Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Arnór Björnsson, sigraði í eldri flokld.
Þröstur Þórhallsson, sigraði í yngri flokki. Myndir Mbi. Júlíus.
Skólaskákmót Reykjavíkur:
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
a>
>
<o
a>
>
(0
a>
>
ro
a>
>
es
Litaver auglýsir
/ an°
<^°
Opið til kl. 7 föstud.
til hádegis á laugard.
Teppi
Nylon — Akryl — Filtteppi
Akryl og ull — Ullarteppi
Stök teppi — Mottur —
Baöteppi — Gólfdreglar —
Baömottusett
Úrval af gólfdúkum.
Ný þjónusta
Sérpöntum Ullar — Akryl
— Nylon-teppi.
Líttu viö í Litaver
því þaö hefur ávallt borgaö sig.
iilll
a>
>
ro
a>
>
Q
Litaver — Litaver — Litaver — Litaver Grensásvegi 18, sími 82444
Arnór Björnsson sigraði
í eldri flokki
Þórhallsson i
ARNÓR Björnsson og Þröstur Þór-
halisson urðu skólaskákmcistarar
Keykjavíkur, en mótinu lauk á
fímmtudag. Arnór, sem stundar nám
í Hvassaleitisskóla, sigraði í eldri
Dokki, en Þröstur, sem stundar nám
í Brciðagerðisskóla, sigraði í yngri
flokki. Báðir sigruðu þeir með
nokkrum yfirburðum, Arnór vann
alla andstæðinga sína og hlaut 7
vinninga og Þröstur hlaut 6'/z vinn-
ing af 7 mögulegum.
Þröstur sigraði í yngri flokki
annað árið í röð. Tómas Björns-
son, Hvassaleitisskóla, varð annar
en hann er hins vegar núverandi
skólaskákmeistari Islands. Hann
skaut Þresti aftur fyrir sig á
landsmótinu. Þröstur hefur að
undanförnu átt mikilli velgengni
að fagna og er nýbakaður Norður-
landameistari í skóiaskák í sínum
og Þröstur
yngri flokki
aldursflokki, en þá hafnaði Tómas
í fjórða sæti.
Arnór sigraði örugglega í sínum
flokki, en nokkuð óvænt hafnaði
Þráinn Vigfússon, Fellaskóla, í
öðru sæti og skaut hann nokkrum
efnilegum skákmönnum aftur
fyrir sig, þeirra á meðal Jóhannesi
Agústssyni, Æfingaskóla KHÍ,
skólaskákmeistara Reykjavíkur
1981. Jóhann hafnaði í öðru sæti á
landsmótinu í fyrra. Þráinn Vig-
fússon varð annar í eldri flokki
með 5'á vinning.
Tveir efstu menn úr hvorum
flokki komast áfram á landsmótið,
sem væntanlega fer fram í Hafra-
lækjarskóla síðar í þessum mán-
uði. í eldri flokki tóku 199 nem-
endur úr 15 skólum þátt í undan-
rásunum og 654 úr 18 skólum í
yngri flokki.
Séð frá flugvellinum að skíðamiðstöðinni í Hólsdal.
Daglegar skíðaferð-
ir t|l Siglufjarðar
FERÐASKRIFSTOFAN Farandi
býður nú upp á skíðaferðir til Siglu-
fjarðar. „Það er kunnara en frá
þurfi að segja, að á Siglufirði er ein-
hver besta skíðaaðstaða hér á landi.
Fyrir skömmu var lokið við að inn-
rétta skíðamiðstöð á Hóli og er nú
aðstaða til að taka á móti ferða-
mönnum og boðið er upp svefnpoka-
pláss og morgunverð,“ sagði Har-
aldur Jóhannsson, forstjóri Farandi
í samtali við Mbl.
„Við bjóðum daglegar flugferðir
itil Siglufjarðar. Skíðamiðstöðin á
Hóli er í hlíðum Hólshyrnu,
jskammt frá flugvellinum. Skíða-
svæðið er í Hólsdal, þar eru brun-
og svigbrautir og auk þess ágætar
gönguleiðir. Þá má minna á, að
Siglufjörður er eini staðurinn sem
býður upp á stökkpall. Óvíða er
skemmtilegra skíðasvæði á land-
inu og aðstaða er öll til fyrir-
myndar og örstutt er að fara inn í
bæinn og þar má fá kvöldverð,"
sagði Haraldur.
fyrir iónaóarm
DUF!
en
__ _______gipMi
B.B. BYGGINGAVÖRUR HE
SUOURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.