Morgunblaðið - 07.10.1986, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
Ég þakka öllum sem sýndu mér hlýhug og vin-
semd á 85 ára afmceli mínu 27. september
með nœrveru sinni, gjöfum, blómum ogskeytum.
Þorsteinn Krístjánsson,
Laugarnesvegi 42,
Reykjavík.
Ég vil þakka öllum þeim sem sýndu mér vin-
áttuhug með gjöfum, skeytum og blómum i
tilefni áttrœðisafmœlis míns 22. september.
Sérstaklega vil égþakka börnum og barnabörn-
um fyrir kaffihófiÖ sem þau héldu mér.
Elísabet Guðrún Hálfdánardóttir,
Aðalstræti 13, ísafirði.
Þrefalt vasaljós.
Meira Ijós með
OSRAM Halogen
Nýja Halogen-
vasaljósið frá
OSRAM hefur alla
kosti halogen-
tækninnar:
Þreföld meiri birta,
meö sömu raf-
hlöóum.
Þreföld
langdrægni, og
tvöföld ending Ijós-
gjafans miðað við
önnur vasaljós.
Meðfærilegt, vatns-
varið og öruggt.
OSRAM
Ijóslifandi
orkusparnaður
Fæst i öllum helstu raftækjaverslunum og
kaupfélögum. Heildsölubirgöir:
JÚHAWW ÚLAFSSON & CO. HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavík - Sími 688 588
Nú
þrefalt
meira Ijós
FULLBÚNAR SKRÚFULOFTÞJ0PPUR
GERÐ GA
Vinnuþrýstingur 8-20 bar
Afköst 73-377 l/s
BETRI
ÁRANGUR MEÐ
Öruggur búnaöur fyrir
1. Mannvirkjagerö
2. Verktakastarfsemi
3. Þungaöiönaö
4. Léttan iönað
ATLAS COPCO
ATLAS COPCO er stærsti framleiöandi í heimi á loftþjöppum
og tækjabúnaði fyrir þrýstiloft. Fyrirtækið þekkir hvernig
minnka má framleiðslukostnað með notkun á loft- og gas-
þjöppum, þurrkurum, síum, kælum, iönaöarverkfærum og
tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar.
■■■■■■■■ Fyrirtæki meö framleiöslu er ■■■■■■■■
JhlctsCopcc tryggir Þér bætta arðsemi og JLOasCopcc
góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur
LANDSSMIÐJAN HF.
■'^SOLVHOLSGOTU 13 - REYKJAVÍK
f SÍMI (91) 20680
VERSLUN: ARMÚLA 23
Aldarminning
eftir Ásthildi Erlings-
dóttur
Fundum okkar afa míns, Ólafs
V. Davíðssonar, bar fyrst saman á
björtum vordegi árið 1938 á fæð-
ingardeildinni á Ríkisspítalanum í
Kaupmannahöfn. Égþá lítill hnoðri,
ekki sólarhrings gömul, óskrifað
blað. Hann glæsilegur á velli,
víðförull athafnamaður á bezta
aldri. Satt bezt að segja bar þennan
fund okkar dálítið óvenjulega að.
Afi minn var um margt einstakur
maður. í þetta skipti gat hann ekki
beðið eftir venjulegum heimsókn-
artíma til að sjá fyrsta bamabamið.
Hann gerði sér því lítið fyrir og
samdi við tengdason sinn, sem þá
var kandidat á deildinni, um að
hann lánaði sér hvítan slopp og
kynnti sig fyrir kollegum sínum sem
yfirlækni frá íslandi.
Árin liðu, úthafið og heimsstyrj-
öldin skildu okkur að. I huga mínum
í bemsku var hann eðlilega eins og
ljósmyndin sem við áttum af hon-
um: Kankvís glampi í augum,
hlýlegt bros, hár mjög tekið að
þynnast á kollinum en myndarlegur
kragi, rós í hnappagati. Síðar varð
mér ljóst að myndin gerði honum
góð skil. Hann átti það til að benda
á kollinn á sér og segja grafalvar-
lega en þó með glettnu bliki: „You
caní have both brain and hair.“!
Blómið í hnappagatinu var ómiss-
andi hluti af honum, ávallt ferskt
sem var því fyrir að þakka að hann
átti „pínu“-blómavasa sem hann
setti vatn í og fest aftan við hnappa-
gatið.
Tilhlökkunin var mikil og óþreyj-
an að hitta hann í eigin persónu,
en sú stund rann upp þegar ég var
á áttunda ári, nýkomin til íslands
frá Danmörku. Urðu það miklir
fagnaðarfundir. Við snæddum sam-
an kvöldverð, einhvem þann eftir-
minnanlegasta sem ég hef lifað.
