Helgarpósturinn - 24.06.1987, Qupperneq 20
Dagbókin hennar Dúllu
Kæra dagbók.
Eg er búin að vera uppi í sveit í
nokkra daga. Fólkið, sem ég passa
hjá, bauð mér með sér í sumarbú-
stað rétt hjá Laugarvatni. Það var
miklu auðveldara að passa Hildi
litlu í sveitinni en í Vesturbænum,
því þarna voru ekki bílar á hundrað
kílómetra hraða um það bil að keyra
yfir greyið mörgum sinnum á dag.
Að vísu datt hún í lækinn og skar sig
á gaddavír, svo það þurfti að sauma
hana saman. En það var ekkert mik-
ið mál. Eg veiddi garminn upp.úr
ánni á sömu sekúndu og hún hvarf
fram af brúninni og hún var örugg-
lega aldrei í neinni lífshættu. Blotn-
aði bara og þurfti að skipta um föt.
Síðan kvefaðist hún svolítið. En
mamma hennar varð ofsalega
stressuð.
Ég varð nú hræddari, þegar barn-
ið skar sig á gaddavírsgirðingunni.
.Hún var að flýja undan öðrum stóra
bróðurnum, sem var að kasta sandi
á hana úr sandkassanum. Það fór
víst eitthvað í augun á henni og hún
hentist bara beint á girðinguna. Allt
í einu var litla krúttið bara orðið
útatað í blóði og háöskrandi og
hjartað í mér stoppaði. Ég get svarið
það. Þetta reddaðist hins vegar
alveg, því hjónin í næst-næsta húsi
eru bæði læknar og svo er nú pabbi
hennar Hildar tannlæknir og ekkert
óvanur að sjá blóð.
Sem betur fer voru læknahjónin-
&Lí
RUTUR & BILAR HF.
Coaches & Cars
Súðarvogur7 - 104 Reykjavlk
Útvegum alls konar tæki til ferðalaga fyrir einstaklinga og
fyrirtæki, svo sem rútur, litla ferðabíla o.s.frv. Útvegum einnig
leiðsögufólk, aðstoðum við skipulagningu ferða, leigjum fjalla-
skála og gerum tilboð yður að kostnaðarlausu. Því ekki að hafa
samband. Það gæti borgað sig.
f 68-88*68
NB. Við útvegum einnig limosinebifreiðar sem henta vel við ýmis
hátíðleg tækifæri, svo sem brúðkaup, afmæli o.s.frv.
d Faranqursgrindur
f Burðarbogar
0
ð
0
%
í
o
í
í
n
Margar mismunandi stærðir
og gerðir.
frá Mí -flcLp-CL á Ítalíu
Festingar fyrir reiðhjól.
'
Bogar og grindur fyrir
rennulausa bila.
Stórkostlegt úrval nýkomið.
Sérstakar festingar fyrir
rennulausa bila.
Bílavörubú6in
FJÖÐRIN
Skeifunni 2
82944
Heildsala
illmlini
heima og saumuðu sárin eins og að
drekka vatn. Pabbi Hildar gat mest
lítið hjálpað til, því hann var víst bú-
inn að drekka einum of mikið af ein-
hverjum verðlaunakokkteil, sem
hann var að prófa. Hann gat þess
vegna ekki heldur keyrt bílinn út að
læknabústaðnum. Hildur vildi bara
leyfa mömmu sinni að halda á sér,
svo ÉG keyrði stóra sjálfskipta bíl-
inn. ÉG! Og það var nú lítið mál,
maður. Ég er viss um að ég næ bíl-
prófi eins og skot, þegar að því
kemur.
Það var bara verst að missa af feg-
urðarsamkeppninni í sjónvarpinu
seinna um kvöldið. Við ,,unga fólk-
ið" (mér finnst þetta svo væmið
orðalag, sérstaklega þar sem strák-
arnir eru miklu yngri en ég og bara
krakkar...) vorum send snemma
upp að sofa, vegna þess að hjónin
þurftu að tala saman. Ég heyrði nú
ekki betur en það væri rifrildi frekar
en samtal. Hún er greinilega ofboðs-
leg gribba, þessi kona. Mátti maður-
inn ekki hafa það huggulegt og fá
sér kokkteil í sveitinni? Ekki gat
hann vitað að Hildur myndi fá sand
í augun og æða á gaddavírsgirð-
ingu, ég meina það.
Strákarnir tveir voru svo horfnir
næsta morgun. Það þurfti að kalla
út hjálparsveit og leita að þeim allan
daginn. Þá komu þeir sjálfir heim í
bústað, eftir að hafa bara verið í
sumarbústað rétt fijá. Þeir brutust
eiginlega inn í hann og voru svo að
dunda sér þar við ýmislegt. Popp-
uðu, skoðuðu helling af andrésblöð-
um sem þeir fundu, borðuðu yfir sig
af kexi og djúsi og sofnuð svo eftir
allt saman. Og á meðan vorum við
að drepast úr hræðslu og gáfum
óteljandi hjálparsveitarskátum
kaffi.
Þegar strákakvikindin voru mætt
á svæðið pökkuðum við niður og
fórum í bæinn. Guð hvað ég vona að
þau bjóði mér einhvern tímann aft-
ur. Þetta var svo rosalega gaman.
Eitthvað annað en þessi orlofshús,
sem pabbi og mamma draga mann
alltaf í, og þessar eilífu grillveislur
hans föður míns. Mamma mía...
Bless, Dúlla.
NÚ FER AD
HITNA í KOUJNUM
Það er tilhlökkunarefni að byrja
grillveislurnar aftur. Góður matur, fjör
og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta
í grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eða jafnvel
sjálft grillið. Leitaðu ekki langt yfir skammt.
Á næstu Essostöð finnur þú allt sem
þarf. . . nema grillmatinn!
Grillkol 2,3 kg
Grillkol 4,5 kg
Grillvökvi 0,51
Grillvökvi 1,01
Grill
225 kr.
434 kr.
75 kr.
120 kr.
frá 2076 kr.
Grilláhöld og grillbakkar
I úrvali.
20 HELGARPÓSTURINN