Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 1
96 SIÐUR
75. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
w—
V* ty'
'Æ', wwí'f'',/'W',ÆÆ'
Góða veðriö að undanförnu
hefur heldur betur hresst.
upp á sálarlíf höfuðborg-
arbúa í biðinni eftir vorinu
langþráða. Stálfuglar, jafnt
sem aðrir, svífa erinda
sinna um háloftin. Leigu-
þota Flugleiðafrá Afghan-
istan kemur hér inn til lend-
ingar á Reykjavíkurflug-
velli. í baksýn eru Bessa-
staðir.
MorgunblaAM/ Kristján.
Sjö létu líf-
ið í fellibyl
í Texas
París, Texas, 3. april. Al’.
SJÖ manns að minnsta kosti létu
lífið i bænum París er röd fellibylja
gekk yfir Texas og Arkansas. Að
auki slösuðust meira en eitt hundrað
manns í borginni. Þök fuku víða af
húsum og bifreiðir lágu eins og hrá-
viði á víð og dreif um borgina.
Þá létust sex manns í snjóflóðum
í Squaw Valley í Kaliforníu, en þar
hefur kyngt niður snjó að undan-
förnu.
Hinn harði vetur í Bandaríkjun-
um virðist seint ætla að taka enda.
f San Jose í Texas urðu hjólhýsabú-
ar að fiýja vagna sína vegna gífur-
legra rigninga. Nokkrir íslendingar
eru þar við háskólanám.
Innrásin í Falklandseyjar:
Bresku blöðin kreíjast
hernaðaraðgerða strax
„Breski flotinn siglir til Falklandseyja á mánudag/4 segir Thatcher
London, Buenos Aires, 3. apríl. AP.
BRETAR bera sig nú illa undan atburðunum á Falklandseyjum, sem þeir
kalla „meiriháttar alþjóðlega niðurlægingu“ og hafa margir á orði, að
Thatcher forsætisráðherra og ríkisstjórnin ættu að segja af sér. Argentínu-
mönnum svellur hins vegar móður í brjósti og fagna „endurheimt" eyjanna
eins og þeir kalla innrásina.
„Þeir sofnuðu sem Bretar en
vöknuðu sem Argentínumenn,"
sagði fréttamaður Lundúnablaðs-
ins Daily Mail í Port Stanley á
Falklandseyjum í símtali, sem
honum var leyft að hafa við blað
sitt. Hann sagði, að mikið hefði
Mexíkó:
Ottast um
5000 manns
Pichuralco, Mexíkó, 3. apríl. AP.
ENN er óttast um afdrif
5.000 manna í þorpunum,
sem einangruðust er eld-
fjalliö El Chiconal hóf að
gjósa á mánudagsmorgun.
Fjallið hefur tvisvar gosið
kröftuglega síðan.
Hjálparsveitir fínkembdu
þorpin í gær, en enn vantar
5.000 manns. Útilokað hefur
verið að fá upplýsingar frá
íbúum þorpanna, sem eru
dauðskelfdir. Ekki bætti úr
skák að flestir þeirra voru vel
við skál. Héldu þeir að kominn
væri heimsendir.
gengið á fyrir birtingu í gærmorg-
un, skotdrunur og skrölt í bryn-
vögnum, en allt hefði verið um
garð gengið á skömmum tíma.
„Komið að breska ljóninu með
allt niður um sig,“ sagði í dag í
breska blaðinu The Guardian og
bergmála þau orð biturleika
landsmanna með getuleysi stjórn-
arinnar til að verja Falklandseyj-
ar, þessar næstum síðustu leifarn-
ar af breska heimsveldinu. John
Nott, varnarmálaráðherra Bret-
lands, sagði i gærkvöldi, að verið
væri að safna saman „mjög öflug-
um“ flota, sem stefnt yrði gegn
herskipum Argentínumanna við
Falklandseyjar í 12.800 km fjar-
lægð, auk þess sem fallhlífaher-
menn og áhlaupssveitir væru við
öllu búnar.
Við umræður á þingi í dag sagði
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra, að flotinn myndi halda til
Falklandseyja á mánudag.
Eftir heimildum í breska varn-
armálaráðuneytinu er haft, að í
þessum flota verði líklega um 40
skip, þ.á m. tvö flugmóðurskip.
Meðal þyrluflugmanna á öðru
þeirra er Andrew prins, 22ja ára
gamall sonur Elísabetar drottn-
ingar, en ekki er vitað hvort hann
verður með í suðursiglingunni.
Breskir þingmenn, einkum úr
Ihaldsflokknum, og flest bresku
blaðanna krefjast þess í dag, að
breska hernum verði tafarlaust
beitt til að taka eyjarnar aftur og
undir það tekur jafnvel stórblaðið
The Times of London, sem þykir
þó sjaldan rasa um ráð fram í
skrifum sínum.