Hann tók strax til óspilltra málanna
að kenna mér í eittskipti fyrir öll
hvemig ég ætti að haga mér á
meðan á borðhaldi stæði: Halda á
hnífi og gaffli með sérstökum
hætti, leggja áhöldin frá mér sitt
upp á hvom mátann, allt eftir því
hvort ég óskaði eftir að fá meiri
mat eða ekki, skála eftir ákveðnum
reglum og svo framvegis. Allt að
brezkum heldrimanna sið. Hef ég
oft síðar á ævinni minnst þessarar
kennslustundar með þakklæti.
Honum á ég ótal margt annað
að þakka þar á meðal dvöl mína á
unglingsárunum sumarlangt hjá
góðvinum hans, þeim heiðurshjón-
um Ethel og Jóni Oddssyni, skip-
stjóra, á eyjunni Mön. Einnig
sumarleyfi hjá vinum hans í Ham-
borg. Hann var vinmargur og
vinsæll, hann afi minn, aufúsugest-
ur hvar sem hann kom. Honum
fylgdi jafnan hressandi loft stór-
borganna. Hann var sannkallaður
heimsborgari.
Hann hafði ákaflega fágaða og
prúðmannlega framkomu, var mik-
ið snyrtimenni, lét sér annt um að
vera vel til fara. Klæddist oft og
tíðum í svipuðum stíl og almennt
var meðal betri borgara í Bretlandi
á öndverðri öldinni: Slifsinu var
komið fyrir allt að því á listrænan
hátt með einum slifsispijóni á hnýt-
ingar. Skyrtan var með uppbrettum
flibba en jakkinn gat verið með
ýmsu móti. Buxumar dökkar, fín-
teinóttar með egghvössum brotum.
Skómir stífgljáðir, að hluta huldir
hnepptum hlífum úr taui. Fyrir-
mannlegur hattur kórónaði svo
listaverkið. Hann bar sig öðrum
mönnum betur og synd væri að
segja annað en að hann hafi aukið
til muna við fjölbreytilegt mannlífið
í miðbænum á sínum tíma, enda
hafði hann dvalið langdvölum er-
lendis á fjórða og fimmta áratugn-
um. Hann bjó í Færeyjum,
Bretlandi, Danmörku og Þýzkalandi
auk þess sem hann hafði lagt leið
sfna til annarra landa þar á meðal
Frakklands og kunni því mikið fyr-
ir sér í erlendum málum. En
skammt hrekkur ytri mótun ef inn-
viðunum er ábótavant. Afi þáði
ríkulegar vöggugjafir úr hendi
skapara síns.
Ætli nokkum hafi órað fyrir því
austur á Vopnafirði á því herrans
ári 1886 að sonur þeirra hjóna
Valdimars Davíðssonar verzlunar-
stjóra og konu hans, Elínar
(Bjamadóttur) Davíðssonar, Ólafur
V. Davíðsson ætti eftir að eiga jafn
viðburðaríka ævi og raunin var á.
Á Vopnafírði fæddist hann hinn
7. dag októbermánaðar og ólst þar
upp fyrstu æviárin. Foreldrar hans
brugðu búi og fluttust til Kaup-
mannahafnar með fjölskylduna,
Ólaf yngstan og tvær eldri dætur,
þær Jörgínu, síðar gift Lúðvig And-
ersen konsúl, og Friðrikku, síðar
gift Pétri Thoroddsen lækni. Þegar
Ólafur Davíðsson
Ólafur er aðeins 7 ára gamall varð
faðir hans bráðkvaddur, 46 ára að
aldri, og sneri móðir hans þá heim
og kom Ólafí fyrir í fóstur til frænda
síns, Jóhannesar Sigfússonar, þá
kennara í Flensborgarskóla í Hafn-
arfírði, og konu hans, Cathincu (f.
Ziemsen). Burtfararprófi lauk hann
úr Flensborg 1901. Ekki átti hann
heima í Hafnarfirði þá nema fá ár,
en eftir það leit hann á Jóhannes
og Cathincu sem fósturforeldra
sína. Frá Hafnarfírði fluttist hann
til Akureyrar og stundaði verzlun-
arstörf hjá frænda sínum Laxdal.
Þar komst hann í kynni við ung-
mennafélagshreyfínguna, en hann
fylgdi mikill áhugi á íslenzkri glímu.
Hinn 21. ágúst 1906 fór fyrzta ís-
landsglíman fram þar í bæ og vann
hann Grettisbeltið og þar með
sæmdarheitið, Glímukappi íslands,
sá fyrzti sem bar þann titil.
Skömmu síðar fluttist hann til
Aberdeen í Skotlandi þar sem hann
vann við fískverkun hjá fyrirtækinu
Bookles Bros., en það stofnaði síðan
útgerðar- og fiskverkunarfélag í
Hafnarfírði árið 1909. Sama ár
settist Ólafur að þar og vann fyrstu
árin hjá því félagi, en stofnaði síðar
eigið fyrirtæki. Eftir það var hann
sinn eigin herra og fékkst á seinni
árum við margvíslegan útflutning
á sjávarútflutningsvörum.
