Morgunblaðið - 07.06.1987, Qupperneq 9
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987
9
Hvitasimna
eftir sr. JÓN RAGNARSSON
V.H
UUt 1
smáatriðum, eða bundið við til-
teknar aðstæður. Andinn er
ftjáls. Hann tekur ekki mark á
mannfélagsmúrum og sálrænum
hindrunum, sem sundra fólki.
Hann er það afl, sem kveður
milljónir til guðsþjónustu, bænar
og lofgerðar meðal allra þjóða
heims. Kirkja andans eru öll
bænarmálin og faðir- vorin sem
berast út í kvöldhúmið frá börn-
um, sem búa sig undir svefninn.
Kirkja andans hrópar frá þús-
undum gleymdra fanga hvem
morgun, sem þrátt fyrir allt eiga
von og geta ekki gefíst upp í
henni. Kirkja andans er að verki
í líknar- og hjálparstarfí, þar
sem fólk er leitt til lífs frá dauða-
dæmdum aðstæðum. Þar og
miklu víðar er kirkja andans
sýnileg. Þessi eining, sem þrátt
fyrir hrópandi misræmi milli
þjóða og einstaklinga, gefur
þeim stekari samkennd en nokk-
uð annað.
Hvítasunnan er hátíð heilags
anda. Ein höfuðhátíð kristninnar
á öllum öldum, einnig í okkar
kirkju, a.m.k. þar sem hún er
fermingarhátíð að öllum jafnaði.
Hvítasunnan er minningar-
hátíð þess, að heilagur andi var
gefínn postulunum og þeirra jar-
teikna, sem þeirri gjöf fylgdu.
Þann dag telst stofnuð sú mikla
og margbrotna alheimshreyfíng,
sem nefnist kirkja. Heilög, al-
menn og ákaflega Qölskrúðug í
aldanna rás.
Áherslan á andann hefur ekki
verið jöfn á öllum tímum og í
öllum löndum. Kirlq'an mótast
alltaf af menningu og aðstæðum
þess fólks, sem henni tilheyrir.
Hún hefur það hlutverk að vera
farvegur andans og orðsins. Hún
rækir þetta hlutverk þegar henni
tekst, með Guðs hjálp, að ryðja
stíflum úr vegi og opna flóðgátt-
ir til sem flestra manna í
kringum sig.
Kirkjan getur samt orðið svo
þröng af mannasetningum, að
hún verði ófær farvegur. Andinn
fínnur sér þá aðra rás og blæs
utan þess samfélags, sem við
hann er kennt og á að sækja sér
afl til hans. Hann er ekki háður
því mannlega félagi, sem kirkjan
er. Hann sveif yfír vötnunum
við upphaf sköpunarinnar og fór
fyrir Drottni hvar sem hann gaf
sig mönnum til kynna. Annað-
hvort af þrumandi mætti, sem
„aðdynjandi sterkviðris" eða
sem blærinn í limi olíuviðarins,
og allt þar á milli. — Hann var
kynngin í prédikun spámann-
anna og kjarkur þjóðar í þreng-
ingum.
Andinn var gefinn postulun-
um á Hvítasunnudag. Þar var
fyöldi utanaðkomandi fólks til
vitnis, svo hér var ekki um
einkamál þeirra tólf að ræða.
Andinn var gjöf til að miðla,
eins og Pétur gerði, strax og
hann kom til sjálfs sín eftir
„áfall“ andans. Pétur boðaði
Krist, með tilstyrk andans. Hann
og hinir postulamir urðu gagn-
teknir fyrir augum viðstaddra,
svo að helst líktist torkennilegri
vímu, til að sjá, en var þeim ný
og stórfengleg reynsla —
ógleymanleg og krefjandi. Henni
varð að miðla. — Margir trú-
menn, líka nútímafólk, á slíka
reynslu. Sumir keppa eftir henni,
þessari persónulegu, innri gagn-
tekningu, og efast jafnvel um
gildi trúar sinnar, án þess inn-
siglis. Þá hefur gleymst, að
andinn er gjöf sem ekki er á
mannlegu valdi. Kristur hafði
búið lærisveina sína undir komu
Gjöf andans er ætíð ný. Hún
er ekki til að fela. Hún á að sjást
og heyrast í orðum og verkum
og lífí hvers kristins safnaðar.
heilagur andi og verk hans eru
leyndardómur, ofvaxinn skiln-
ingi. Þau eru hins vegar ekki
leyndarmál til að pukrast með.
An andans væri ekki kirkja né
kristin einingarvon.
Korpa
(Úlfarsá)
Veiðileyfín verða afgreidd frá
og með þriðjudeginum 9. þ.m.
Versl.
Veiðimaðurinn,
Hafnarstræti 5.
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Læknastofa
Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni hf.f
Álfheimum 74.
Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga
frá 9.00-15.00.
Hannes Hjartarson.
Sérgrein: Háls-, nef- og eyrnalækningar.
Gengi dags: 5. júní 1987: Kjarabréf 2,096 - Tekjubréf 1,175 - Markbréf 1,036 - Fjölþjóðabréf 1,030
Hjá Fjárfestingarfélaginu færðu þinn eigin
ráðgjafa til aðstoðar í fjármálum þínum
Heir, sem stofna fjármálareikning hjá Fjárfestingar-
félaginu, fá sinn einkaráðgjafa sér til aðstoðar í fjármál-
um, auk þess sem þeir fá fullan aðgang að allri þjónustu
verðbréfamarkaðs Fjárfestingarfélagsins.
Fjármálareikningurinn hentar sérstaklega vel fyrir
þá, sem vilja fjárfesta í hlutabréfum og verðbréfum, svo
og þeim sem eru að minnka við sig húsnæði og vilja fjár-
festa mismuninn í verðbréfum.
Heir sem stofna fjármálareikning hjá okkur njóta
þjónustu varðandi kaup, sölu og umsýslu hvers konar
verðbréfa, umsjón með innheimtu og greiðslum,
t.d. af skuldabréfum og kaupsamningum,
tekjur af verðbréfaeign sinni, - og síðast en ekki síst
aðstoð við reglulegan sparnað.
Njóttu ráðlegginga ráðgjafa Fjárfestingarfélagsins,
hafðu samband við skrifstofu okkar og fáðu upplýsingar
um nýja fjármálareikninginn.
FJÁRFESTINCARFÉLAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík ^ (91) 28566
<
s