Morgunblaðið - 30.01.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.01.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1982 33 fclk í fréttum Míró 1 Á báti milli húsa + Svona var um að litast dag einn þegar íbúar í litlum bæ við Moselle-ána í Vestur-Þýskalandi risu úr rekkju og litu til veðurs. Áin flæddi yfir bakka sína, en áður hafði snjóað geysimikið og síðan rignt án afláts í nokkur dægur. Drengirnir reru því milli húsa ... Hefner fyrir rétt + Þetta er Hugh Hefner, kóng- ur í Playboy-fyrirtækinu, í réttarsalnum. Þar neitaði hann að vita nokkurn skapaðan hlut um saknæmt atferli fram- kvæmdastjóra spilavíta sem fyrirtækið rekur í Lundúnum. En heldur er hann dapurlegur ásýndum, Hugh Hefner í rétt- arsalnum ... + Spánski málarinn heimsfrægi Joan Míró er maður kominn undir nírætt og á þeim aldri er víst að ýmislegt sé farið að gefa sig í skrokknum. Hann er nú að jafna sig gamli maður- inn af mikilli aðgerð, þar sem læknar komu fyrir hjartatæki í honum. Míró er, svo sem mönnum er kunnugt, mjög lifandi í sinni listsköpun enn þann daginn í dag og teiknaði hann nýlega opinbert merki heimsmeistarakeppninnar í knatt- spyrnu sem fer fram á Spáni í sumar ... Schmidt hættur að reykja + Helmut Schmidt, kanslari Vestur-Þýska- lands hefur nú sagt löndum sínum að hann sé hættur að reykja — og í þetta sinn fyrir fullt og allt. „Eg skal borga hverjum sem sér mig reykja 100 mörk,“ sagði hann hlæj- andi á samkomu í Bonn fyrir stuttu ... O 19 000 Kvikmyndhátíð í Regnboganum 30. janúar til 7. febrúar 1982 Laugardagur 30. janúar: ELDHUGINN eftir Pirjo Honkasalo og Pekka Lehto Finnland 1980 Mynd um lífsferil dularfyllsta rithöfundar Finna, sem lýsir á stórbrotinn hátt finnsku þjóö- lífi uppúr aldamótum. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 2.30 (aöeins boðs- gestir) og kl. 5.00. ÆVINTÝRIÐ UM FEITA FINN eftir Maurice Murphy Ástralía 1981 Frábærlega skemmtileg kvik- mynd fyrir börn og unglinga. Sjaldan hefur eins skrautlegt lið sést á hvíta tjaldinu, dýr, börn og fullorönir. íslenskur skýringartexti Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05 SYSTURNAR eftir Margarethe von Trotta V-Þýskaland 1979 Fögur og átakamikil mynd eftir annan af höfundum „Kat- arinu Blum“. Síöasta mynd hennar hlaut fyrstu verölaun í Feneyjum 1981. Enskur skýringartexti Sýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10 STALKER eftir Andrei Tarkovskí Sovétríkin 1979 Afar margslungin og kyngi- mögnuð mynd, sem fjallar um dularfulla atburöi í Sovét- rikjunum. Eitt helsta stórvirki kvikmyndalistar siöari tíma. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 3.15 og 6.15. VERA ANGI eftir Pál Gábor Ungverjaland 1978 Fögur og gamansöm mynd um ástir og skoöanainnræt- ingu á Stalínstímanum i Ungverjalandi. Kvikmyndin hefur hlotiö ótal verðlaun og var kjörin af gagnrýnendum besta erlenda myndin í Bret- landi 1980. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 7.15, 9.00 og 11.00. SONARÓMYND eftir Claude Sautet Frakkland 1981 Sérstaklega vönduö og næm lýsing á samskiptum fólks, lífsbaráttu og viðureign viö eiturlyfjadrauginn. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 9.05 og 11.15. \ ENGIN ÁSTARSAGA - KVIKMYND UM KLÁM eftir Bonnie Sherr Klein Kanada 1981 Atgangshörö og tilfinningarík heimildarkvikmynd um klámheiminn. Sterkt framlag til umræöu um konur og ofbeldishneigö. Enskt tál. Sýnd kl. 9.10 og 11.10. Stranglega bönnuö börnum innan 16 ára. OFVIÐRIÐ eftir Derek Jarman Bretland 1978 Leikrit Shakespeare’s í óvenjulegum buningi. Hreint galdraverk. Enskt tal. Sýnd kl. 9.15 og 11.15. ■ r Sunnudagur 31. janúar: SNJOR eftir Juliet Berto og Jean-Henri Roger Frakklandi 1981 Hlaut verölaun sem „besta nútimakvikmyndin" í Cannes 1981. Fjallar á ferskan og spennandi hátt um undir- heima Pigalle-hverfisins, hversdagslíf eiturlyfja og vændis. Leikstjórarnir veröa við frumsýninguna. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 2.30 og 5.00. Bönnuö börnum innan 16 ára. ÆVINTÝRIÐ UM FEITA FINN eftir Maurice Murphy Ástralía 1981 Frábærlega skemmtileg kvik- mynd fyrir börn og unglinga. Sjaldan hefur eins skrautlegt liö sést á hvíta tjaldinu, dýr, börn og fullorðnir. Islenskur skýringartexti. Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05 PUNTILA OG MATTI eftir Ralf Lángbacka Finnland — Svíþjóö 1979 Myndin er byggö á leikriti Brechts og Hellu Wuolijoki, sem hér var sýnt fyrir nokkr- um árum. Lángbacka er frægur fyrir Brecht-upp- færslur sínar. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10. STALKER eftir Andrei Tarkovski Sovétríkin 1979 Afar margslungin og kyngi- mögnuö mynd, sem fjallar um dularfulla atburöi í Sovét- rikjunum. Eitt helsta stórvirki kvikmyndalistar síöari tíma. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 3.15 og 6.15. V kvikmym 1 Enskt Sýnd Lli LIF LEIKBRUÐANNA eftir Ingmar Bergmann V.-Þýskaland 1981 Stórbrotin kvikmynd um ein- manaleikann, víti hjóna- bandsins og þögla örvænt- ingu nútímamannsins, gerð í „útlegð“ Bergmanns í Þýzka- landi. íslenskur texti. Sýnd kl. 7.00, 9.00 og 11.00. Bönnuð innan 12 ára. BEST AÐ VERA LAUS eftir Francis Mankiewicz Kanada 1979 Sterk mynd er fjallar um ástr- íðusamband 13 ára stúlku og móöur hennar. Leikur stúlk- unnar er frábær í myndinni. Enskur skýringartexti. Sýnd kl. 9.00 og 11.00. ENGIN ÁSTARSAGA - KVIKMYND UM KLÁM eftir Bonnie Sherr Klein Kanada 1981 Atgangshörö og tilfinningarík heimildarkvikmynd um klámheiminn. Sterkt framlag til umræöu um konur og ofbeldishneigö. Enskt tal. Sýnd kl. 9.10 og 11.10. Stranglega bönnuð börnum ínnan 16 ára. NORÐURLJÓS eftir John Hanson og Rob Nilsson Bandaríkin 1978 Norðurljós fjallar um baráttu norrænna bænda í Norður- ríkjunum veturinn 1915 og hefur hlotiö fjöldamörg verö- laun fyrir áhrifamikla og fagra kvikmyndun Enskt tal. Sýnd kl. 9.15 og 11. £J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.