Morgunblaðið - 04.04.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Bretland
Bylting boðuð
í upplýsinga- og
sjónvarpsmálum
Fimmtudaginn 25. febrúar $1. tilkynnti William Whitelaw,
innanrikisráAherra bresku stjórnarinnar, um einverja mikilvægustu ákvörft-
un fyrir atvinnu- og efnahagslifib i landinu, sem tekin hefur veriö i
stjórnartiÖ Margaret Thatcher. Aö vísu fór hún fram hjá flestum en þaö,
sem hér er um aö ræöa er bylting i breskum upplýsinga- og sjónvarpsmál-
um. Á næstu árum veröur sjónvarps- og fjarskiptahnetti skotiö á loft,
landiö allt kapalvætt og hvers kyns upplýsingastarfsemi og mörg önnur
þjónusta færö inn á hverja skrifstofu og hvert heimili.
Þessari framkvæmd lýsa margir sem álika byltingu og varö meö járn-
brautunum á sinum tima og eiga þaö lika sammerkt aö þurfa ekki aö
kosta breska rikiö einn einasta eyri, þ.e.a.s. ef stjórnmálamennirnir bera
gæfu til aö losa þessa nýju tækni úr viöjum rikishafta og reglugeröa.
Akvöröun bresku stjórnarinnar
var byggö á ráöleggingum mikil-
vægrar efnahagsnefndar, sem aft-
ur haföi til hliösjónar væntanlega
skýrslu frá ráögjafarnefnd um
upplýsingamál (ITAP), en þar er
eindregið hvatt til byltingar i
breskum fjarskiptamálum. I
fyrstu var ákveöiö, aö þriggja
manna nefnd undirbyggi máliö og
skilaöi af sér störfum eftir sex
mánuöi, en meö tilliti til þess, aö
styttast fer i kosningar i Bret-
landi, var ákveöiö aö hraöa þessi
enn frekar. Nú á nefndin
aö Ijúka störfum á
þremur mánuöum,
þannig aö endanlegar
ákvaröanir um
framgang
málsins
veröa tekn-
ar á haust
dögum og
byrjaö af fullum krafti i ársbyrjun
1983.
Fjarskiptabyltingin verður í
fyrsta lagi fólgin í því, að frá nýj-
um gervihnetti verður beint
tveimur sjónvarpsgeislum að
Bretlandi, og í öðru lagi er svo
kapalvæðingin, sem er miklu mik-
ilvægari. Gagnvirkt kapalkerfi,
sem senda má eftir í báöar áttir,
mun hafa í för með sér gífurlegar
þjóðfélagsbreytingar. Sölu-
mennska, innkaup, bankaviðskipti
og atvinnuhættir munu taka
stökkbreytingum og upplýsinga-
miðlunin í öllum sinum marg-
breytileik flyst inn á hvert heimili
og hverja skrifstofu í landinu.
í athugasemdum efnahags-
nefndarinnar er bent á, að núver-
andi kapalkerfi í Bretlandi er úr-
elt. Það nær aðeins til 1,5 milljóna
heimila og ræður ekki yfir nema
fjórum til sex rásum. Kapalfyrir-
tækin sjálf vilja að vísu færa út
kvíarnar og endurnýja búnaðinn,
en reglugerðagrúinn, sem þau
verða að fara eftir, gerir það að
verkum, að þau hafa í raun ekki
leyfi til annars en að tapa.
Hugmyndir stjórnarinnar eru
þær, að kaplarnir verði búnir
a.m.k. 30 rásum og reglugerðunum
rutt úr vegi til að auðvelda hvers
kyns sjónvarpssendingar, enda er
varað við því, að ef Bretar grípa
ekki tækifærið nú, muni þeir lúta í
lægra haldi fyrir innfluttri tækni-
þekkingu þegar „hin óhjákvæmi-
lega þróun kapalkerfanna hellist
yfir okkur“. Næstu þrjá mánuðina
mun því undirbúningsnefndin
kanna hvað þetta mikla fyrirtæki
kemur til með að kosta, en þær
áætlanir, sem þegar hafa litið
dagsins ljós, hljóða upp á 2,5
milljarða sterlingspunda. Einnig
verður hugað að því hvernig best
verður haldið í það kerfi, sem fyrir
hendi er hjá breska ríkisútvarp-
inu, BBC, og hjá ITV-sjónvarps-
stöðinni, og í því má raunar greina
nokkra löngun hjá yfirvöldum til
að koma á einhvers konar eftirliti
með efnisflutningi kapalkerfanna.
Til dæmis, að sumar rásirnar
flyttu auglýsingar (aðrar sjón-
varpsefni í áskrift) en með því
yrði bundinn endir á einokun ITV
á auglýsingaefni.
