Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987
29
gjöm að sú ritningargrein sem lýsir
best hennar lífshlaupi er „Sælla
er að gefa en þiggja."
Svava var bókhneigð mjög og
hafði mikið yndi af ljóðum. Hún var
hnyttin í tilsvörum, enda prýðilega
greind.
Heimili hennar var mjög snoturt
og snyrtilegt, enda prýddi það hand-
bragð húsmóðurinnar, sem hafði
sérstakt lag á að gera það einkar
vistlegt og notalegt.
Svava giftist Adolf Holm, sem
látinn er fyrir allmörgum árum, en
þau slitu samvistum.
Eina dóttur eignaðist hún, Lálju
Huld Sævars, sem býr með indælis-
manni, Magnúsi Jóhannssyni frá
Patreksfírði. Svava átti heimili sitt
í sama húsi hartnær tvö síðustu
árin.
Lilja var áður gift Áma Péturs-
syni (Emst Michalik) og áttu þau
saman dætumar ínu Karlottu og
Svövu Kristínu, sem báðar hafa
stofnað heimili með efnilegum, ung-
um mönnum, þeim Degi Brynjólfs-
syni og Kjartani Egilson. ína og
Dagur eiga dótturina Lilju Kristínu,
sem var augasteinn langömmu
sinnar.
Kærleikur mikill, en einkum djúp
vinátta, var með þeim mæðgum,
Svövu og Lilju dóttur hennar, alla
tíð, svo og Áma, tengdasyni henn-
ar, er lést fyrir nokkmm ámm,
aðeins rúmlega fímmtugur að aldri.
Svava átti við hjartasjúkdóm að
stríða mörg hin síðarí ár, en hún
bar höfuðið hátt og kvartaði aldrei,
þótt oft fyndi hún til.
Á yngri ámm sigidi hún með
Jóhanni, bróður sínum, sem þá var
skipstjóri á Kötlu og rifjaði hún oft
síðan upp ljúfar minningar frá
ánægjulegum ferðum þeirra.
Þegar hún varð sextug lögðum
við land undir fót og fómm fljúg-
andi til Kanaríeyja í þriggja vikna
jólaferð. Naut hún þeirrar dvalar
vel, þrátt fyrir sjúkdóm þann, er
þá þegar hafði gert vart við sig.
Mig brestur orð til að þakka
frænku minni alla hennar elsku í
minn garð og dóttur minnar, en
Svava reyndist mér eins og besta
móðir ævinlega, og ekki síst þá fjóra
vetur, sem hún opnaði heimili sitt
fyrir mér, er ég stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík árin
1952 til 1956. Hún sá mér fyrir
fæði og klæði eins og sinni eigin
dóttur og lagði á sig mikla vinnu
til að sjá okkur farborða.
Svava eignaðist ekki þann jarðar-
auð er mölur og ryð fær grandað,
en hennar hjartans auður var slíkt
ríkidæmi, að hann verður eins og
skáldið sagði: „auðlegð á vöxtum í
guðanna ríki.“
Svava naut þeirrar náðar að
verða bænheyrð með að verða aldr-
ei öðmm byiði f lífínu. Hún lést á
Borgarspítalanum í Reykjavík eftir
aðeins tveggja vikna legu og kvaddi
þennan heim með þeirri reisn er
sæmdi skapferli hennar og lífs-
göngu.
„Að hverfa aftur til upphafsins
er friðurinn; það er að hafa náð
takmarki tilvistar sinnar."
(Lao Tse: Bókin um veginn.)
Sigurlaug Ásgrímsdóttir
VW JETTA er talandi dœmi
um vönduö vinnubrögö.
VW JETTA er traustur og
endingargóöur bíll.
VW JETTA er meö íram-
hjóladrií og íer meistaralega
á íslenskum malarvegum.
Veið frá kr. 549.000 ^
GISLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16. Sími 641222
n i
ericsson
farsímar í fararbroddi
PRISMA