Helgarpósturinn - 24.06.1987, Page 18
Kyrkislanga á íslandi
Islendingar eru upp til hópa dauö-
hrœddir viö slöngur, kvikindi sem
eru harla fágœt hér á nordurhveli.
Vid setjum allar þessar skepnur
undir sama hatt og álítum þœr eitr-
adar, slímugar og stórhœttulegar
mönnum. Petta er nú ekki alls kost-
ar rétt því til eru slöngutegundir,
sem eru med öllu hœttulausar
mönnum þó svo að önnur og iðu-
lega minni dýr eigi oft fótum sínum
fjör að launa þegar hungrið sverfur
að.
Um daginn fréttum við af íslend-
ingi sem á tvær slöngur að gæludýr-
um, lítinn snák og stærri kyrki-
slöngu. Litli snákurinn er rétt um 35
sentimetrar að lengd og heitir Gart-
er Snake, sem þýðir sokkabands-
ormur á íslensku. Hann lifir á orm-
um og þess háttar smákvikindum
og er hið meinlausasta grey. Sokka-
bandsormurinn er dökkbrúnn að lit
með gulum röndum eftir sér endi-
löngum.
Kyrkislangan er aftur á móti mun
stærri eða um einn og hálfur metri
að lengd. Hún heitir King Snake á
ensku og útleggst það sem kónga-
slanga á íslensku. Þetta nafn er
þannig til komið að villt lifir þessi
slöngutegund á öðrum slöngum og
heldur þeim þar með í skefjum. A
heimaslóðum sínum í Norður-
Ameríku er slangan því álitin vera
hið mesta nytjadýr og er hún víða
friðuð. „Slöngurnar mega ekki hitt-
ast því sú stóra myndi ekki hika við
að éta þá minni og sem dæmi má
taka að þegar slangan lifir villt étur
hún stundum slöngur sem eru tals-
vert stærri en hún sjálf og eru jafn-
vel eitraðar," sagði eigandinn.
„Þessi kyrkislanga er aftur á móti
ekki eitruð og stafar því ekki mikil
hætta af henni. Villt á hún það til að
bíta og jagast á bitinu en þegar
slangan er búin að vera í búri um
tíma róast hún og er hættulaus. Það
er einna helst eftir máltíðir sem hún
getur orðið'æst og höggvið en það
líður fljótt frá og þegar hún er i
þessu skapi tek ég á henni með
hönskum."
En hvað skyldu svona dýr éta, því
ekki eru snákar og slöngur á hverju
strái hér á Islandi. „Eg gef henni
mýs. Þær verða að vera lifandi því
slöngur eru ekki hræætur og sér
hún um að drepa bráðina. Hún fær
að borða svona á tveggja til fjögurra
vikna fresti og þá sporðrennir hún
þremur eða fjórum músum i einu.
Slangan skilar síðan frá sér úrgangi
einu sinni í mánuði þannig að ekki
fylgja þessu dýri mikil óþrif.
Eigandinn keypti slönguna er-
lendis og umreiknað í íslenskan
gjaldmiðil kostar sú minni núna um
850 krónur en kyrkislangan er mun
dýrari og kostar um 5.100 krónur.
Kyrkislangan er núna um tveggja
ára gömul og getur hún náð 30 ára
aldri. Hún er svört að lit og með gul-
um þverröndum. „Þegar hún hefur
hamskipti dofna litirnir og slangan
verður blind um tíma. Augun verða
hvít og þessi hvíti vökvi rennur und-
ir húðina. Þegar hún fær sjónina aft-
ur glennir hún upp kjaftinn og losar
þannig haminn við höfuðið. Síðan
nuddar hún sér upp við steina og
þess háttar til þess að rúlla hamnum
niður. Þetta tekur aðeins um 15 til
20 mínútur." Þegar við heimsóttum
slönguna var hún nýbúin að skipta
3. ...og vefur sig utan um hana.
6. ...og höfuð slöngunnar tútnaði út.
1. Slangon og fórnarlambið
virða hvort annað fyrir sér.
um ham og voru litirnir mjög skýrir.
Sú litla var hins vegar farin að dofna
og var í það mund að fara að skipta
um ham. „Það er hægt að sjá hvern-
ig slöngímum líður á hamnum. Ef
hamurinn er í einu lagi er allt í lagi
með þær en ef hann fer af í bútum
er eitthvað að,“ sagði eigandinn
ennfremur. „Hamur kyrkislöngunn-
ar var í heilu lagi þegar hún skipti
um daginn þannig að það virðist
vera allt i lagi með hana.
Það fer lítið fyrir þessum dýrum
og það er lítil fyrirhöfn að hafa þau.
Ég geymi þær í glerbúrum, svona
nokkurs konar fiskabúrum, sem ég
smíðaði sjálfur og í þeim eru sandur,
steinar, trjábútar og vatn. Þar er
einnig pera sem heldur hitastiginu í
um það bil 28 gráðum. A veturna er
hægt að láta slöngurnar leggjast í
dvala með því að koma þeim fyrir á
dimmum og svölum stað og geta
þær þá sofið í þrjá eða fjóra mán-
uði.“
Myndirnar hér á síðunni sýna
máltíð hjá slöngunni. Músin átti sér
engrar undankomu auðið og virtist
vera auðveld bráð fyrir slönguna.
Það tók hana ekki nema um þrjár til
fjórar mínútur að deyða músina og
gera hana tilbúna til átu. „Slangan
reynir alltaf að grípa um höfuð fórn-
arlambsins og halda því. Ef hún nær
því ekki bíður hún þess að dýrið
deyi og finnur það þá og byrjar að
borða. Þetta verður slangan að gera
því hárin á músinni verða að snúa
rétt þegar henni er kyngt. Kjálkar
slöngunnar eru ekki fastir saman að
aftan sem gerir slöngunni kleift að
opna kjaftinn 180 gráður og gleypa
talsvert stærri bráð en maður telur
mögulegt. Til þess að mjaka bráð-
inni niður í maga nuddar slangan
saman kjálkunum. Síðan setur
slangan á sig hlykki til þess að ýta
henni alla leið og getur maður
greint hvernig bráðin færist niður
eftir dýrinu. Síðan þarf slangan ekki
að borða fyrr en að tveimur til fjór-
um vikum liðnum. Þess á milli
drekkur hún vatn eða liggur í því,
sérstaklega meðan á hamskiptun-
um stendur."
Að lokum spurði ég eigandann að
því hvort hann væri ekkert hræddur
við þessi dýr. „Nei, alls ekki,“ svar-
aði hann strax.
2. Stekkur á bróðina...
5. Slangan byrjuð að gæða sér á bráðinni...
8. Að éta eða vera étinn...
Slöngvað inn í
eilífðina
18 HELGARPÓSTURINN