Morgunblaðið - 24.01.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1990
29
Bergþóra S. Þorbjarnar-
dóttir - Minning
Amma okkar, Bergþóra Sólveig
Þorbjarnardóttir, lést þann 4. janúar
sl. á Droplaugarstöðum, þar sem hún
dvaldi síðustu tvö ár ævinnar. Okkur
systkinin langar að minnast hennar
með örfáum orðum. Amma Begga
giftist Karli V. Runólfssyni 3. apríl
1926, en hann lést árið 1970. Eign-
uðust þau tvö börn, Þorbjörn sem
kvæntur er Svölu Sigurðardóttur og
eiga þau þrjár dætur, og Kristrúnu
sem gift er Ásmundi Bjarnasyni og
eiga þau sex börn. Bamabömin era
í dag orðin 23.
Við munum alla tíð minnast henn-
ar þar sem hún er að snúast í kring-
um okkur og vill allt fyrir alla gera.
Aldrei heyrðum við hana hækka róm-
inn, hún var alltaf jafn blíðlynd og
róleg. En sælla er að gefa en þiggja,
það sannaðist á ömmu Beggu, því
þegar hún fór að eldast og við vildum
rétta henni hjálparhönd, þótti henni
alltaf of mikið fyrir sér haft.
Hún amma Begga var alltaf frá
og létt á fæti og hafði lengi yndi af
góðum göngutúmm. Það var alveg
ótrúlegt að horfa á eftir henni 85
ára gamalli þegar hún gekk um
ganga í Seljahlíð, þar sem hún bjó
um tíma og sögðu starfsstúlkurnar,
að það væri líkast því að þama færi
komung manneskja svo hratt fór
hún. Þó svo að byrði aldurs legðist
á hana andlega þá hélt hún alla tíð
reisn sinni.
Amma var alltaf mjög vinnusöm
og ákaflega myndarleg í höndunum
og víða má finna eftir hana handa-
vinnustykkin, jafnt á veggjum sem
gólfum. Hver man líka ekki jólakök-
una og pönnukökurnar sem alltaf
vom jafn fallegar og vinsælt var það
þegar amma Begga hafði meðferðis
stóran stafla af pönnukökum í af-
mæli elstu barnabamanna.
Við systkinin stöndum öll í þakkar-
skuld við ömmu Beggu fyrir allt það
góða sem hún hefur fyrir okkur haft,
og þá ekki síst þau sem áttu hjá
henni annað heimili á meðan á skóla-
göngu stóð, þar sem við áttum heima
á Húsavík.
Láttu Guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu haltu þá bestu,
blessað orð hans, sem boðast þér,
í bqosti og hjarta festu.
(H.P.)
Við kveðjum elsku ömmu. Bless-
uð sé minning hennar.
Dótturbörnin frá Húsavík.
t
Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR KARLSSON
trésmiður, '
Vallhólma 16,
er látinn.
Fanney Sigurjónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Faðir okkar,
MAGNÚS PÁLSSON,
Drekavogi 6,
lést í Landakotsspítala aðfararnótt 23. janúar.
Helgi Þór Magnússon,
Elín Magnúsdóttir,
Þuríður Magnúsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
VALDIMAR J. AUÐUNSSON,
Grenstanga,
Austur-Landeyjum,
lést í Sjúkrahúsi Selfoss
aðfaranótt 23. janúar.
Þuriður Ingjaldsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Útför föður okkar og tengdaföður,
ÁSGEIRS ÁSGEIRSSONAR,
Austurgötu 38,
Hafnarfirði,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 26. janúar kl. 13.30.
Þórður Ásgeirsson,
Pétur Ásgeirsson,
Vigdfs Ásgeirsdóttir,
Erla Ásgeirsdóttir,
Jóhanna Pálsdóttir,
Gunvör Ásgeirsson,
Halldór Svavarsson,
Ólafur Pétursson.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
KVENNA
ATHVARF
Munið félagsfundinn í Hlaðvarpanum á
morgun, fimmtudag, kl. 20.15.
Samtök um kvennaathvarf.
KENNSLA
Þýskunámskeið
Germaníu
hefjast á ný mánudaginn 29. janúar 1990.
Kennsla verður sem hér segir:
Byrjendur
Framhald I
Framhald II
Framhald III
Framhald IV
Framhald V
Framhald VI a)
Framhald VI b)
Kennt verður í
2. hæð.
Upplýsingar eru gefnar í síma 10705 og á
kvöldin í sfma 13827.
Nýir þátttakendur velkomnir í alla hópa.
mánud.
fimmtud.
miðvikud.
mánud.
þriðjud.
fimmtud.
þriðjud.
mánud.
Lögbergi
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
20.15-21.45
18.45-20.15
19.00-20.30
18.45-20.15
19.00-20.30
20.15-21.45
18.45-20.15
18.45-20.15
Háskóla Islands,
LÖGTÖK
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og
að undangengnum úrskurði verða lögtök lát-
in fara fram án frekari fyrirvara á kostnað
gjaldenda, en ábyrgð Gjaldheimtunnar, að
átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar
þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga
nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra
gjalda, fyrir 10.-12. greiðslutímabili með ein-
dögum 15. hvers mánaðar frá nóvember
1989 til janúar 1990.
Reykjavík, 22. janúar 1990.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Verslunarhúsnæði til
leigu við Laugaveg
Við neðanverðan Laugaveg er til leigu stórt
verslunarhúsnæði. Laust nú þegar.