Mikill fögnuður ríkir meðal
Argentínumanna með innrásina
og reynir herstjórnin að nýta sér
áróðursgildi hennar sem best.
Sumir láta sér þó fátt um finnast
enda erfiðir tímar í landinu, at-
vinnuleysi og mikil verðbólga.
„Stjórnin þurfti á þessum sigri að
halda," sagði verkamaður í Buenos
Aires og minnti á, að sl. þriðjudag
hefði stjórnin att 5000 lögreglu-
mönnum með táragassprengjur og
kyifur gegn útifundi verkamanna.
Rex Hunt, breski landstjórinn á
Falklandseyjum, og landgöngulið-
arnir 84 komu í dag með argent-
ínskri herflugvél til Montevideo í
Uruguay og munu halda þaðan
heim til Englands.
Páfi á bekk meö
Birni Borg og
Muhammed Ali
lx)ndon, 3. apríl. AP.
YFIRMENN rómversk-kaþólsku
kirkjunnar á Bretlandseyjum
hafa samið við frægan bandari.sk-
an umboðsmann (Image Maker)
um að skipuleggja minjagripasölu
i tilefni heimsóknar Jóhannesar
Páls páfa II til Bretlands í mailok.
Kostnaðurinn við heimsókn-
ina er talinn munu nema um 6
milljónum sterlingspunda og
það er meira en kirkjuyfirvöld
geta með góðu móti ráðið við.
Ákveðið hefur verið að setja í
umferð 250 tegundir minja-
gripa, allt frá plastpokum með
mynd af páfa, upp í sérstök
merki úr platínu, sem ætlunin
er að fólk geti nælt í barm sér.
Ekki er þó gert ráð fyrir að
minjagripasalan standi straum
af öllum kostnaði við 6 daga
heimsókn páfans.
Umboðsmaður þessi, Mark
McCormack, og fyrirtæki hans
er frægt á sínu sviði og hefur
m.a. annast svipaða starfsemi
fyrir íþróttastjörnur á borð við
Björn Borg, Muhammed Ali og
kylfinginn fræga, Arnold Paim-
er, svo einhverjir séu nefndir.
Pólska herstjórnin sækir
til saka þriðja prestinn
Varsjá, 3. apríl. AP.
HERSTJÓRNIN í Póllandi hefur hafið mál á hendur kaþólskum presti, sem
sakaður er um að hafa undir höndum flugmiða með áróðri andstæðum
stjórnvöldunum, og er þetta þriðji presturinn, scm sóttur er til saka í því, sem
sumir kalla herferð á hendur kirkjunni. Einnig var frá því skýrt i dag, að
fangelsisdómur yfir einum forystumanni Samstöðu hefði verið þyngdur fvrir
áfrýjunarrétti.
Saksóknari herstjórnarinnar
sagði í dag í yfirlýsingu, sem birt
var í málgagni hersins, að sóttur
yrði til saka Wladyslaw Drewniak,
prestur í Jaroslaw í Suður-Pól-
landi, en hann hefði orðið uppvís
að því að hafa í fórum sínum og
dreifa flugmiðum þar sem her-
stjórnin væri fordæmd. Tveir
prestar aðrir eru nú í haldi. Var
annar dæmdur í þriggja og hálfs
árs fangelsi fyrir óhróður um yfir-
völdin en hinn bendlar stjórnin
við morð á lögreglumanni.
! Stefan Olszowski, meðlimur í
stjórnmálaráðinu og einhver
mesti harðlínumaður í pólska
kommúnistaflokknum, hvatti í
dag til þess, að andstaðan við yfir-
völdin og kommúnistaflokkinn
yrði upprætt með öllu í landinu.
„Með festu og ákveðni eigum við
og skulum uppræta áhrif póli-
tískra andstæðinga okkar á þjóð-
arvitundina," sagði hann í ræðu,
sem hann flutti á ráðstefnu um
hugmyndafræðileg efni.
I yfirlýsingu saksóknarans
sagði, að áfrýjunarréttur hefði
bætt tveimur árum við fjögurra
ára fangelsisdóm yfir Andrzej
Slowik, einum frammámanni
Samstöðu, en hann var dæmdur
fyrir að skipuleggja mótmælL
Einnig var sagt, að í síðustu viku
hefðu 52 menn fengið dóm fyrir
brot á herlögunum og rannsókn
væri hafin í máli 96 annarra.
Dómsmálaráðuneytið í Austur-
ríki tilkynnti í gær, að pólsku her-
flugmennirnir tveir, sem flýðu
þangað á herflugvél ásamt fjöl-
skyldum sínum, yrðu ekki fram-
seldir eins og pólsk yfirvöld hafa
krafist. Sagt var, að þeir yrðu
dregnir fyrir rétt í Vín og er talið,
að þeir verði sakaðir um þvingun,
en þeir neyddu flugvirkja með sér
í ferðina. Mega þeir búast við
hálfs árs fangelsi skilorðsbundíð.