Árið 1912 gekk Ólafur að eiga
Jóhönnu Finnbogason (Hönnu Daví-
ðsson), dóttur Guðbrandar Finn-
bogasonar, verzlunarstjóra hjá
Fischersverzlun, og Louise (f. Ziem-
Norrænir tónlistardagar:
Hlj óms veitarverk
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Á tónleikum þessum voru flutt
fjögur verk en eitt þeirra hafði ver-
ið ætlað sem fyrsta verk Norrænu
tónlistardaganna, þ.e. Marchenbild-
er eftir Hans Abrahamsen. Þar með
hafði tekist að flytja öll þau verk
sem fyrirhuguð voru á efnisskrá
hátíðarinnar utan Kvintett í e-moll
eftir Atla Ingólfsson, sem ekki tókst
vgna veikinda eins hljóðfæraleikar-
ans og eitt verk eftir Rántavaara.
Fyrsta verkið á hljómsveitartónleik-
unum í Háskólabíói sl. fostudag,
var verk eftir Steen Pade, sem hann
nefnir Arcus. Verkið er byggt á
líðandi samhljórpan og bregður
einnig fyrir ýmsum stefgerðum, oft
í þráste^un, en í heild er verkið
þýtt og hljómfallegt. Steen Pade
lærði fyrst hjá Ib Nörholm og síðar
hjá Per Nörgárd og Karl Aage
Rasmussen. Eftir Miklos Maros var
fluttur konsert fyrir básúnu og
hljómsveit, en einleikarinn var snill-
ingurinn Christian Lindberg. Auk
ýmissa tæknifyrirbæra eins og
hljómbrots náttúrtónanna og sam-
hljómunar, þar sem hljóðfæraleik-
arinn sjmgur inn í básúnuna um
leið og hann leikur á hana og nær
því að leika samhljómandi tóna á
þetta „einraddaða" hljóðfæri, er
hljóðfæraleikaranum gert að leika
á ystu sviðum hljóðfærisins, hvaða
listrænum tilgangi það svo þjónar.
Þrátt fyrir að hönnun tónverksins
virðist þýðingarmeiri en listræn nið-
urstaða, var á köflum að heyra
einstaka tilbrigði í samspili hljóm-
sveitar og básúnu. Það er eins og
flest tónverkin á Norrænu tónlistar-
dögunum séu meira og minna
smíðuð í einni og sömu smiðjunni,
sem aðeins sannar hversu „aka-
demísk" forskrift er markvisst
mótunartæki, og predikunin um
framúrstefnuna er múlbindandi,
jafnvel þó hún sé ekki orðin neitt
annað að innihaldi en úr sér gengin
trúarkredda. Er þar ekki að finna
ástæðuna fyrir áhugaleysi almenn-
ings en ekki í skorti á áróðri eða
stýrandi kennslu? Sérfræðingamir
skilgreina og áætla, en það er hinn
kunnáttulausi almenningur sem
dæmir og dómur hans er réttur og
endanlegur, því honum hefur ekki
verið forstýrt af fræðilegum niður-
stöðum, sem í sjálfu sér eru
marklausar. Þegar mikla list ber
fyrir augu og eyru manna, skynja
allir snilldina án þess að vita hvers
vegna. Þessi regla á einnig við þeg-
ar af litlu er að taka og byggist á
því að tilfinningar manna eru mark-
vissari og heiðarlegri dómari en sú
formötun sem kunnátta oftlega er.
Bæði verk Abrahamsen og síðasta
verkið, Wirklicher Wald, eftir Ame
Nordheim, em verk sem samin em
samkvæmt þeim kröfum sem nú
em gerðar til nútímatónskálda.
Þetta em ill örlög þeim sem annars
ættu að geta sagt hug sinn og gert
vel. Kór Langholtskirkju, undir
stjóm Jóns Stefánssonar, söng með
í verkinu og átti hann vegna smæð-
ar og ónógs undirbúnings ekki nógu
sterka aðild að verkinu, sem þrátt
fyrir að vera forskriftartónlist ber
í sér einstaka fallega hljóman. Sópr-
ansöngkonan Solveig Faringer söng
sópranhlutverkið mjög vel. Líklega
má telja að hljómleysi kórsins hafi
valdið nokkm um að flutningur
verksins var svo áhrifalítill og kem-
ur þar líklega til mannfæð og ill
hljóman hússins. Stjómandi tónleik-
anna var Páll P. Pálsson og leiddi
hann Sinfóníuhljómsveit íslands af
öryggi og festu.