Morgunblaðið - 07.10.1986, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
I
fclk í
fréttum
tí
Lisa Marie Presley
í sértrúarsöfnuði
Fjölakyldan fyrir
hjónanna 1972.
Mæðgnrnar eru báðar
sama sértrúarsöfnuði.
Lisa Marie Presley, hin 18 ára
dóttir Elvis, rokkkóngsins
sáluga, og Priscilla, hefur flutt
að heiman og dvelur hjá sértrúar-
söfnuði í Los Angeles.
Reyndar var það móðirin, sem
kom dótturinni á bragðið, og nú
á söfnuðurinn nær hug hennar
allan. Meðlimimir þurfa að ganga
í gegnum hin ýmsu stig í með-
ferðinni til að öðlast betra líf og
allt saman kostar þetta mikla
peninga. Útgjöldin hjá Lísu eru
varla byijuð, en samt greiðir hún
um 100 þúsund krónur á mánuði.
En það skiptir hana engu, því hún
fékk dágóðan arf fyrir skömmu
og fær auk þess enn meira eftir
föður sinn á 25 ára afmælisdag-
inn.
Mæðgumar em óánægðar út í
blaðaskrif um þær þess efnis að
Lisa Marie hafi flutt að heiman
vegna ósamkomulags þeirra og
segja það helber ósannindi. Þeim
komi mjög vel saman og ekkert
óvenjulegt sé við það að 18 ára
stúlka flytji frá mömmu.
Lisa Marie er mjög ánægð með
lífið og nýtur þess að geta gengið
um götumar án þess að eftir henni
sé tekið. Hún segist eiga kærasta
og þau hittist oft, en samt er það
söfiiuðurinn, sem tekur mestan
tíma.
Skötuhjúin í einkaþotu sinni. í svona flugvélum fyúga veryu-
lega tun 180 farþegar, en þeim finnst best að vera bara tvö.
SYLVESTER MEÐ GITTE
Á HEIMASLÓÐUM
SPELIVIRKI
Á KASTRUP
SKUGGAHLIÐAR fræðgarinn-
ar verða seint nægilega tíun-
daðar. Þannig varð ófriðarseggur-
inn og bardagahundurinn Sylvester
Stallone fyrir óskemmtilegu reynslu
um daginn. Hans heittelskaða
danska frú, Gitte, hafði fengið bæ-
jarleyfi í kóngsins Kaupmannahöfn
en þegar þau hjónin komu aftur á
Kastrup höfðu orðin „HO CHI
MINH AIR" verið máluð með úða-
brúsa á skrokk einkaflugvélar
þeirra.
Hverjir sem spellvirkið unnu,
höfðu augsýnilega aðrar skoðanir á
heimspólitíkinni en höfundur og
aðalleikari „Rambo". Að vonum var
Sylvester sár, því vélin er honum
kær - sérinnréttuð Boeing 727 með
tilheyrandi munaði innanborðs.
„Hvað á svona að þýða“ spurði
kappinn „ég er enginn stjómmála-
maður, bara leikari. Afhveiju gátu
þessir menn ekki bara komið til
mín og rætt málin ? Þá hefðum við
kannski getað komist að samkomu-
lagi." Og nú bíðum við óþreyjufull
eftir „Rambo 111“ þar sem söguhetj-
an sest að samningaborði með
helstu óvinum föðurlandsins, hveijir
svo sem það verða...
Björgvin á ferð og flugi
JÖRGVTN Halldórsson hefur haft í nógu
að snúast undanfamar vikur. Um daginn kom
Björgvin heim frá London þar sem hann
stjómaði upptökum á hljómplötu Kristjáns
Jóhannsonar. Platan var tekin upp í CBS-
Studios og aimaðist Royal Symphony orc-
hestra undirleik. Þá stómaði Björgin nýverið
upptökum á hljómplötu þar sem Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur dægurlög í útsetn-
ingu Ed Welch.
Á næstunni heldur Björgvin síðan út til
Castelbar á írlandi og flytur lag Jóhanns G.
Jóhannsonar „I write a lonely song“ í Al-
þjóðasöngvakeppninni. Að keppninni lokinni
ætlar hann að heija upptökur á Qórðu sólóplöfy
unni sinni, en fyrmefndar plötur koma allar
út um jólin.
Lagið sem Björgvin flytur út í Castelbar
er betur þekkt undir nafninu „Reykjavík".
Jóhann sendi það inn í söngvakeppni höfuð-
borgarinnar, en komst ekki í úrslit. Nú mun
„I write..." keppa við lög frá írlandi, Tékkósló-
vakí, Englandi, Hollandi, Ítalíu, Svíþjóð og
Bandaríkjunum. Þetta er í 21 skiptið sem
keppnin er haldin.
Tveir í klípu
EIR setluðu að gera gluggana
á Hótel Sögu skínandi fallega
og hreina, sennilega svo að Gorbasj-
off og Reigan sæju betur Esjuna
ef þessi yrði fundarstaðurinn. En
þá kom babb í bátinn: Kláfurinn
sem borið hafði þvottamennina í
efstu hæðir gerðist nú staður og
neitaði að fara aftur niður. Lítið
þýddi að koma honum í skilning
um að Njúton hefði svo um mælt
að allt sem fer upp skuli niður falla.
Eitthvað hafði farið úrskeiðis og
vélin sagði brems. Endaði þessi
rimma með því að þeir félagar slök-
uðu farkostinum niður með handafli
og ærinni fyrirhöfn. Þorkell, ljós-
myndari Morgunblaðsins, átti leið
hjá og tók þessar myndir.