Morgunblaðið - 07.06.1987, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987
,, ertþú á réttrikzllu z lifinu? “
abendi
náms- og starfsráðgjöf / ráðningaþjónusta, Engjatrig 7
(gcgnt Hótt'l Esjtt), sími 68 90 99.
Agústa Gunnarsdóttir sáilfrceðingur, Nanna Chrstiansen
ráðgjafi, Þórunn Felixdóttir ráðgjafi.
Bladburöarfólk
óskast!
VESTURBÆR AUSTURBÆR
Fálkagata Laugavegur 1 -33 o.fl.
Dunhagi Leifsgata
Hjarðarhagi Gnoðarvogur
Nesvegurfrá 40-82
ÚTHVERFI
Álftamýri
Topptilboð
5% staðgreiðsluafsláttur
Litur: Svart, hvftt, Ijósblátt.
Stærð: 36-42
Efni: Skinn
Tvær hælahæðir
Póstsendum
Ath.: Nýkomin sending
af fallegum
hanskaskinnsskóm.
21212
Falleg hönnun
og ótal niögulei
Beocom síminn er hannaður af hinu heims-
þekkta fyrirtæki Bang og Olufsen og uppfyllir
því ströngustu kröfur um útlit og gæði.
Beocom er léttur og meðfærilegur, hefur 11 númera
minni, átta mismunandi hringingar; háar, lágar,
hraðar og hægar. Hann hefur einnig sjálfvirkt
endurval, hentuga minnisplötu,
skrá yfir númer í minni og
fjölda annarra góðra kosta.
Beocom er sími sem nútíma-
kann vel að meta; hönnunin
, möguleikarnir ótalmargir og
svo kostar hann aðeins kr. 7.946.-
Pú færð nýja Beocom símann í Söludeildinni í Kirkju-
stræti og póst- og símstöðvum um land allt.
PÓSTUR OG SÍMI
SÖLUDEILD REYKJAVlK, SlMI 26000 OG PÓST- OG
SlMSTÖÐVAR UM LAND ALLT
Skólaslit
Gagnfræða-
skóla Húsa-
víkur
Húsavfk.
SKÓLASLIT Gagnfræðaskóla
Húsavíkur fóru fram sl. föstu-
dag. Um 190 nemendur voru í
skólanum auk 30 fullorðinna sem
tóku þátt í námskeiðum á vegnm
skólans.
Á starfsárinu voru brautskráðir
úr framhaldsdeildum 5 nemendur í
húsasmíði, 9 luku 2 ára verslunar-
prófí og 9 hlutu skipstjóraréttindi
á skipum allt að 200 lesta.
Við skólaslit hlutu þessir nem-
endur viðurkenningu: Benedikts-
verðlaunin fyrir góðan árangur í
íslensku hlutu Ema Bjömsdóttir og
Kristjana Hreiðarsdóttir, báðar í 9.
bekk. Landsbankabikarinn fyrir
leikni í vélritun hlaut Ema Bjöms-
dóttir. Verðlaun frá danska sendi-
ráðinu fyrir kunnáttu í dönsku hlaut
Ingibjörg Halldórsdóttir og Krist-
jana Hreiðarsdóttir í 9. bekk.
Viðurkenningu frá vestur-þýska
sendiráðinu hlaut Hjördís Tryggva-
dóttir á málabraut fyrir árangur í
þýsku.
Gagnfræðingar þeir sem fyrst
brautskráðust úr skólanum fyrir 40
ámm hittust á Húsavík af því til-
efni og færðu skólanum að gjöf 40
þúsund krónur. Heimild hefur verið
veitt til starfrækslu sjálfstæðs
framhaldsskóla á Húsavík og mun
hann hefja göngu sína næsta haust.
Heimavistarhúsnæði verður fyrir
hendi handa aðkomunemendum.
Auglýst hefur verið. laust starf
skólameistara við hinn nýja skóla
en Siguijón Jóhannesson sem lengi
hefur starfað við skólann lætur nú
af störfum eftir langt og velþakkað
starf.
— Fréttaritari.
Stjórn Leik-
listarsam-
bandsins
endurkjörin
AÐALFUNDUR Leiklistarsam-
bands íslands var haldinn þriðju-
daginn 19. mai sl. Á fundinum
urðu miklar umræður um varð-
veislu leiklistargagna, þ.e.
upptökur af sýningum og aðrar
heimildir sem hafa leiklistar-
sögulegt gildi.
Stjóm Leiklistarsambandsins var
endurkjörin, en hana skipa Sveinn
Einarsson, formaður, Pétur Einars-
son, ritari, Sigrún Valbergsdóttir,
gjaldkeri, Amór Benónýsson og
Kjartan Ragnarsson, meðstjómend-
ur. Aðild að Leiklistarsambandi
íslands eiga fulltrúar frá Félagi
íslenskra leikara, Félagi leikstjóra
á íslandi, Ríkisútvarpi/sjónvarpi,
Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi
Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar,
Alþýðuleikhúsinu, Bandalagi
íslenskra leikfélaga, Leiklistarskóla
íslands, Félagi íslenskra listdans-
ara, Samtökum leikhúsgagnrýn-
enda, Leikskáldafélagi íslands og
Félagi leikhúsfræðinga.
Leiklistarsamband Islands á aðild
að Leiklistarsambandi Norðurlanda
og Alþjóðasamtökum leikhús-
manna. Næsta þing þess verður í
Havanna á Kúbu nú í júní og sækja
það Sveinn Einarsson og Pétur Ein-
arsson.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!