gidir ekki
nema menn hafi verið skráðir í land-
inu í 6 mánuði ársins eða meira og
gilda þá reyndar brot úr mánuði og
gæti tíminn því verið um 4'á mán-
uður. Eins og ákvæði laganna eru að
óbreyttu ættu fjölmargir íslendingar
erlendis sem hingað koma að vinna
í skemmri tíma en þetta það á hættu
að þurfa að borga hvort tveggja á
næsta ári, skatt af tekjum þessa árs
og staðgreiðslu skatta næsta árs, þ.e.
tvöfalt. Þetta bitnar auðvitað á þeim
sem síst skyldi, t.d. efnalitlum náms-
mönnum sem heim koma í vinnu
um nokkurra mánaða skeið, en skrá
sig ekki í landið, nema þá í fáeina
mánuði og njóta þá ekki skattleysis-
ins. Og enginn hefur varað íslend-
inga erlendis við, þ.e. hvatt þá til að
huga að skráningunni til að nýta sér
skattleysið og forðast tvísköttun. HP
frétti af náunga sem nýkominn er til
landsins og leitaði ráðgjafar á Skatt-
stofu Reykjavíkur. Þar fékk hann
þau svör hjá pirruðum fulltrúa að
hann vissi sjálfur ekki í raun hvað
fyrirspyrjandi ætti að gera og fengi
engin svör hjá skattstjóra, hvað þá
að línur væru lagðar af ráðherrum
eða öðrum embættismönnum . . .
l byggingablaði er fylgdi Helgar-
póstinum fyrir tveimur vikum var
greint frá dularfullum hlutum er
eiga sér stað í skipulagsmálum
Grjótaþorpsins. Þar var meðal
annars sagt frá því að til stæði að
selja Mjóstræti 2, en samkvæmt
skipulagi er heimilt að rífa það hús.
Það hefur nú verið auglýst til
sölu. . .
, /\M
UTSYFOl
Fagurs útsýnis get-
ur ökumaður ekki
notið öðruvisi en
að stöðva bílinn
þar sem hann
stofnarekki öðrum
vegfarendum í
hættu (eða tefur
aðra umferð).
jJUMFERÐAR
FISHER
BORGARTUNI 16
Reykjavík. sími 622555
SJÓNVARPSBÚDIK
6 HELGARPÓSTURINN