Morgunblaðið - 04.04.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Sýnithorn al verkum eftir Ólöfu I. Balduredóttur.
Merki eftir Steve Fairbairn.
— En nú er það svo að í löglegum
auglýsingum er beitt ýmsum sál-
rænum bellibrögðum, svo sem því
að tengja einhverja vöru, sem á að
selja, hvers kyns lífshamingju og
unaðssemdum, sól og fegurð.
„Það er rétt að auðvitað er ákveð-
inni sálfræði beitt í auglýsingum.
Það er reynt að skapa þörf hjá fólki
fyrir hluti, sem það vantar í raun
alls ekki. En þó er það aðallega
þannig að auglýsingar fá fólk til að
kaupa hluti fyrr en ella.
Það hefur mikið verið rætt og rit-
að um börn og auglýsingar, því þau
eru jú mjög áhrifagjörn og læra
textann úr sjónvarpsauglýsingun-
um og syngja Iögin úr þeim í tíma
og ótíma. Stundum er talað um að
auglýst sé í gegnum þau og reynt að
fá börnin til að hafa áhrif á for-
eldra sína. Því miður er oft sitthvað
til í þessu, en þess er og að gæta að
margt, sem auglýst er, er beinlínis
ætlað börnum og þau eru hins vegar
svo áköf að foreldrarnir freistast til
að láta eftir þeim. Þetta er ekki síð-
ur uppeldislegt atriði en harður
áróður. Fagfólk á auglýsingasviðinu
hefur leitast við að forðast að höfða
til barna á óheiðarlegan hátt, en
erfitt er að koma í veg fyrir að þau
læri auglýsingatexta úr sjónvarpi,
eða ágirnist þá hluti sem auglýstir
eru, rétt eins og fullorðna fólkið."
Löggilding myndi
auðvelda eftirlit
„Allt þetta yrði auðveldara að
fást við, ef löggilding fengist, vegna
virkara eftirlits. Tækninni fleygir
nú svo ört fram, að best væri að
vera kominn með öruggan farveg
fyrir auglýsingagerð í landinu, áður
en flæðir yfir bakkana og vand-
ræðaástand hlýst af. í tengslum við
þetta má nefna, að nú er kominn
nýr vettvangur fyrir auglýsingar,
sem getur átt eftir að hafa mikil
áhrif. Það eru myndbandakerfin í
landinu. Við eigum eftir að sjá
hvernig þróunin verður á því sviði,
en þar geta komið upp ýmis vanda-
mál ef óvarlega er farið með efnis-
val og áróður alls konar, því ekkert
eftirlit er nú með þeim og fólkið
sjálft, sem á þau horfir, gerir sér
enga grein fyrir því, sem verið er að
mata það á.
Annað, sem er sérlega umhugs-
unarvert, er það, að nú eru nær allir
íslenskir auglýsingahönnuðir að
hamast við að selja Islendingum út-
lendar vörur, á sama tíma og Is-
lendingar eru að missa stóra mark-
aði á sviði útflutnings. Það er líkt
og yfirvöld hafi engan veginn áttað
sig á því, að vörur seljast ekki af
gömlum vana. Það þarf að stunda
öfluga útbreiðslu- og kynningar-
starfsemi erlendis í þágu útflutn-
ingsatvinnuveganna og sérmennta
fólk til starfa á þeim vettvangi.
Það er ótrúlegt hvað auglýsingar
geta haft mikil áhrif, ég trúði því
ekki sjálfur lengi vel að þær hefðu
svo mikil áhrif sem raun ber vitni.
Þess vegna skiptir það geysimiklu
máli hvað það er, sem verið er að
auglýsa og hvernig það er gert.“
SIB
37
Þaö er ekki seinna vænna en aö fara aö huga aö eyrnakonfektinu
fyrir páskana.
Ekki er ráö nema í tíma sé tekið. Viö bendum hér á örlítiö brot góöra
platna, sem láta vel í eyrum og ef þú hefur áhuga á einhverju ööru, er
um aö gera aö líta viö og kanna úrvaliö.
□ Bill Wyman — Bill Wyman
Bill Wyman, hinn trausti bassa-
leikari Rolling Stones á að baki
um 20 ára starfsferil í einhverri
beztu rokksveit heims. Það eru
ekki margir, sem þekkja tónlist
Wymans sjálfs, en nú gefst kjör-
ið tækifæri til að eignast plötu
með tónsmíðum hans. Lagið Si
Si Je Suis un Rock Star, hefur
notið vinsælda og nú er A New
Fashion að koma út á lítilli
plötu. Fylgstu með Wyman.
□ Mike Oldfield — 5 Miles Out
Það efast enginn um snilli Mike
Oldfields og nú sendir pilturinn
frá sér 9. plötu sína, 5 Miles Out.