Upplýsingar í síma 27770.
Atvinnuhúsnæði
- Hafnarfjörður
Til leigu um 130 fm atvinnuhúsnæði á 1. hæð
á góðum stað við Hjallahraun. Mikil lofthæð
og hentar húsnæðið því vel fyrir iðnað eða lager.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 53176.
SJÁLFSTJEDISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Hafnfirðingar
Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði verður haldið fimmtu-
daginn 25. janúar kl. 20.30 i Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu.
Spiluð verður félagsvist. Kaffiveitingar.
Hittumst hress á nýju ári.
Stjórnir félaganna.
Kópavogur - opið hús
Opið hús verður í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1, miðvikudaginn
24. janúar frá kl. 17.00-19.00.
Frambjóðendur til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins vegna bæjarstjórna-
kosninga mæta. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Akurnesingar
- nú blótum við þorra
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi gengst fyrir sinu árlega
þorrablóti föstudaginn 26. janúar kl. 20.00 í Sjálfstæðishúsinu við
Heiðargeröi.
Framreiddur verður „gómsætur" þorramatur ásamt glensi og grini.
Verði er stillt i hóf. Þátttaka tilkynnist til Óla Grétars eða Sibbu fyrir
kl. 18.00 fimmtudag,
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Stjórnin.
Dalvíkingar
Fundur um bæjarmálefni verður haldinn í Bergþórshvoli laugardaginn
27. janúar kl. 16.00. Frummælendur verða bæjarstjóri og bæjarfull-
trúar. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Dalvíkur.
Þorrablót sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík
Þorrablót verður haldið á vegum sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík - Varðar, Heimdall-
ar, Hvatar og Óðins, í Valhöll - laugardag-
inn 27. janúar næstkomandi.
Gestur þorrablótsins verður Davíð Odds-
son, borgarstjóri.
Miðasala og miðapantanir verða á skrif-
stofu Sjálfstæöisflokksins í Valhöli, Háaleit-
isbraut 1, sími 82900, 23.-26. janúar frá
kl. 9.00-17.00 alla daga.
Húsið opnað kl. 19.00 og verður þorraborð-
ið tilbúið kl. 20.00.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið og takið með ykkur gesti. Eigum saman
ánægjulega kvöldstund.
Vörður, Heimdallur, Hvöt og Óðinn.
----------9--------------------------------------—------------
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi
Opið prófkjör sjálfstæðismanna vegna væntanlegra bæjarstjórna-
kosninga vorið 1990 verður haldið laugardaginn 3. febrúar nk. og
hefst kl. 10.00 árdegis f Hamraborg 1, 3. hæð. Kjörfundi lýkur kl.
22.00 sama kvöld.
Þátttaka I prófkjörinu er heimil öllum stuðningsmönnum Sjálfstæð-
isflokksins sem eiga munu kosningarétt i Kópavogi á kördegi, svo
og öllum fullgildum félagsmönnum sjálfstæðisfélaganna f Kópa-
vogi, sem búsettir eru í Kópavogi og náð hafa 16 ára aldri á kjördegi.
Kosning fer þannig fram, að kjósandi merkir við nöfn hvorki fleiri
né færri en 6 manna, með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn
frambjóðenda á prófkjörsseðlinum og tölusetja þá í þeirri röð, sem
óskað er að þeir skipi framboöslistann.
Þessir frambjóðendur eru i kjöri:
Hannes Sampsted, bifreiðasmiður, Löngubrekku 9,
Sigurjón Sigurðsson, læknir, Þinghólsbraut 6,
Dr. Gunnar Birgisson, verkfræðingur, Austurgerði 9,
Birna Friðriksdóttir, skrifstofumaður, Reynihvammi 22,
Steinunn H. Sigurðardóttir, verslunarmaður, Hvannhólma 30,
Richard Björgvinsson, viðskiptafræðingur, Grænatúni 16,
Helgi Helgason, nemi, Lyngheiði 16,
Bragi Michaelsson, framkvæmdastjóri, Birkigrund 46,
Jón Kristinn Snæhólm, nemi, Sunnubraut 12,
Halla Halldórsdóttir, Ijósmyndari, Austurgerði 5, *
Arnór L. Pálsson, framkvæmdastjóri, Hlaöbrekku 2,
Guðni Stefánsson, járnsmíðameistari, Hrauntungu 79,
Jóhanna Thorsteinsson, forstöðukona, Ástúni 2,
Hjörleifur Hringsson, sölumaður, Skólagerði 39,
Guðrún Stella Gissurardóttir, nemi, Hamraborg 36,
Kristín Líndal, kennari, Sunnubraut 50,
Stefán H. Stefánsson, framkvæmdastjóri, Lundarbrekku 6,
Haraldur Kristjánsson, útvarpsmaður, Kársnesbraut 45,
Kristinn Kristinsson, húsasmiðameistari, Reynihvammi 22,
Sigurður Helgason, lögfræðingur, Þinghólsbraut 53.
Þeir kjósendur, sem verða fjarverandi á kjördegi geta kosið á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins, Hamraborg 1, 3. hæð, eftirtalda daga: ‘
23. janúar kl. 18.00-19.00, 27. janúar kl. 13.00-15.00, 30. janúar
kl. 18.00-19.00 og 2. febrúar kl. 18.00-19.00.
Kjörstjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi.