Morgunblaðið - 07.10.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
25
4
Alvarlegt
umferðar-
slys í Mikla-
holtshreppi
Borg, Miklaholtahreppi.
SNEMMA á sunnudagsmorgun
þann 5. október varð umferðar-
slys á þjóðveginum í Miklaholts-
hreppi. Slysið varð við Kleifá.
Bifreið með tveimur ungum
mönnum var á leið vestur og
hafnaði utan vegar. Báðir pilt-
arnir slösuðust mikið. læknir og
lögregla komu á staðinn og voru
báðir mennirnir fluttir inn í
Stykkishólm. Síðan voru þeir
fluttir með flugvél til Reykjavík-
ur.
Það var klukkan tæplega 7 á
sunnudagsmorgun að bifreiðarstjóri
úr Borgamesi, er var á leið vestur
á Hellissand til þess að sækja fé
til förgunar, sem kom fyrstur á slys-
stað. Ekki var orðið almennilega
bjart af degi, er bifreiðarstjórinn
átti þama leið um. Telur hann það
tilviljun að hann skyldi hafa séð
hvar bílinn var, því vegkantur og
árbakki skyggðu á. Sennilega hafa
menn farið þama um í myrkri um
nóttina án þess að hafa séð bflinn.
Bifreiðin er ónýt, saga varð hana í
sundur til að hægt væri að ná pilt-
unum út úr henni.
Páll
NBC leigir
14. hæð
Húss versl-
unarinnar
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin
NBC hefur tekið á leigu 14. hæð
Húss verslunarinnar, en þar er ;
fundarsalur i eigu Hússins, sem
leigður hefur verið út til ýmissa
félaga.
Jónas Þór Steinarson, fram-
kvæmdastjóri Húss verslunarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hugmynd þeirra sjónvarpsmanna
væri sú að koma sendingunni beint
frá Höfða, þar sem viðræður leið-
togana eiga að fara fram, og út f
flugskýli 1, þar sem þeir em með
eigin jarðstöð. Síðan ætti frétta-
maðurinn að standa uppi á svölum
Húss verslunarinnar með útsýni
yfir borgina.
Pundarsalurinn var bókaður
nokkrar vikur fram í tímann svo
það varð að gera aðrar ráðstafanir
fyrir þá sem áttu bókað þessa viku
svo NBC kæmist að með sinn tækja-
kost og starfsmenn.
I fyrsta sæti vinsældalistans:
HOUAND BJEGIRO
Holland Electro er í efsta sæti íslenska ryksuguvinsældalistans - og hún hefur
veriö þar í meira en áratug.
PaÖ ætti ekki aö koma neinum á óvart því Holland Electro er engin venjuleg
ryksuga.
• Kraftmeiri gerast ryksugur ekki.
Holland Electro hefur allt að 1200 watta mótor sem tryggir aukinn sogkraft og einstakan
árangur.
• Breytilegur sogkraftur.
MeÖ sjálfstýringu er sogkraftinum stjómaö eftir þörfum - Þykkustu teppin sleppa ekki.
• Lág bilanatíðni.
Bilanatíðni Holland Electro er lægri en hjá öörum tegundum.
• Góðþjónusta.
Viðgerða- og varahlutaþjónusta er eins og hún gerist best.
• Teppabankari.
Holland Electro býöur sérstaka teppabankara til að friska teppin upp.
Þaö er engin tilviljun að Holland Electro hafi setið svo lengi í fyrsta sæti ryksuguvinsældalist-
ans, þetta er nefnilega engin dægursuga heldur ryksuga sem kann tökin áteppunum.
SJÁLFSTÆÐISMENN IREYKJAVIK
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS.
MARIA EINGVAJDOITIR
KOSNINGASKRIFSTOFA í NÝJABÍÓHÚSINU, LÆKJARGÖTU.
SÍMAR: 12540,14494,14558. OPIÐ FRÁ14.00-22.00.J