Morgunblaðið - 07.06.1987, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987
Abstraktlist
Asmundar
Sveinssonar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Ásmundarsafn heldur áfram
kynningum sínum á afmörkuðum
þáttum í list Ásmundar Sveinsson-
ar og er í sumar með sýningu á
abstraktverkum hans.
Áður hefur safnið verið méð
sérsýningar á vinnunni í list
Ámundar, og konunni í list Ás-
mundar, svo þetta er þriðja sérsýn-
ingin.
Að sjálfsögðu er það umdeilan-
legt hvort rétt sé að setja upp slíkar
afmarkaðar sýningar á list Ás-
mundar á því tímabili er aðstreymi
ferðamanna er hvað mest eins og
ég hef áður vísað til.
Við það verður einhæfara úrval
listamanna til sýnis þannig að
gestir fá ekki fullkomlega rétta
mynd af listamanninum. En hins
vegar er þýðing slíkrar samantekt-
ar í sjálfu sér óumdeilanleg og
bregður upp nýju ljósi á einstaka
þætti á ferli listamannsins.
Fyrri sýningar hafa líka verið
frekar daufar í uppsetningu og í
sjálfu sér lítt áhugaverðar fyrir
unnendur listar Ásmundar, og
líkast til einnig fyrir útlendinga
er landið heimsækja. En nú bregð-
ur svo við að þessi síðasta sýning
hittir hreinlega í mark og bætir
við fyrri þekkingu á lífsverki lista-
mannsins. Ásmundur kom víða við
svo sem kunnugt er og greinileg
áhrif frá öllum áttum mátti sjá í
verkum hans og á stundum næsta
ómelt. Hann vildi gera svo margt
og pæla í svo mörgu í einu á mikl-
um umbrotatímum í íslenzkri list
og er áhrif nýstrauma erlendis frá
skullu eins og flóðbylgja á landið.
Myndlistarmenn höfðu á þeim
tímum einfaldlega ekki við að
melta áhrifin enda liðu þeir fyrir
skort á erfðavenju og grónum
hefðum og voru því galopnir fyrir
erlendum nýstefnum. Þetta var,
Röntgenminnisvarði, 1960.
og er að vissu marki ennþá, í senn
veikleiki og styrkur íslenzkrar
myndlistar.
Gunnari Kvaran listsagnfræð-
ingi hefur að þessu sinni tekist að
koma saman einstaklega heillegri
og áhugaverðri sýningu á þeim
þætti listar Ásmunar er að óhlut-
lægum formrannsóknum laut. Að
vísu eru áhöld um það hvort þessi
verk séu í eðli sínu abstrakt því
að Ásmundur var í raun svo upp-
tekinn af umhverfí sínu og hlutun-
um í kringum sig að hann byggði
verk sín iðulega á handföstum
hlutum úr nánasta umhverfí —
breytti þeim litið sem ekkert en
spann ýmsa listræna galdra í
kringum þá. Hvað um það eru
þessi verk hans í hæsta máta hug-
læg og úr þeim má lesa ijölþætt
áhrif frá nánasta umhverfí og
heimslistinni vítt og breytt.
Það sem hér hefur tekist með
vali verka og uppsetningu, er að
ná fram mjög heillegri og sam-
stæðri heild á þessum þætti á ferli
listamannsins svo að sýningin öll
er eins og óður til lífsins — lífræn
hljómkviða.
Það er einmitt þetta sem skiptir
svo miklu máli í uppbyggingu
safna og með þessari sýningu og
annarri athafnasemi í safninu
sjálfu, s.s. litlum afsteypum, ákaf-
lega fallegum póstkortum og gerð
myndbands, er safnið að verða að
mjög lifandi stofnun. Mjög upplífg-
andi heim að sækja og þeim sem
hér leggja hönd á plóginn til mik-
ils sóma.
AMSTRAD PC 1512
600 AMSTRAD PC Á100 DÖGUM!
\1T Kr. 79.000 stgr FYRIR
V EINSTAKLINGA
2 diskadrif m/14“ litaskjá.....................kr. 59.800.-
Prentari DMP 3000 (105 p.sek.).................kr. 16.790,-
Forrit að eigin vali...........................kr. 15.000.-
Kr. 91.590.-
AMSTRAD PC 1512 er engin venjuleg PC-tölva, þó
hún sé alsamhæfð IBM PC. Kynntu þér verðið og
allan aukabúnaðinn sem fylgir, þá skilur þú 600
ánægða AMSTRAD PC eigendur.
Kr. 169.790.-
Viðgerðarþjónusta:
Tækniverkstæði Gísla J. Johnsen.
Móttaka:
Bókabúð Braga, tölvudeild, s. 621122.
Námskeið: Tölvufræðslan, Borgartúni 56, sími 687590.
Bókabúð
Braga
TÖLVUDEILI)
v/Hlemm Símar 29311 og 621122
Á þessum tímamótum höldum við hátíð og bjóðum
25 tilboðspakka „A“ og 25 tilboðspakka „B“ á GRÍNVERÐI.
Ath. Aðeins verða seldir 25 pakkar af hvoru og aðeins gegn stað-
greiðslu!
LT Kr. 110.000 stgr
FYRIR
FYRIRTÆKI
20 MB harður diskur, 1 diskadrif
14" svarthvítur pergament skjár......................................kr. 67.900.-
Prentari DMP4000 (breiður, 200 p.sek.)...............................kr. 27.890,-
RÁÐ, viðskipta-, sölu- og lagerkerfi XT..............................kr. 45.000.-
RÁÐ, fjárhagsbókhald XT..............................................kr. 29.000,-