Hann heyrist nú syngja í fyrsta
sinn í titillagi plötunnar og einn-
ig syngur Maggie Reilly í nokkr-
um laganna. Hér er enn eitt
snilldarverkið frá hendi þessa
mikla völundar.
□ Jona Lewie — Heart Skips Beat
Kappinn sem söng Stop the Cav-
alry er loksins kominn með stóra
plötu eftir 2 xk árs meðgöngu-
tíma. Jona Lewie hefur sérstöðu
innan breska poppsins og er tón-
list hans mjög grípandi og ríkir
góður andi í lögum hans. Það er
ekkert feilpúst hjá Jona Lewie.
□ EGO — Breyttir tímar
Það eru margir búnir að bíða
lengi eftir fyrstu plötu EGÓsins
og þá er hún loksins komin út og
þvílík plata. Þú sérð ekki eftir
því að kýla á eintak strax, því
gæðin eru meiriháttar. Það er
ekki tekið á málunum með nein-
um silkihönzkum og hvergi slak-
að á frekar en vant er þegar
EGÓistar eiga í hlut.
□ Men at Work — Business
as Usual
Men at Work er ein af topp-
hljómsveitum andfætlinga
okkar, Astrala. Lagið Down
Under sat lengi vel í efsta sæti
ástralska listans og nú er Who
Can It Be Now þrælvinsælt.
Gerðu þér nú greiða og kynntu
þér eitt af því bezta sem er að
gerast i rokki hinum megin á
jarðarkringlunni.
□ Depeche Mode — Speak
& Spell
Heppnin hefur fylgt Depeche
Mode frá upphafi ferils þeirra og
er hljómsveitin nú ein af þeim
hæst skrifuðu í Bretlandi. Speak
& Spæll hefur selst stöðugt þar í
landi, sem og hér heima, og
gagnrýnendur eru sammála um
ágæti þessarar plötu. Speak &
Spæll er grípandi dansplata með
framtíðarblæ.
□ Go Go’s — Beauty and the Beat
Bandarísku grýlurnar Go Go’s
gera það gott þessa dagana, enda
búnar að vinna vel fyrir vinsæld-
unum. Go Go’s leika hressa
popptónlist, sem smitar út frá
sér og geislar af gleði. Og svo er
það ekki ónýtt, að þetta er fyrsta
kvennasveitin, sem tyllir sér á
bandaríska toppinn.
□ Tammy Wynette — Best of
Þar kom að því að Islendingar
gerðu sér grein fyrir ágæti
Tammy Wynette, sem hefur um
langt skeið verið ein bezta
countrysöngkona heims. Þessi
plata inniheldur lögin: Stand by
Your Man, D.I.V.O.R.C.E., Ap-
artment No. 9, Hey Good Look-
ing og There Goes My Every-
thing.
Vinsælar plötur:
□ Nolans — Portrait
□ Ýmsir — Beint í mark
□ Ýmsir — Næst á dagskrá
□ Toyah — Anthem
□ New Music — Warp
□ Þursarnir — Gæti eins verið
□ Matchbox — Rokkað með Matchbox
□ Jóhann Helgason — Tass
□ J. Geils Band — Freeze-Frame
□ Kool & the Gang — Something
Special
□ UFO — Mechanix
Q Rupert Hine — Waving nót
Drowning
□ Simon & Garfunkel — In Concert
□ Soft Cell — Non Stop Erotic
Cabaret
□ Placido Domingo — Perhaps Love
□ Bodies — Bodies
Q Human League — Dare
□ Loverboy — Get Lucky
□ Journey — Escape
□ Cars — Shake it Up
□ Quarterflash — Quarterflash
□ AC/DC — For Those about to Rock
□ Cheetah —
□ Rod Stewart — Tonight I’m Yours
□ Japan — Tin Drum
Q Start — En hún snýst nú samt
Q Mezzoforte — Þvílíkt og
annað eins
LITLAR PLÖTUR:
Q Joan Jett & the Blackhearts — I
Love Rock & Roll
Q Fun Boy Three — Im ain’t what
You Do
Q J. Geils Band — Centerfold
Q Dr. Hook — Baby Makes Her
Blue Jeans Talk
Q Lakeside — I Want to Hold
Your Hand
Q Stars Sound — Stars on Stevie
Q Stevie Wonder — That Girl
Q Rupert Hine — The Set Up
Q Chris De Burgh — The Traveller
Q Spilafífl - 3-30
Q Valli og víkingarnir — Úti
alla nóttina / Til í allt
og ýmislegt fleira.
Ath.:
Viö minnum á TDK-kassetturnar frábæru. Einnig er til mikið úrvai af öðrum
nýjum plötum og eldri sígildum gullkornum.
Þú getur hringt eða kíkt inn í Hljómplötudeild Karnabæjar, já, eða krossað
við þær plötur sem hugurinn girnist og sent auglýsinguna.
Nafn .....................................................................
Heimilisfang .............................................................
iUíaot hf