Núverandi stefna í breskum út-
varpsmálum hvílir á tveimur meg-
instoðum: annars vegar er útvarp-
að á sérstökum bylgjulengdum,
sem eru af skornum skammti og
háðar leyfisveitingu, og hins vegar
beint inn á heimilin um kapal.
Fram að þessu hafa stjórnvöld séð
ástæðu til að hafa strangt eftirlit
með hvoru tveggja, en þau standa
nú frammi fyrir því, að með þróun
kapalkerfanna hefur skortinum
verið útrýmt.
Sjónvarpskaplar ráða við allt að
50 rásir og glertrefjakapall hefur
næstum ótæmandi möguleika.
Art Ensamble of Chicago:
Framsækin jazztónlist
EINS og frá hefur verid skýrt í Mbl.
mun hin víðfræga bandaríska
jazzhljómsveit „Art Ensemble of
('hicago“ halda eina hljómleika hér
á landi, næstkomandi mánudag. Það
er Jazzvakning sem stendur fyrir
þessu tónleikahaldi og verða hljóm-
leikarnir í veitingahúsinu Broadway,
en forsala aðgöngumiða í hljóm-
plötuverslun Fálkans á Laugavegi.
í tilefni af komu Art Ensemble of
('hicago hingað til lands hefur Jazz-
vakning sent frá sér fréttatilkynn-
ingu, þar sem gerð er nokkur grein
fyrir hljómsveitinni. Hluti hennar
fer hér á eftir:
„Art Ensemble of Chicago var
stofnuð í kringum miklar tónlist-
arhræringar er áttu sér stað í
Chicago 1965. Fram að þeim tíma
hafði þróun framsækinnar jazz-
tónlistar að mestu leyti hvílt á
herðum fáeinna byltingarmanna.
Nokkrir framsæknir tónlistar-
menn, með píanóleikarann Muhal
Richard Abrams í fararbroddi,
stofnuðu hins vegar samtök, sem
höfðu þau markmið að efla alla
svarta tónlistársköpun og koma
upp aðstöðu fyrir, og umræðum
um, þróun jazztónlistar.
Upp úr því frjóa andrúmslofti
er ríkti í Chicago stofnuðu þeir
Lester Bowie, Roscoe Mitchell,
Joseph Jarman og Malachi Favors
Art Ensemble. Fyrstu ár hljóm-
sveitarinnar voru engin velmegun-
arár, hins vegar tókst þeim að
þróa og skapa sinn sérstaka tón-
listarstíl undir yfirskriftinni:
„Great Black Music — Ancient to
the Future". Strax á þessum árum
var ljóst að vonlítið var að festa
heiti á tónlist þeirra og reyndar
boðuðu þeir stundum dauða jazz-
tónlistar, eins og hún var þá
þekkt. Tónleikar tóku smátt og
smátt a sig aðra mynd en „bara"
tónlistarflutningur, því áhugi
meðlimanna á uppruna sínum og
alþýðutónlist frá öðrum heimsálf-
um leiddi til mikilla slagverks-
áhrifa og ættbálkagervis.
Eftir tveggja ára dvöl
(1969—71) Art Ensemble í Frakk-
landi sneri hljómsveitin aftur til
Bandaríkjanna sem kvintett.
Tækifæri til hljómleikahalds voru
sem fyrr fá, en er líða tók á ára-
tuginn fór almenningur og gagn-
rýnendur að veita hljómsveitinni
athygli. Er nú svo komið að Art
Ensemble nýtur ótvíræðrar virð-
ingar gagnrýnenda og óhemju
vinsælda tónlistaráhugafólks.
Fimmmenningarnir í Art En-
sembie eru allt viðurkenndir
hljóðfæraleikarar, sem og tón-
skáld. Trompetleikarinn Lester
Bowie fæddist í Maryland 1941 og
hóf hljóðfæraleik 5 ára gamall.
Fyrir daga Art Ensemble lék hann
víða og t.d. með blúsleikurunum
Little Milton og Albert King.
Saxófónleikarinn Roscoe Mitchell
fæddist í Chicago 1940. í upphafi
nam hann klarinettleik í .gagn-
fræðaskóla, en skipti síðar yfir á
saxófón. Mitchell leikur nánast á
öll blásturshljóðfæri og hefur á
síðustu árum vakið athygli sem
tónskáld. Líkt og Mitchell leikur
hinn 45 ára gamli Joseph Jarman
á öll blásturshljóðfæri, en lætur
ekki þar við sitja, því hann hefur
einnig skrifað og gefið út leikrit og
Ijóð. Um bassa- og slagverksleik
sér jafnaldri Jarmans, Malachi
Favors Maghostus. Famoudou
Don Moye sér um trommur og
slagverk. Hann er fæddur í New
York 1946 og hefur auk Art En-
semble leikið með Chico Freeman
og Cecil Mcbee."